Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 62

Fréttatíminn - 13.12.2013, Page 62
F jöldi sígildra jólamynda er gríðarlegur enda hafa þær hlaðist upp í gegnum áratug- ina. Skilgreiningin á því hvað teljist jólamynd er einnig býsna víð. Þær klassísku hverfast að sjálfsögðu um jólaandann og oftast má ganga að rauðklædda ýstrubelgnum á hrein- dýravagninum vísum. White Christ- mas, Miracle On 34th Street, Christ- mas Carol, It’s A Wonderful Life og gamanmyndin National Lampoon’s Christmas Vacation falla í þennan flokk en jólamyndirnar eru miklu fleiri og fjölbreyttari. Í raun þurfa þær aðeins að gerast um jól til þess að ná máli í jólamyndadeildinni og kærleiksboðskapurinn og bróðurþel eru síður en svo ætíð í forgrunni. Fréttatíminn tekur hér til fimm sígildar jólamyndir sem þó eru fullar af glæpamönnum, byssubardögum, sukki, svínarí, einsemd, eineltistil- burðum og síðast en ekki síst, morð- óðum púkum. Form fix slökunarpúðinn fyrir mömmur, pabba, börn og alla þá sem vilja láta sér líða vel. Form Fix púði verð 11.500 Áklæði, margir litir, verð 5.990 Fæst aðeins í Tvö Líf- fullkomin jólagjöf. Frí heimsending Holtasmára 1 - Sími 517 8500 www.tvolif.is OPIÐ VIRKA DAGA 11-18 OG LAUGARD. 12-17 kortatímabil !Nýtt 99 kr.stk. Verð áður 296 kr. stk. Fanta, 2 lítrar 65%afsláttur v 2 lítrar Hámark 4 pk. á mann með an birgðir end ast! JóliN eru að koma! Fleiri góðar White Christmas – 1954 It's A Wonderful Life – 1946 Miracle On 34th Street – 1947 Mickey's Christmas Carol – 1983 Scrooged – 1988 National Lampoon's Christmas Vacation – 1989 Home Alone – 1990 The Nightmare Before Christmas – 1993 Jingle All The Way – 1996 How The Grinch Stole Christmas – 2000 Love Actually – 2003 Elf – 2003 Jólabíómyndir eru mjög svo ákjósanlegar til þess að koma sér í rétt skap á aðventunni og hafa það til dæmis umfram öll jólalögin alræmdu að maður þarf að bera sig eftir bíómyndunum á meðal lögunum er troðið inn í eyru manns, óumbeðið, hvar sem maður kemur frá nóvemberlokum og út desember. Jólamyndirnar eldast því betur og geta haldið gildi sínu áratugum saman ef horft er á þær á til dæmis fimm til tíu ára millibili. Hryðjuverkamenn í jólaglögg Bad Santa – 2003 Leikstjóri: Terry Zwigoff Boðskapur Bad Santa er að jólaandinn geti bjargað öllum. Það blasir við fyrst drykkfelldi rustinn og skítmennið sem Billy Bob Thornton leikur getur orðið að betri manni á aðventunni. Billy Bob er hér alger slúbbert og þjófur sem ræður sig til starfa sem jólasveinn í verslunarmiðstöð, með það fyrir augum að fara þar um ránshendi eftir lokun. Hann níðist á álfinum, félaga sínum, reykir, drekkur og lætur börnin sem hann á að gleðja fara óstjórnlega í taugarnar á sér. Lítill, feitur strákur nær þó að bræða kalt hjarta skúrksins sem lærir að verða betri maður þótt það sé mest fyrir slysni og að hann meðtaki helst ekki jólaandann nema í eigingjörnum tilgangi. Billy Bob Thornton er slíkur rusti í jólasveinabúningi að hann gæti vel verið sonur Grýlu. Trading Places – 1983 Leikstjóri: John Landis Frægðarsól Eddie Murphy var í hádegisstað þegar leikstjórinn John Landis stefndi honum og Dan Aykroyd saman, ásamt Jamie Lee Curtis, í þessari kostulegu gaman- mynd. Hér er brugðið á leik með söguna um prinsinn og betlarann þegar farsælum og hrokafullum verð- bréfasala er skákað út í skítinn og vonleysið á götunni og betlari settur í hans stað. Tveir, gamlir, rotnir og ríkir karlar gefa skít í allt og alla, ekki síst tilfinningar annars fólks. Þeir gera með sér veðmál um að kjaftfor betlari sem Murphy leikur geti staðið sig jafn vel og þeirra besti undirmaður, Aykroyd, fái hann sama tækifæri. Þeir kippa því silurskeiðinni út úr sínum manni, gera hann að heimilislausum öreiga á auga- bragði og Murphy fær að njóta sín í vellystingunum. Auðmaðurinn spjarar sig illa í sollinum en góðu heilli verður á vegi hans vændiskona með gullhjarta (Jamie Lee Curtis) sem skýtur yfir hann skjólshúsi. Náungakærleikurinn