Heimilisritið - 01.11.1955, Side 20

Heimilisritið - 01.11.1955, Side 20
var sjálfsagt þegar farin að hlakka til að segja náunganum, sem tæki við af honum, alla sög- una. ,.Auðvitað lofa ég því,“ sagði sagði hún. „Þér skuluð ekki minnast á að ég hafi hringt. Og þakka yður innilega fyrir að tala um þetta við mig . . .“ „Ég mun aldrei gleyma því sem þér gerið núna, kæra ung- frú, og takið þetta ekki of nærri yður,“ sagði Derek. Þessi síðustu orð voru einstök eftirlíking af rödd föður hans. „Verið þér sælir,“ andvarpaði Sylvía. „Verið þér sælar.“ Derek ræskti sig hrærður og lagði heyrnatólið á símann. HANN varð þess var að hann sneri upp á ímyndað yfirskegg, og sneri sér brosandi við — en hrökk við, eins og hann hefði séð draug, þegar hann sá föður sinn standa í dyrunum og snúa upp á sitt raunverulega en svo- lítið úfna yfirskegg. „Nú, þarna ertu Derek,“ sagði hann. „Ég ætlaði bara að spyrja þig, hvort þú hefðir nokkuð hugsað um, hvar við ættum að setja nýju rósirnar . . .“ Derek var að því kominn að sökkva í jörð af skömm. Hve mikið hafði faðir hans heyrt? Hafði hann þekkt sjálfan sig? Hvernig átti hann að fara að því að útskýra þetta? Hann fylgdist með ofurstan- um út í garðinn, og gerði nokkr- ar óljósar tillögur um fyrirkomu- lag blómanna; hugsanir hans voru víðs f jarri, hann vonaði að faðir hans héldi ekki, að hann hefði verið að gera gys að hon- um. Allt í einu hætti ofurstinn að tala um rósirnar og sagði: „Ég hef hugsað um þá ósk þína að fara á leikskóla og ger- ast leikari, og nú vil ég gjama samþykkja hana.“ Augu hans hurfu næstum í hrukkurnar, sem mynduðust við það að hann brosti: „Ég . . . eh . . . hlustaði á samtal rétt áðan, og komst að þeirri niðurstöðu, að þú gætir ef til vill staðið þig á leiksviði. Hm, hm, segðu mér svo eitthvað um þennan- leikskóla, sem þú vilt fara í, hvað áttu að læra á hon- um?“ „Það er svo margt,“ sagði De- rek ákafur, „t. d. að skylmast og . . .“ . „Skylmast!" greip gamli her- maðurinn fram í undrandi. „Nú skil ég ekki orð. Ég hélt að þú ættir að læra að nota púður- kvasta og varalit . . . en segðu mér nú skilmerkilega frá þessu.“ * 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.