Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 92
Saga Garðarsdóttir á
1.055 vini á Facebook. Hún
tók sér mánaðarfrí frá
Facebook í sumar og fór
fyrir vikið fyrr að sofa á
kvöldin. Ljósmynd/Hari
Í takt við tÍmann Saga garðarSdóttir leikkona
iPhone er besti vinur minn og sálusorgari
Saga Garðarsdóttir er 25 ára nýútskrifuð leikkona sem vinnur þessa stundina að fyrirlestri
um heilann sem hún fékk Rannís-styrk til að gera ásamt vinkonu sinni. Framundan er svo
frumsýning á Ráðskonuríki með Alþýðuóperunni og eftir áramót fer hún að leika í Þjóðleikhúsinu.
Staðalbúnaður
Ég á eiginlega aldrei neina peninga og
kaupi þar af leiðandi ekki mikið af
fötum. Ég er svo lukkuleg að ég á
hæfileikaríka vinkonu sem prjón-
ar á mig allt sem ég fæ ekki
gefins frá ríkum karlmönn-
um. Ef ég ætti hins vegar
peninga myndi ég kaupa
allt í Líber sem er ástríkasta
búðin í bænum. Ég er mjög skotin
í litum og langar iðulega að klæða
mig þannig að ef ég væri í stríði þá væri
ég skotin fyrst. Ég er ekki með bílpróf
og ferðast því eiginlega alltaf um á hjóli.
Nema þegar ég þarf að komast lengra en
til Hellu, þá þarf ég að treysta á vel gefna
vini og kunningja.
Hugbúnaður
Ég fer mikið í leikhús, í Óperuna og á
aðra hámenningarviðburði. Ég gubba ef
ég kemst í tæri við lágmenningu. Söfn
höfða mjög til mín enda nýt ég mín best
innan um átjándu aldar list – hún dregur
fram það besta í mínu fari. Stundum fer
ég í bíó með miðaldra móður minni og
þá förum við alltaf í Bíó Paradís. Annars
lyfti ég mjög þungum lóðum og hjálpa
gömlum konum yfir götur. Ég er félagi
í bindindisfélaginu Æskunni og við
skemmtum okkur aðallega heima fyrir.
En stundum fer ég í afmæli – það finnst
mér gaman.
Vélbúnaður
Sko, ég hef alltaf verið algjör vanviti með
tæki og er eiginlega hrædd við rafmagn.
Ég fékk gefins gamla PC-tölvu í stúd-
entsgjöf sem ég nota grimmt. Í fyrra-
sumar, þegar ég vann á auglýsingaskrif-
stofu, var ég lögð í einelti af aggressívu
eplatölvuliði sem var alltaf að senda mér
flókna fæla sem tölvan mín réð ekki við.
Hins vegar á ég ótrúlega fallegan og gáf-
aðan snjallsíma, iPhone. Hann er bæði
besti vinur minn og sálusorgari. Með
honum Instagrammaði ég mig aftur inn
í félagslífið. Ég var nefnilega svo virk
á Facebook að ég þurfti að taka mér
mánaðarfrí í sumar, svona detox-frí. Það
er frábært að taka sér frí frá Facebook
ef þú vilt missa af atvinnutækifærum
og fleiru en rækta samskipti þín við
nærhópinn og fara fyrr að sofa. Maður
hættir samt ekkert að vera á netinu þó
maður taki sér svona frí, ég gúgglaði
bara meira, gúgglaði mig í gegnum
erfiðustu stundirnar.
Aukabúnaður
Ég fór til Parísar í sumar og fann mig.
Uppáhaldsstaðurinn minn er á sviði, öll
sviðin. Áhugamál mín eru að drekka te
með foreldrum mínum og vera í kjör-
þyngd en uppáhaldsmaturinn minn
er súkkulaðitruflur. Ég reyni að fara á
dýrasta staðinn hverja stundina þegar
ég fer út. Perlan er í miklu uppáhaldi hjá
mér og prinsessunum mínum. Ég nota
ekki snyrtivörur en ég nota rakakrem.
Og vatn og ég fer stundum í bað.
76 dægurmál Helgin 7.-9. september 2012
danS Un Women námSkeið Í BaðhúSinU
Fjölbreytt fjögurra
vikna dansnámskeið
„Við erum að koma þessari hátíð af stað núna í fyrsta skipti en
vonandi verður þetta árlegur viðburður hér eftir,“ segir Álfheiður
Anna Pétursdóttir, verkefnastýra hjá UN Women á Íslandi.
Álfheiður skipuleggur Danshátíð UN Women sem hefst í Bað-
húsinu á þriðjudaginn, 11. september. Kenndir verða fjórir dans-
stílar á fjórum vikum og sjá reyndir danskennarar um að skóla
stelpurnar til. Útvarpskonan Margrét Erla Maack kennir Bollywo-
od, Þórdís Nadia Semichat kennir magadans, Kristín Bergsdóttir
kennir samba og Álfheiður Anna kennir sjálf afró.
„Ég hef verið að vinna sem danskennari og þekki mikið af fólki
í dansheiminum. Mig langaði að sameina það vinnu minni hjá UN
Women,“ segir Álfheiður Anna sem lætur það ekki stoppa sig að
vera komin átta mánuði á leið á meðgöngu.
Markmið danshátíðarinnar er að vekja athygli á alþjóðlegum
dansi og menningu sem á sívaxandi vinsældum að fagna á Íslandi
og kynna þau lönd og svæði þangað sem dansstílarnir eiga rætur
sínar að rekja. „Dansstílarnir sem við kennum hafa tengingu við
þau lönd þar sem UN Women hefur verið að styrkja verkefni; Bol-
lywood við verkefni á Indlandi, magadansinn við verkefni í Egypta-
landi, samba við Brasilíu og afróið við ýmis verkefni í Afríku.“
Kynningarkvöld fyrir danshátíðina verður á Café Haiti á sunnu-
dagskvöld klukkan 20.30. Skráning á danshátíðina fer fram í
gegnum netfangið alfheidur@unwomen.is og í símum 552-6200 og
698-0181. Fullt verð á námskeiðið er 18.900 krónur en námsmönn-
um og viðskiptavinum Baðhússins býðst 20 prósent afsláttur. Tveir
danstímar verða á viku í fjórar vikur, auk lokahátíðar.
Danshátíðin er bara fyrir konur en Álfheiður vonast til að karlar
fái að vera með í framtíðinni. „Við vonum að þetta sé bara byrjunin
á langtímaverkefni. Það er möguleiki að á næstu árum verði boðið
upp á dansstíla sem höfða meira til karlmanna.“
Kristín Bergsdóttir, Álfheiður Anna,
Margrét Erla og Þórdís Nadía kenna á
Dansveislu Un Women. Ljósmynd/Hari