Heimilisritið - 01.11.1955, Side 49

Heimilisritið - 01.11.1955, Side 49
í stóru, seytjándu aldar húsi á bökkum Wappingárinnar, sem stóð innan um sóðaleg og gömul vörugcymsluhús. Fyr- ir öllum gluggum út að götunni voru þykk gluggatjöld, sem aldrei voru dreg- in til hliðar. Efri hæðin var samt ríku- lega búin húsgögnum, þótt ekki væru þau smekkleg. Ekki var þetta þó vottur um auðlegð húsráðandans, því allt var þetta til sölu. Eleimili Maluz Ali var cinnig vörugeymsla hans. Graham reyndi alltaf að vera hnitt- inn er hann hitti hinn- persneska kunn- ingja sinn, því ekki var laust við að hið kaldhæðnislega en góðláta bros hans gcrði Graham taugaóstyrkan. Það var eins og Maluz Ali vissi um hverja ein- ustu ósæmilega hugsun, sem Graham hafði gaman af. Hm kæruleysislega af- staða hans til lífsins virtist vera eitt- hvað á þessa leið: „Hvílík svín erum við mennimir, ha? Sérstaklega ég og þú. Jæja, jæja, það gerir ekki svo mikið til, við munum halda áfram að látast. Við skuluni fyrir alla muni halda áfram að látast, en ef við værum reglulega heið- arlegir hver við annan. . . .“ Graham heilsaði Persanum: „Jæja, Maluz, hvernig gengur eiturlyfjasalan?" Það var nefpilega algengur brandari hjá þeim, að Maluz væri stórlax í eitur- lyfjasölunni. Brandari . . . já, . . . en einnig á þessu sviði hafði Graham óljós- an gran um að kannske væri þetta eng- inn brandari og að Maluz væri að rifna af hlátri innra með'sér á kostnað Gra- hams. „O, Allardyce, þér endið með því að ganga af vini yðar dauðum með þess- um illkvittnu brönduram." „Guð forði mér frá því, Maluz. Ann- ars er ég á hraðri ferð. Hvernig geng- ur . . . hérna . . . eggjasalan.“ „Þér verðið að tala við innpökkunar- deildina, Allardyce." NÓVEMBER, 1955 Innpökkunardeildin var í litlu her- bergi, sem snén út að ánni, og hafði verið notaS undir tóma umbúðakassa. Það hafði verið tekið til í því og borð sett upp undir glugganum. Lítill og þögúll Japani, sem virtist vera mál- laus, því ekki tók hann undir kveðju Grahams, var að vinna við örverpi. Hann var að lita þau ljósrauð. í „Það vora miklir erfiðleikar mcð lit- inn, Allardyce," sagði Maluz. „Ó, herra minn. Það er mikið talað um kraftaverk vísindanna, en ef þig vantar eins ein- faldan hlut og hættulausan lit fyrir ör- verpi, þá er hann ekki til. En okkur tókst að búa hann til að lokum.“ „Hættulausan, Maluz? En það étur enginn skurnina.“ „En eggjaskurnin er gljúp, Allardyce/ „Guð minn góður, er hún það? Guði sé lof að þér vissuð það. Þér erað mik- ill maður, Maluz.“ „Nei, nei, Allardyce, en ég er mjög varkár maður, og vandur að virðingu minni. Auk þess vil ég ekki lenda í klandri við lögregluna. Ekki veit ég hvernig á því stendur, Allardyce, en mér er alltaf órótt, ef lögreglan er í nánd.“ „Það er ckkert ólöglegt við þetta,“ sagði Graham hvassyrtur. Pcrsinn yppti öxium. „Löglegt, ólöglegt. Hver veit um það? Ekki einu sinni lögfræðingarnir, Allar- dyce. Það er erfitt fyrir einfalda og vinnusaman verzlunarmann frá Austur- löndum eins og mig að skilja hina cnsku löggjöf." „Jæja, en í þetta sinn get ég full- vissað yður um að allt cr löglegt." „Ég vona það sannarlega, Allardyce." „Jæja, hvenær getum við byrjað?“ spurði Graham. „Hvenær sem þér viljið. Opi á þegar orðið nokkuð af eggjum ,á lager“.“ 47

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.