Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 75

Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 75
VÍSINDALEG FRAMÞRÓUN Extra-Firming Day Rannsóknir Clarins hafa leitt í ljós það sem til þarf til þess að viðhalda stinnri húð. Nýja Extra-Firming dagkremið er eina kremið frá Clarins sem er stút- fullt af þykkni úr jurtum sem byggja upp og styrkja þéttleika húðarinnar.* Andlitshúðin verður stinnari og hrukkur minna sjáanlegar. Haltu yfirbragði húðarinnar stinnu. Minnkaðu línur. Sjáðu af hverju eitt er selt á 8 sekúndna fresti í heiminum.** Clarins er frumkvöðull til árangurs og í 1.sæti þegar kemur að lúxushúðsnyrtivörum á Evrópumarkaði.*** *Ex vivo próf. **Samkvæmt sölutölum, allra vara í Extra Firming línunni. ***Heimild: European Forecasts. Stinnari húð þökk sé Clarins Syngur á tískuvikunni í New York Ritstýra japanska tískutímaritsins Vogue, Anna Dello Russo sem hefur titlað sjálfa sig sem Lady Gaga tískuheimisins, mun frumflytja nýtt lag á tískuvikunni í New York, í tilefni nýrrar skartgripalínu sem hún hefur hannað fyrir sænska tískurisann H&M. Lagið sem fjallar um skart- gripalínuna heitir Fashion Shower og mun frumlegt tónlistarmyndband fylgja með. Það var tekið af frægu tískuljósmyndurunum Mert Alas og Marcus Piggot. Þetta er í fyrsta sinn sem Anna reynir fyrir sér í söng og verður fróðlegt að fylgjast með hvort hún taki þetta sem aukastarf samhliða ritstjórnarstörfum og skargripa- hönnun. Iris Apfel á hvíta tjaldið Kvikmynd um níræðu tískudrottn- inguna Irish Apfel er væntanleg síðar á árinu og fjallar hún mest um áhrif hennar á tísku síðustu áratuga. Iris hefur verið gríðarlega áberandi í tískuheiminum gegnum tíðina og bara á þessu ári hannaði hún litríka snyrti- vörulínu fyrir Mac, hóf samstarf við hátískuskóhönnuðinn Jimmi Choo og hefur verið gestaritstýra tímaritsins Rookie, svo fátt eitt sé nefnt. Það verður því eflaust spennandi að fá að fylgjast með ævi þessarar áhugaverðu konu, sem hefur haft svo mikil áhrif í tískuheiminum, í væntanlegri kvikmynd. Börnin gera miklar tískukröfur Níræð tískudrottning, Iris Apfel. tíska 59 Börn Nicole Richie segja hug sinn þegar kemur að klæðaburði móðurinnar. Fyrrum raunveruleikastjarnan og nú fatahönnuðurinn Nicole Richie segir börn sín tvö vera kröfuhörðust þegar kemur að fatavali. Nicole, sem er þekkt fyrir að vera mikil tískudrottning, finnst erfitt að standast þær ströngu kröfur sem börnin hennar, Harlow og Spar- row, gera til hennar. „Fjögurra ára dóttir mín er mjög erfið við mig og er ófeimin að segja sínar skoðanir. Um daginn spurði hún mig hvort ég þyrfti endilega að fara út í náttfötunum, þegar ég var í doppóttum buxum frá hátískumerkinu Chanel. Hún á eflaust eftir að verða mikil tískukona í framtíðinni.“ Helgin 7.-9. september 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.