Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 38
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
Caddy* kostar aðeins frá
2.950.000 kr.
(kr. 2.350.597 án vsk)
*Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Til afgreiðslu strax
Atvinnubílar
Fæst einnig
fjórhjóladrifinn
Við vorum samt ekki viss og fullyrtum það
aldrei en ég setti mig í samband við fjölskylduna
á Íslandi og lét þau vita að við héldum að hann
hefði líklega drepið hana. Vegna þess að hann
var vel fær um það og hafði reynt að drepa okkur
í þrígang,“ segir Melissa en í bók sinni segir
hún frá atvikum þar sem hún er viss um að faðir
þeirra hafi ætlað að koma fjölskyldunni fyrir katt-
arnef. Meðal annars í bílslysi og síðar sjóslysi.
Missti börnin á flóttanum
„Allt sem við lásum um mál Estherar passaði
við ofbeldishneigð hans og það sem við vissum
af eigin raun um að hann væri fær um að gera.
Ég sökkti mér á kaf í mál Estherar og ákvað að
skrifa bókina og gefa hana út í Bandaríkjunum
í þeirri von um að bókin myndi hjálpa okkur að
finna Esther.
Ég var viss um að það hlyti einhver að vera
þarna úti sem vissi eitthvað um afdrif hennar.
Ég þurfti líka sjálf að komast að því hvað gerðist
og vonaðist til þess að við myndum finna Esther
og ég gæti fengið staðfestingu fyrir því að faðir
minn væri ekki morðingi. Ég vissi að hann var
óþverri sem var fær um ýmislegt en vonaði samt
að hann hefði ekki drepið hana. Það er meira en
að segja það að sætta sig við að faðir manns sé
morðingi.“
Melissa segir frá ævintýralegum flótta Esther-
ar með börnin sín tvö, Raymond og Donitu, frá
bóndabæ Gavin-fólksins. Þegar Ester gafst upp á
ofbeldi eiginmannsins var Raymond fjögurra ára
en Donita aðeins þrettán mánaða.
„Hún fór með börnin en pabbi fann hana
og barði hana svo illa að hún þurfti að liggja á
sjúkrahúsi í tvær vikur. Hún gat auðvitað ekki
hugsað um börnin á meðan og þeim var komið
fyrir á Waverly-barnaheimilinu í Portland og þar
var hugsað um þau þangað til hún komst á fætur.
Hún heimsótti þau síðan vikulega og greiddi með
þeim mánaðarlega en henni tókst ekki að endur-
heimta þau. Það var allt á móti henni. Hún var
peningalaus, kunni litla ensku og var lemstruð
og illa á sig komin auk þess sem yfirvöld voru
henni mjög mótdræg. Og þegar hún hvarf voru
börnin gefin til ættleiðingar og fengu ný nöfn, Ro-
bert og Debra Allen. Allen-fólkið vildi síðan skila
Debru seinna vegna þess að hún gekk ekki heil
til skógar. Allen-fjölskyldan fór í mál við ríkið út
af þessu og þetta varð heilmikið og áberandi mál
á sínum tíma.“
Konan sem hvarf
Melissa segir að móðursystir sín hafi sagt sér
frá því að þegar Larry og Patsy, móðir hennar,
voru nýgift hafi Patsy svarað símanum á heimili
þeirra. Á línunni var kona sem sagðist heita Est-
her og væri fyrsta eiginkona Larrys. Hún grátbað
þau um að láta sig fá peninga svo hún gæti fengið
börnin sín tvö laus af barnaheimilinu. Þegar
Patsy bar Larry skilaboðin varð hann óður og
Esther með bros á vör á brúnni yfir Öxará á Þingvöllum.
Áratugaleit
að Esther
Árið 1946 hélt Ragna Esther
Sigurðardóttir til Bandaríkjanna
ásamt eiginmanni sínum, Emer-
son Lawrence Gavin. Þau höfðu
kynnst þegar Gavin gegndi her-
þjónustu á Íslandi.
Fljótlega eftir að Ragna Esther
fluttist til heimaborgar eigin-
mannsins, Portland í Oregon-ríki,
rofnaði samband hennar við fjöl-
skylduna á Íslandi. Hún eignað-
ist tvö börn með manni sínum
og fjölskyldan hér heima hafði
miklar áhyggjur, enda töldu þau
sig hafa ástæðu til þess að óttast
að Larry færi illa með konu sína
og beitti hana jafnvel ofbeldi.
Upp úr 1950 hvarf Ragna
Esther sporlaust, sem og börnin
hennar tvö. Ættingjar hennar á
Íslandi gerðu margar tilraunir til
þess að komast að því hvað varð
um Esther en lengi vel var öll
eftirgrennslan árangurslaus.
Aukin kraftur færðist í leitina
fyrir fáum árum og fjölskyldan
komst í samband við Melissu
Gavin sem glímdi við mjög erf-
iðar minningar um föður sinn og í
ljós kom að Larry var miklu verri
hrotti en nokkurn á Íslandi hafði
órað fyrir.
Melissa Gavin fékk hlýjar
móttökur hjá fjölskyldu
Rögnu Estherar þegar hún
kom til landsins á sunnu-
daginn. „Við borðuðum
saman kvöldmat og það var
frábært. Ég kom með mynd-
band af Raymond, bróður
mínum, syni Estherar sem
hann gerði fyrir þau. Þetta
var góð stund og þau eru
yndisleg. Fjölskyldan fór
síðan með Melissu á hestbak
en hún var mjög spennt að
komast í tæri við íslenska
hestinn sem minnir helst á
smáhest í samanburði við
arabísku hestana sem hún á
heima í Bandaríkjunum.
Framhald á næstu opnu
38 úttekt Helgin 7.-9. september 2012