Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 112
Landsins mesta úrval
af sófasettum
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
AFSLÁTTUR AF VÖLDUM
VÖRUM TIL JÓLA
Rín
Río
30%
Allt a
ð
Valencia
TILBOÐ
Roma
E ins og kunnugt er dóu goðsagnir og trúar-brögð ekki þegar Friedrich Nietzsche lýsti yfir andláti Guðs. Þvert á móti. Dauði Guðs er ekki fullnaðarsigur skynsemi og vísinda yfir
hindurvitnum og óskhyggju; heldur fremur einskonar
valdarán. Guð þessi hafði einokað andlega sviðið að
miklu leyti um nokkrar aldir; formgert trúarþörf mann-
skepnunnar og stjórnað vöru- og þjónustuframboðinu.
Þegar veldi hans brast og laskaðist á þar síðustu öld;
svo mikið að Nietzsche gaf út dánarvottorð; sköpuðust
ómæld tækifæri til að beisla trúarþörf mannskepnunn-
ar til þjónustu við önnur fyrirbrigði en Guð. Eða aðra
guði; ef fólk vil orða það þannig. Þjóðríkið og þjóðernis-
hyggjan náði mestu af þessu undir sig og endurbyggði
í raun kirkju Guðs í eigin nafni með sínum þjóðernis-
sálmum, sköpunarsögu þjóða og eigin lögmálum,
fagnaðarerindum og goðsögnum.
Hér er ekki tilefni til að rifja upp goðsöguna um
okkur Íslendinga; hvernig við spruttum fram alskap-
aðir kyndilberar frelsisins úr norskum fjörðum (eins og
viskan úr höfði Seifs); hvernig við misstum sjálfstæði
okkar vegna sundrungar en endurheimtum það aftur
þegar við lærðum á ný að elska landið, tunguna og
söguna (einkum Sögurnar); og hvernig við nýttum ný-
fengið sjálfstæði til að brjótast út úr moldarkofunum og
urðum þjóð meðal þjóða; úr örbirgð til allsnægta á áður
ókunnum hraða; nýju heimsmeti. Og bárum af öðrum
á flestum sviðum. Sérstaklega þegar tekið er tillit til
höfðatölu; einkum í handbolta, fiskveiðum og á öðrum
sviðum þar sem gott er hrópa: Kommaso.
Íslenska goðsögnin er eiginlega þessi: Safnaðu hópi
Íslendinga saman og láttu þá hrópa „kommaso“; og þá
eru þeim allir vegir færir. Þetta var gert í vestfjörðum
Noregs 874 og gekk vel; var endurtekið í Breiðafirði
985 og við námum Grænland; árið 1000 sagði einhver
„kommaso“ á Grænlandi og við fundum Ameríku. Og
svo koll af kolli. Við borguðum síðast fyrir Icesave með
kommaso. Og erum að endurreisa heimilin og milli-
stéttina með kommaso.
En ég ætla ekki að fjalla um goðsögnina um Ísland
heldur goðsögnina um þetta síðast nefnda fyrirbrigði;
millistéttina.
Tilbiðjum snjóbolta
En fyrst þurfum við að rifja upp goðsagnirnar um stétt-
irnar sem mótuðu samfélagið áður en millistéttin gerð-
ist þungamiðja alls; verkalýðinn og kapítalistana.
Sagan kennir okkur að menn á borð við Thor Jensen
og Pétur J. Thorsteinsson hafi komið með iðnbylt-
inguna til Íslands; þeir vélvæddu útgerðina, fundu
markaði fyrir íslenskar sjávarafurðir og sköpuðu
þannig gjaldeyristekjur sem færðu samfélagið að nú-
tímanum, sem það hafði algjörlega farið á mis við.
Þessum frumkvöðlum var launuð hugkvæmni sín og
kjarkur með ómældum auði; sem aftur gaf þeim þrótt
til að standa fyrir alskyns atvinnuuppbyggingu víða um
land og færði þeim margháttuð ítök í samfélaginu.
