Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 98

Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 98
98 skák og bridge Helgin 13.-15. desember 2013  Skák OfurStórmeiStarar takaSt á í LOndOn Anand snýr aftur að taflborðinu S terkasta atskákmót ársins stendur nú sem hæst í London, þar sem margir af stigahæstu meisturum heims keppa, ásamt bestu skákmönnum Breta. Fyrst var keppendum skipt í fjóra riðla, þar sem tefld er tvöföld umferð. Tveir efstu úr hverjum riðli komast í 8-manna úrslit og þá tekur útslátt- arkeppni við. Í A-riðli teflir Vishy Anand, og á miðviku- dag settist hann í fyrsta skipti að tafli, síðan hann tapaði heimsmeistaratitlinum til Magn- usar Carlsen. Mótherji Anands var hinn geð- þekki Luke McShane, sem sjálfur er fyrr- verandi heimsmeistari barna. McShane, sem tefldi með Hróknum á árum áður varð stór- meistari 16 ára, og eitt mesta efni sem fram hefur komið í Evrópu. Hann er nú 29 ára og starfar hjá bankarisanum Goldman Sachs, þannig að þessi snillingur sést alltof sjaldan við taflborðið. McShane náði yfirburðastöðu gegn Anand, en glutraði henni niður og tap- aði eftir æsispennandi skák. Í 2. umferð lagði McShane hinsvegar rúmenska stórmeistar- ann Istratescu, meðan Anand og Michael Adams gerðu jafntefli. Í B-riðli eru rússnesku ofurmeistararnir Kramnik og Svidler, ásamt Englendingnum Sadler og Skotanum Rowson, og voru veð- bankar vitanlega á einu máli um að bresku stórmeistararnir ættu litla möguleika á að komast áfram. Kramnik sigraði Svidler í fyrstu umferð og Rowson var næstur á mat- seðlinum. C-riðill vekur sérstakan áhuga Íslendinga, því þar teflir Gawain Jones, sem er liðsmaður GM Hellis á Íslandsmóti skákfélaga. Mótið verður Jones (sem varð 26 ára á miðviku- daginn) væntanlega mikil reynsla, því þarna eru líka Boris Gelfand, sem hefur teflt um heimsmeistaratitilinn; Judit Polgar, besta skákkona sögunnar og síðast en ekki síst Hikaru Nakamura, besti skákmaður Banda- ríkjanna. Jones gerði jafntefli við Nakamura í 1. umferð, en tapaði svo fyrir Gelfand. Í D-riðli fór snillingurinn Fabiano Caruana af stað með látum, og sigraði Emil Sutovsky og Nigel Short (en allir hafa þeir teflt á Ís- landi) og er langsigurstranglegastur. Fjórði keppandinn er Englendingurinn David Ho- well, 23 ára. Hann varð stórmeistari 16 ára, yngstur allra Englendinga – sló met McSha- nes um hálft ár. Beinar útsendingar og skákskýringar eru á heimasíðu mótsins, londonchessclassic. com, og er verulega gaman að fylgjast með, enda margar æsispennandi skákir og ógn- vænlegt tímahrak. Samhliða atskákmótinu fer fram 9 um- ferða kappskákarmót þar sem tveir Íslend- ingar eru meðal 180 keppenda, Oliver Aron Jóhannesson og Guðmundur Gíslason. Nán- ar verður sagt frá frammistöðu þeirra – og úrslitum á ofurmótinu – í næstu viku. Róbert er jólasveinninn í ár Vinaskákfélagið, sem hefur aðsetur í Vin við Hverfisgötu 47, hélt sitt árlega jólaskákmót í vikunni, tíunda árið í röð. Vin er griðastaður Rauða krossins, og þar er teflt alla daga nema fimmtudaga klukkan 13 og haldin stórmót í