Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 78
78 fjölskyldan Helgin 13.-15. desember 2013
Jól Skipulagning hátíðarinnar
E ru ekki allir búnir að ákveða jólamatinn fyrir fjölskylduna? Skipuleggja fjöl-skylduboð og hver borðar hvar, hvenær? Kaupa talsvert af jólagjöfum, jafnvel pakka þeim inn og senda af stað ef þörf krefur? Að ógleymdum jólakortunum
innanlands og utan? Þeim má reyndar bjarga á netinu þannig að – engar áhyggjur.
Jólaföt eru keypt þótt svo að íslensk þjóð sé svosem ekki á flæðiskeri stödd fatalega.
Kreditkortið svignar, pokunum fjölgar, fjölskyldan grefur upp jólaskrautið og jólatrés-
fótinn og svo þarf að þrífa dálítið.
Elsku vinkonur og vinir; þetta má allt skera niður og forðast ofneyslu og efnishyggju
því jólin koma umbúðalaus eins og Trölli uppgötvaði forðum þegar hann reyndi að stela
jólunum. Það sem fjölskyldur þurfa fremur að huga að og skipuleggja vel, er hvernig
þessi hátíð allra barna – og barnanna í okkur sjálfum – verður best framkvæmd til
að forðast streitu og spennu á heimilinu, til að forðast vonbrigði eftir alla eftirvænt-
inguna og taka fullorðinsábyrgð á pottþéttu jólaplani.
Víðtækt samráð milli allra uppeldisafla er mikilvægt á þessum ögurstundum
jólahaldsins. Foreldrar geta t.d. veitt honum Kertasníki upplýsingar um þá
barnamynd á dvd formi sem helst gæti haldið athygli barns fanginni meðan eldri
fjölskyldumeðlimir stússast á aðfangadag. Afar og ömmur eru líka afar góð til að
bjóða ungmenni til sín í rólegheit ef foreldrar þurfa að streitast ögn í undirbúningi
eða þá að börn fá að fara með fullorðnum í skemmtibílferð til ættingja og vina með
pakka og kort. Slíkt getur aldeilis stytt aðfangadaginn enda bjóða móttakendur
upp á litla hressingu eða spjall. Nú, ef umferðin er þung, er bara að syngja jólalögin
við raust og þannig eykst framleiðsla allra vellíðunarhormóna heilans all gríðar-
lega og fjölskyldan kætist.
Svo er lykilatriði að hreyfa mannskapinn á aðfangadag. Göngutúr og ferð á leik-
völlinn tekur hrollinn úr yngsta fólkinu og gerir hinum eldri líka gott. Langt jóla-
bað róar líka taugarnar og gerir börnum betur kleift að njóta kvöldsins en ella.
Það getur verið mjög klókt að elda matinn að stofni til á Þorláksmessu til að geta
sinnt börnum af kostgæfni á aðfangadag. Það er skynsamlegt að allir séu klæddir
og tilbúnir um eða upp úr fimm ef setjast skal að borði samkvæmt íslenskri hefð,
þegar útvarpið flytur landsmönnum jólaklukkurnar. Þá er gott að barn fái að opna einn
pakka eða svo, einhvern sem vitað er að getur haft ofan af fyrir viðkomandi á meðan
eldra fólkið gengur frá eftir matinn og auðvitað er búið að úthugsa hvaða pakki það er.
Ef pakkarnir er margir, þurfa uppalendur að vera búnir að plana hvort eigi að geyma
hluta af herlegheitunum þar til á jóladag – og gildir það bæði um pakka barna og full-
orðinna. Það má þess vegna dreifa þeim á nokkra daga og þar með fá allar gjafirnar
aukið vægi og athygli.
Jóladagsmorgunn er líka ógn mikilvægur í skipulaginu. Hver vaknar með yngsta
fólkinu, hvaða leikföng geta best hjálpað því að njóta morgunsins, þarf fullorðinn að
leika með og væri gott að eiga gott föndurefni til að rísla með að gamni sínu? Svo þarf að
hreyfa sig að nýju, syngja jólalögin og hitta fólkið sitt.
Og munum í öllum bænum, hátíðir, börn og áfengi, átök eða leiðindi eiga aldrei sam-
leið og þar með óska ég íslenskum barnafjölskyldum gleðilegra og vel skipulagðra jóla.
„Það sem fjölskyldur þurfa fremur að huga að og
skipuleggja vel, er hvernig þessi hátíð allra barna – og
barnanna í okkur sjálfum – verður best framkvæmd til
að forðast streitu og spennu á heimilinu...“
Pottþétt jólaplan
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
hEimur barna
Grýla mætir í Þjóðminjasafnið á laugardag
Grýla að skammast í Leppalúða. Hún
verður í Þjóðminjasafninu um helgina
með minnsta syni sínum, honum Stúf.
Jólasveinarnir koma nú við í
Þjóðminjasafninu og heilsa upp
á gesti safnsins en fyrsti jóla-
sveinninn kom þangað í gær,
fimmtudag. Þeir munu mæta
daglega, klukkan 11, fram til
jóla, syngja og skemmta sér með
yngstu gestunum. Á laugar-
dag mun Grýla slást í för með
minnsta syni sínum og að heilsa
upp á öll þægu börnin.
Á heimasíðu safnsins má
finna sérstaka jólasíðu þar sem
margskonar fróðleik um ís-
lenskt jólahald er að finna. Auk
þess hefur safnið sett þar upp
jóladagatal sem býður upp á
skemmtilegar sögur tengdar
jólahaldi sem gætu heillað yngri
kynslóðina. Hver vill til dæmis
ekki vita hvernig aðventukrans-
arnir, jólatrén og laufabrauðið
komu til Íslands? Þar getum við
fræðst um Grýlu og komist að því
að hún er af tröllakyni og getur
verið stórhættuleg börnum. Sam-
kvæmt heimildum safnsins er
Grýla þrígift kona. Fyrsti eigin-
maður hennar hét Gustur en
hún át hann. Annar maður Grýlu
var Boli og áttu þau fjölda barna
saman sem eru þó minna þekkt
en þeir 13 synir sem hún á með
núverandi manni sínum honum
Leppalúða.
Fæstir myndu vilja mæta Grýlu
á förnum vegi en hún hefur lofað
að vera góð við börnin á laugar-
dag.
Dagskráin er öllum opin og
aðgangur er ókeypis.
Halla Harðardóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Sýndu
kærleik
í verki
– allir eiga skilið gleðileg jól Kertin eru handgerð tólgarkerti framleidd
af sjálfboðaliðum til aðstoðar við heimili í neyð.
Til fyrirtækja
Gefið starfsfólki ykkar
Kærleiksljós fyrir
jólin. Kærleikskerti
Fjölskylduhjálpar íslands.
Verð 650 kr.
Pöntunarsími er 892 9603.
tekk company og habitat
kauptún 3
sími 564 4400
vefverslun á www.tekk.is
natale
jólaljósatré
verð nú 9.730 kr.
áður
13.900 kr.
30 %afsl.
natale