Auðvitað leið sagan ekki eftir þessum þræði. Þeir
Thor, Pétur og önnur Þríhross gripu vissulega tæki-
færin sem aðrir létu fram hjá sér fara eða gátu ekki
hreppt og þeir auðguðust mjög. En auður þeirra byggði
fyrst og fremst á fáránlega lágum launum verkafólks
(ástand sem vanalega varir fyrstu hálfa öldina frá því
að stórkostlegir fólksflutningar úr sveit í borg hefjast)
og hindrunarlausum og ókeypis aðgangi að auðlindum
(sem er líka oftast tímabundið ástand; þótt það vari
yfirleitt lengur en smánarlaunin). Þríhrossin okkar
eru týpískir kapítalistar á mörkum nýlendutíma; inn-
lendir menn sem auðgast hratt og mikið af misnotkun
á vinnuafli meðbræðra sinna og -systra og með því að
hrifsa til sín auðlindir lands og sjávar.
Auður hefur síðan sömu náttúru og snjóbolti á leið
niður brekku. Auður safnar utan á sig enn meiri auði
án erfiðis. Þetta á sérstaklega við um smá samfélag.
Þar getur verið nóg fyrir mann að koma vel undir sig
fótunum í einni atvinnugrein og smátt og smátt munu
bankar og lánastofnanir færa þér önnur fyrirtæki í
öðrum greinum. Þeir hafa lánstraust sem eiga eitthvað
fyrir og tilheyra hópi hinna velsettu og viðurkenndu.
Þannig getur útgerðarmaður fljótlega náð undirtökum
í tryggingarfélagi, banka, flutningafyrirtæki, fjölmiðli,
stjórnmálaflokki og svo framvegis. Að endimörkum
samfélagsins.
Við getum hlegið af goðsögnum Norður-Kóreu um
hvernig þeir feðgar Kim Il-sung, Kim Jong-il og Kim
Jong-un hafa fært landsmönnum veröldina og allt sem
í henni er. En þessi goðsögn er ósköp lík goðsögnum
kapítalismans um framlag hinna ríku og voldugu til
samfélagsins; hvernig við værum enn týnd í forneskju
ef ekki hefði verið fyrir dugnað, framsýni og elju þess-
ara manna. Eins og með goðsögn Norður Kóreu er
þetta bölvað kjaftæði. Ísland færðist frá oki innilokaðs
og staðnaðs bændasamfélags (það er; samfélag þar
sem vinnufólk bar bændurna) í átt að nútíma iðnaðar-
og þjónustusamfélagi á herðum verkafólks sem þrælaði
á síldarplönum og um borð í fiskiskipum fyrir skamm-
arlega lág laun. Ísland dagsins í dag var byggt upp með
svita þessa fólks; þreytu og erfiði; en ekki hugkvæmni
þeirra sem auðguðust á að misnota þetta fólk.
Þótt goðsaga kapítalismans sé hlægilega heimskuleg
þá lifir hún enn. Núverandi stjórnarflokkar halda því
til dæmis fram að það sé ekki fiskurinn í sjónum, sjó-
mennirnir sem veiða hann eða verkafólkið sem vinnur
fiskinn sem séu undirstöður sjávarútvegs á Íslandi
heldur útgerðarfyrirtæki. Til að efla sjávarútveg þurfi
fyrst að efla útgerðarmennina! Þetta er álíka speki og
bæta megi lífsgæði þræla með því að gefa þrælahaldar-
anum vindil.
Ris og fall millistéttaRinnaR
Þekkingarblekkingin
Til skilja betur hvernig það gat gerst að framkvæmdastjóri hlutafélags svo gott sem lagði niður
eina elstu, virtustu og vinsælustu menningarstofnun landsins; Rás eitt Ríkisútvarpsins; til að átta
okkur á þessum ósköpum þurfum við að rifja upp þróun samfélagshugmynda á síðustu áratug-
um. Ekki síst óskhyggjuna um að leysa mætti öll stéttaátök með því að færa allt fólk í millistétt,
niðurbrot hugsjóna um almannaþjónustu og skuldsettan lífsstíl fólks sem vildi byggja sér upp
sjálfstæði á skuldum sínum.
Framhald á næstu opnu
Trú okkar á hæfni og getu hinna ríku og voldugu og þær gjafir sem þeir færa samfélaginu er ósköp lík þjóðtrú Norður-Kóreu um
að allt gott eigi uppruna sinn hjá valdamönnum.
17.600 kr.
16.500 kr. stgr.
112 samtíminn Helgin 13.-15. desember 2013