hverjum mánuði. Það fór vel á því að „skák- ljónið“ Róbert Lagerman sigraði á mótinu, enda er hann forseti Vinaskákfélagsins og driffjöður í starfinu. Verðlaunin voru ekki af lakari sortinni, því skákljónið fékk að laun- um veislumáltíð fyrir tvo á Argentínu. Í öðru sæti varð hinn eitilharði Ingi Tandri Trausta- son, og er fyrir vikið á leiðinni í sælkæramál- tíð á Lækjarbrekku. Bronsið hreppti Stefán Bergsson, sem fór heim klyfjaður jólakon- fekti frá Nóa Síríus. Án nokkurs vafa góm- sætustu verðlaun ársins! L jósbrá Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson unnu Íslandsmótið í Butler tvímenningi sem var spilað á laugardaginn 7. desember. Þau skoruðu 68 impa og voru með nokkuð örugga for- ystu síðasta þriðjung mótsins. Þetta er annar sigur þeirra hjóna á stuttum tíma í Íslandsmóti. Stutt er síðan þau unnu sigur á Íslandsmóti í parasveitakeppni. Í 2. sæti á Íslandsmótinu í bötler voru Sigurður Vilhjálmsson og Júlíus Sigurjónsson með 46 impa og í 3ja sæti voru Gunnar Björn Helgason og Magnús Eiður Magnússon með 44 impa. Þátttakan í þessu móti var með ágætum. Alls tóku 22 pör þátt, sem er þremur pörum meira en í fyrra. Þess má geta að Ljósbrá var eina konan sem tók þátt í þessu móti en hún hélt uppi merki kvenna og lét það ekki hindra sig í að ná efsta sæti. Matthías og Ljósbrá skráðu sig til leiks á síðustu stundu. Matthías sá á keppenda- listanum, sem birtist á vefsíðu, að mótið var vel mannað flestum sterkustu spilurum landsins. Matthías og Ljósbrá ætluðu ekki að taka þátt í þessu móti, en gátu ekki látið það vera þegar þau sáu keppendalistann. Matthías Þorvaldsson og Ljósbrá Baldurs- dóttir græddu vel á þessu spili í Íslands- mótinu í bötler. Spilið er nr 13, allir á hættu og norður gjafari. Norður byrjaði á passi og Matthías í aust- ursætinu passaði sömuleiðis. Suður vakti á einum spaða, Ljósbrá sagði tvo tígla, norð- ur sagði þrjá tígla (góð hækkun í spaða) og Matthías lauk sögnum með 3 gröndum. Útspil suðurs var laufsjöa. Matthías drap drottningu norðurs á ás og raðaði niður tíg- ulslögunum sjö og henti aldrei laufi. Suður hélt öllum laufum sínum og henti smáspil- unum í hálitum, utan ásanna. Matthías setti þá rólega spaða og fékk níunda slaginn á laufatíuna. Það gaf 7 impa í plús. Jón og Sigurbjörn unnu Íslandsmót í sagnkeppni Jón Baldursson og Sigurbjörn Haraldsson unnu Íslandsmótið í sagnkeppni 2013. Þeir fengu 2440 stig af 3000 mögulegum sem jafngilti 81,5%. Í 2. sæti, aðeins 10 stigum á eftir, voru Helgi Sigurðsson og Haukur Ingason. Jafnir í 3ja sæti með 2170 stig voru Stefán Jónsson – Hermann Friðriks- son og Ragnar Magnússon – Ómar Ol- geirsson. Alls tóku 14 pör þátt og er Ant- oni Haraldssyni þakkað fyrir umsjón og skipulagningu keppninnar. Þátttakan er umtalsvert betri en á síðasta ári og vonandi er aukin aðsókn í bridgemót það sem koma skal í briddsheiminum á Íslandi. Grant Thornton í forystu í sveitakeppni BR Sveit Grant Thornton er í forystu í monrad sveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur að loknu fyrra kvöldinu af