sigrar svo að lokum þegar betlarinn og millinn komast að svikráðunum og snúa vörn í sókn þannig að allir sem það eiga skilið geti átt gleðileg jól og áramót. Betlarinn Murphy tekur sig vel út í fötum Dans Aykroyds sem á virkilega vondan dag í jólasveinabúningi. Die Hard – 1988 Leikstjóri: John McTiernan Lesendur breska kvikmyndatímaritsins Empire völdu Die Hard bestu jólamynd allra tíma fyrir nokkrum misserum. Við þann dómstól þýðir ekkert að deila og Die Hard er óumdeilanlega jólamynd þótt hún keyri á ofbeldi og hasar frekar en dæmigerðri jólastemningu. Die Hard er líka einhver allra besta spennumynd sem gerð hefur verið og hún stendur enn fyllilega fyrir sínu sem slík. Allan ársins hring en skemmtilegust er hún þó alltaf á aðventunni. Þetta er myndin sem gerði Bruce Willis að stórstjörnu en þarna er hann boðflenna, með hár á hausnum, berfættur í hlýrabol, í jóla- samkvæmi stórfyrirtækisins Nakatomi. Gleðin er haldin á skrifstofu fyrirtækisins í skýjakljúfi í Los Angeles en fær snöggan endi þegar Hans Gruber og hryðjuverkahyski hans ræðst, grátt fyrir járnum, í boðið og tekur alla boðsgesti í gíslingu. Bruce Willis gengur þó laus og gengur í skrokk á skúrkunum einum af öðrum og setur þeirra fúlu plön í uppnám. Og okkar maður er í sannkölluðu jólaskapi og eftir að hann sálgar fyrsta terroristanum skellir hann á jólasveinahúfu á líkið og skrifar á það: „Nú er ég með vélbyssu HÓ-HÓ-HÓ!“ Eftir það sjá illmennin aldrei til sólar, fá ekki milljónatuga ránsfeng í skóinn og eiga barasta ekkert von á gleði- legum jólum. „Þú ert búinn að vera óþekkur strákur, Hans, og færð ekkert í skóinn.“ Bruce Willis bjargar jólunum í bestu jólamynd allra tíma. Die Hard. Edward Scissorhands – 1990 Leikstjóri: Tim Burton Mynd Tims Burton um Játvarð klippikrumlu er undurfögur og vel til þess fallin að hreyfa við viðkvæmustu strengjunum í brjóstum fólks á aðventunni. Þetta er einhvers konar snúningur á ævintýrinu um Gosa. Gamall vísindamaður býr til strákinn Játvarð en fellur frá áður en honum auðnast að setja hendur á drenginn sem situr uppi með hrúgu af garð- klippum í stað fingra. Játvarður er einlæg og góð sál sem af miklu listfengi sker út fagra skúlptúra með klippikr- umlum sínum. Þannig heillar hann fólkið í mannheimum sem á þó eftir að snúast gegn honum og hrekja burt. Játvarður dvelur því einn og einangraður það sem eftir er, fjarri stóru ástinni sinni. Sagan öll er í raun svar aldraðrar ömmu við spurningu barnabarns hennar um hvers vegna það snjói alltaf um jól. Ástæðan er að þá tekur Játvarður sig til og sker fagra ísskúlptúra fyrir ástina sína. Þetta gerir hann af svo miklum móð og innlifun að ískurlið þyrlast yfir mannheima og fellur til jarðar. Og í þeirri snjókomu dansar hún, stúlkan sem hann elskar. Gæsahúð, tár og gleðileg jól! Johnny Depp leikur Edward Scissor- hands en Winona Ryder er stúlkan sem hann elskar en fær ekki að njóta. „Heims um ból, helg eru jól,“ gremlingarnir taka þátt í jólastemningunni á milli illvirkja. Gremlins – 1984 Leikstjóri: Joe Dante Mogwaíinn Gizmo er eitt krúttlegasta gæludýr sem sögur fara af og því kjörin jólagjöf. En þá má ekki gleyma ströngum umgengnisreglunum. Ekki fóðra dýrið eftir miðnætti, ekki láta ljós skína á það og alls, alls ekki láta það komast í snertingu við vatn. Þá er voðinn vís. Blotni Gizmo getur hann af sér ótal tannhvassa og ógeðslega púka sem eira engu. Hrella og kvelja eldri borgara og skyggja bara almennt á alla jólagleði. Þegar gremlingarnir sleppa lausir í litlum smábæ um jólin fer allt á annan endann enda jafnast árásin á að fá yfir sig þúsund Trölla í vondu jólaskapi. En það er eitthvað ómótstæðilega krúttlegt við að sjá kvikindin sveifla sér í jólaseríum, kyrja sálma í kór og gera árásir í gegnum reykháfa. Gremlins er notalegur jólahrollur í léttum dúr og að sjálfsögðu endar allt vel. 62 jólabíó Helgin 13.-15. desember 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.