Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 48

Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 48
María Loftsdóttir, sjúkraliði á Vogi, opnar myndlistarsýningu í Von, Efstaleiti 7, í byrjun október. Þar mun María sýna afrakstur hug- myndar sem fæddist á Vogi: „Þannig er að sumir sjúklinganna gefa okkur blóm þegar þeir fara eða færa okkur blóm á edrúdaginn sinn. Ég byrjaði að skissa upp sum þessara blóma og taka myndir af þeim og út frá því þróaðist þessi málverkasýning sem ég kalla Batablómin ykkar,“ segir María sem hefur starfað ein tuttugu ár á Vogi. „Það er skemmtilegt að vinna á Vogi en jafnframt krefjandi og því er mjög gott að geta farið í eitthvað ann- að, málað og gleymt stað og stund. Í svona starfi þarf maður að vera í jafnvægi og það hjálpar mér að mála enda bæta litir mann og svo er þetta mjög gaman,“ heldur María áfram en allur ágóði vegna sölu á myndunum rennur óskertur til SÁÁ. María er enginn nýgræðingur þeg- ar kemur að málverkasýningum en fyrir tveimur árum hélt hún sýningu sem nefndist frá Konu til kvenna og vakti mikla lukku. Þá sýndi hún einar 400 myndir sem hún hengdi upp á trampólín og þær seldust eins og heitar lummur. „Þá seldust myndir fyrir tæpa milljón og allur ágóðinn rann í styrktarsjóð SÁÁ. Í þetta sinn verð ég með 35 vatnslitamyndir í allskyns stærðum sem ég læt ramma inn og geri svolítið flottar,“ segir María með pensilinn í hendi. Í fyrra stóðum við í UNG-SÁÁ fyrir frábærri skíðaferð, river-rafting, tónleikum og uppistandi og mörgu öðru,“ segir Helena Hrund, nemi við HR og formaður UNG-SÁÁ, en stjórn félagsins hittist aðra hvora viku í Edrúhöllinni í Von, Efstaleiti, og það eru allir velkomnir á fundina. Þá er oft boðið upp á kökur og auðvitað kaffi og tekið þátt í skipuleggja félagslíf ungs edrúfólks. Skemmtilegt að vera edrú „Það er mikilvægt að halda uppi félagslífi ungs edrúfólks,“ segir Helena en meðlimum félagsins hefur fjölgað jafnt og þétt. Hópurinn er ánægður með veturinn í fyrra og þarf auðvitað á nýjum fé- lögum að halda til að geta gert enn betur í vetur. „Það er gaman að taka þátt og efla félagslífið og að taka á móti ungu fólki sem er að koma úr með- ferð og sýna því að það er ótrúlega skemmtilegt að vera edrú,“ heldur Helena áfram. Því fleiri því betra Nú er hópurinn farinn að hittast aftur eftir sumarfrí og er með ýmislegt á prjónunum: „Við erum að setja upp gróft plan fyrir árið og meðal þess sem okkur langar að gera er að setja á stofn UNG-SÁÁ á Akureyri og vera í samstarfi við þau Lífið byrjar fyrst þegar maður verður edrú NAFN: Haukur Rúnar Færseth ALDUR: 23 STARF: Handflakari EDRÚDAGUR: 4. mars 2011 NAFN: Björgvin Pétur Sigurðarson ALDUR: 22 STARF: Hönnuður hjá Morgunblaðinu EDRÚDAGUR: 15.ágúst 2011 NAFN: Eva Árnadóttir ALDUR: 27 STARF: Nemi EDRÚDAGUR: 9. desember 2003 MARíA LoFTSDóTTiR, SjÚkRALiði Á VoGi, HELDUR MÁLVERkASýNiNGU TiL STyRkTAR SÁÁ: Málaði myndir af edrúblómum s HVAð: Málverkasýning P HVAR: Von, Efstaleiti 7 æ HVENÆR: 6. október frá kl. 14–18 m FyRiR HVERN: Allir velkomnir L NÁNAR: www.saa.is Blóm eru efst á baugi hjá Maríu. UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppákomum og hvetur ungt fólk, sem er yngra en 35 ára, til að koma og kynna sér starfsemina og móta hana til framtíðar. s HVAð: UNG-SÁÁ P HVAR: Von, Efstaleiti 7 æ HVENÆR: 20.00 annað hvert þriðjudagskvöld m FyRiR HVERN: Fyrir ungt fólk (undir 35 ára) L NÁNAR: www.saa.is þegar kemur að félagslífi ungs edrú fólks. Svo munum við vera með allavega tvo viðburði hérna í Von og einnig stefnum við á einhverja ferð fyrir áramótin, en ferðirnar í fyrra heppnuðust mjög vel og það var góð þátttaka,” segir Helena sem bendir áhugasömum á að hafa samband í gegnum Facebook eða að hringja í SÁÁ. Jafningjar Að sögn Helenu og hennar fólks getur verið erfitt að fóta sig fyrst eftir að fólk verður edrú. Þá er gott að koma og hengja sig á þá sem lengur hafa stundað þennan nýja lífstíl. „Margir halda að allt sé svo ömurlegt þegar þeir hætta að drekka en það er alls ekki þannig. Hér „bondum“ við öll við það að vera edrú og við eigum öll heima hérna og svo erum við öll mjög skemmtileg,“ útskýrir Sigrún Emma Björnsdóttir, ein úr hópnum, og þau hin taka undir það. „Það skapast einhver einkennilegur andi, það er enginn yfir neinn hafinn. Það er alveg sama hvað fólk hefur gert í fortíðinni, öll samskipti eru á jafningja grundvelli,“ segir Sigurþór Jónsson og Eva Árnadóttir ítrekar að þau vilji sýna fram á hvað það sé frábært að vera edrú: „UNG-SÁÁ er nýtt félag og sífellt að þróa starfið og við erum að fikra okkur áfram með hvernig ná skal til unga fólksins, en þetta er gríðarlega skemmtilegt, enda frábær vinahópur,“ segir Eva. 8 SEPTEMBER 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.