tveimur. Spilaðir eru þrír 10 spila leikir á kvöldi. Skorið er samkvæmt nýju stigareglunni og er sam- talan í uppgjöri sveita alltaf 20. Hver impi telur við uppgjörið. Í sveit Grant Thorn- ton hafa spilað bræðurnir Hrólfur og Odd- ur Hjaltasynir, Guðmundur Snorrason og Ragnar Hermannsson. Guðmundur Snorrason og Ragnar Hermannsson eru langefstir í bötlerútreikningi spilara, með 3,75 impa í plús að meðaltali í spili, meir en 2 impum meira en parið í öðru sæti. Staða fimm efstu sveita er þannig: 1. Grant Thornton 54,27 2. Lögfræðistofa Íslands 42,38 3. Hvar er Valli 35,68 4. VÍS 35,07 5. Málning 34,91  Bridge Hjónin LjóSBrá BaLdurSdóttir Og mattHíaS ÞOrvaLdSSOn Annar sigur á Íslandsmóti á stuttum tíma Æsispennandi bók sem þú leggur ekki frá þér Draumaeyjan Hermann Ingi Ragnarsson Dóttirin Hannah Shah Falleg og skemmtileg bók fyrir börn á öllum aldri Hannah Shah Dóttirin SÖNN SAGA AF FLÓTTA UNGRAR KONU ÚR KLÓM OFBELDIS OG MISNOTKUNAR H annah S hah D óttirin HANNAH SHAH ER DÓTTIR ÍMAMS – TRÚARLEIÐTOGA Í MÚSLIMSKU SAMFÉLAGI Í BRETLANDI. Í MÖRG ÁR MISNOTAÐI FAÐIR HENNAR HANA Í KJALLARA Á HEIMILI ÞEIRRA. 16 ára að aldri komst hún að því að senda ætti hana til Pakistans í nauðungarhjónaband en henni tókst að flýja að heiman. Faðir hennar varð ofsareiður og var ákveðinn í að finna hana og taka hana af lífi – heiðursmorð. Hún leyndist með því að flytja hús úr húsi. Það versta var, að áliti fjölskyldu hennar, að hún yfirgaf íslam og tók kristna trú. Margir múslimar halda því fram að það sé dauðasök. Dag nokkurn kom flokkur manna að húsinu sem hún bjó í og var faðir hennar þar fremstur. Þeir voru vopnaðir hömrum, prikum og hnífum og ætlun þeirra var að drepa hana.... Dóttirin er sönn saga, grípandi og tilfinningarík. Hönnuh tókst með hugrekki og ákveðni að flýja frá fjölskyldu sinni og samfélagi og finna nýtt líf utan þess – líf frelsis og ástar. Bók sem þú leggur ekki frá þér fyrr en að lestri loknum. SALT 9 789935 911520 ISBN 978-9935-9115-2-0 SALT DRAUMAEYJAN Draumaeyjan er sagan af Golla litla sem lifir fyrir það að leita að myndum sem stjórna draumum hans og leik. Dag nokkurn verður hann fyrir hverri trufluninni á fætur annarri sem breytir bæði lífi hans og draumum. Skemmtileg bók sem vekur börn til umhugsunar um mikilvægi þess að elska náungann. H erm ann Ingi Ragnarsson D raum aeyjan Salt Hermann Ingi Ragnarsson SALT 9 789935 911513 ISBN 978-9935-9115-1-3 Sönnsaga ÁHRIFARÍKAR BÆKUR SEM VEKJA LESENDUR TIL UMHUGSUNAR Þessi mynd er af pörunum sem höfnuðu í þremur efstu sætunum á Íslandsmótinu í bötler. Frá vinstri eru Sigurður Vilhjálmsson – Júlíus Sigurjónsson sem höfnuðu í öðru sæti, Ljósbrá Baldursdóttir – Matthías Þorvaldsson Íslands- meistarar og Gunnar Björn Helgason – Magnús Magnússon sem höfnuðu í þriðja sæti. Mynd/ Aðalsteinn Jörgensen ♠ D85 ♥ DG963 ♦ 3 ♣ D654 ♠ Á9643 ♥ Á5 ♦ 72 ♣ KG87 ♠ 102 ♥ K108 ♦ ÁKG10864 ♣ 9 ♠ KG7 ♥ 742 ♦ D95 ♣ Á1032 N S V A Anand tapaði heimsmeistaratitlinum í síðasta mánuði en hefur nú snúið aftur að taflborðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.