Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 54
Foreldra-
fundur á
Vogi
Á þriðjudögum klukkan
18.15 er foreldrafundur
á Vogi. Allir foreldrar
sem eiga börn í vanda
vegna neyslu áfengis- og
vímuefna eru velkomnir
á þennan fund. Bæði
þeir foreldrar sem eiga
unglinga sem hafa verið
í meðferð hjá SÁÁ en
einnig þeir foreldrar
sem hafa grun um að
unglingurinn sé í neyslu.
Foreldrafræðslan byggist
á fyrirlestrum um þau
vímuefni sem unglingar
nota og áhrif þeirra,
bataþróun hjá unglingum
og íhlutun, vímuefna-
meðferð unglinga, vanda
foreldra og þjónustu SÁÁ,
göngudeild og endurhæf-
ingu SÁÁ og eftirmeð-
ferðarheimilin. Í kjölfar
fræðslunnar er í boði að
vera í stuðningshópi.
Þegar unglingar eru í neyslu þá er það því miður oft þannig að þeir vilja ekki
hætta þegar við viljum að þeir geri
það,“ segir Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir á Vogi, og
bætir því við að það
eigi jú við fleiri en
bara unglinga. „En
varðandi unglingana
er þetta spurning um
inngrip og íhlutun.
Það þarf að hafa vit
fyrir ungmenninu
og reyna að koma
því í meðferð. Þetta
er auðvitað snúið ef
unglingurinn neitar.“
Þórarinn segir að
þá sé mikilvægast
fyrir foreldra
og aðstandendur að leita sér
upplýsinga. Það fólk sem skapar
umhverfi unglingsins hefur mest
áhrif en það eru aðstandendur,
ættingjar og vinir: „Það þarf
að upplýsa þetta fólk um vanda
fíkilsins, hvernig fíkillinn hefur
áhrif á allt umhverfi sitt og fá
aðstandendur til að bregðast
öðruvísi við unglingnum og hans
vanda.“
Fullt af fræðslu
„Þegar koma þarf unglingi í
meðferð er oft spurt; hvað getið
þið gert? En það er mjög
erfitt fyrir þá sem að meðferð
standa að gera nokkuð fyrr en
að þeir sem standa unglingum
næst koma að málinu. Það
þurfa allir að átta sig á því
hvernig bregðast skal við
og því er fræðslan svona
mikilvæg. Það er hægt að fá
hana í fjölskyldumeðferðinni
og unglingameðferðinni og
það er hægt að koma til SÁÁ
og fá þessa fræðslu án nokkurra
skilyrða. En þetta hefst allt á því
að fólk leitar sér upplýsinga og
fræðslu, fer að sjá vandann í nýju
ljósi og það mun leiða til þess að
aðstandendur munu hegða sér
öðruvísi við unglinginn sem leiðir
á endanum til þess að hann fer í
meðferð.“
Þetta hefst á endanum
Tölur um meðferð unglinga
gefa góða raun en erfiðara
er að meta árangurinn af
svona inngripsstarfi. „Það er
helst hægt að meta það frá
því hvað fólk segir við mann.
Aðstandendur sem nýta sér
þessa fræðslu og úrræði segja
okkur að þeim fari að líða
miklu betur sem er mikill
ávinningur útaf fyrir sig og
við erum þess fullviss að þetta
flýtir fyrir því að unglingurinn
fer í meðferð. Ef þeir fullorðnu
taka þátt í starfinu, koma
á fjölskyldunámskeið,
kynningafundinn,
foreldrafræðsluna og í
foreldrahópana þá hefst þetta á
nokkrum misserum. Það er ekki
rétt að ekkert sé hægt að gera
ef unglingurinn vill ekki fara í
meðferð, það er oft lítið hægt að
gera við fíkilinn í bili, en þeir
sem standa honum næst geta
fræðst, breytt viðhorfum sínum
og hegðun. Stefnan er auðvitað
sú að koma honum í meðferð og
með því að bregðast svona við þá
náum við þeim markmiðum.“
s HVAÐ: Foreldrafræðsla
P HVAR: Vogur, Stórhöfða 45
æ HVENÆR: Þriðjudagar kl: 18.15
m FYRIR HVERN: Foreldra ungmenna í vanda
L NÁNAR: www.saa.is
Starfsemi Göngu- og
fjölskyldudeildar SÁÁ í Von
og á Akureyri er nú komin á
fullan skrið eftir sumarlokanir.
Vetrardagskráin er með svipuðu
sniði og síðastliðinn vetur. Úrræði
í göngu- og fjölskyldudeildum SÁÁ
eru mismunandi og hægt að skipta
þeim upp á ýmsa vegu. Almennt
má skipta þeim upp í þjónustu við
alkóhólista og fíkla annars vegar
og þjónustu við aðstandendur
alkóhólista og fíkla hins vegar.
Þau úrræði sem nú eru rekin í
deildunum eru:
Viðtöl
- viðtöl við áfengis- og
vímuefnaráðgjafa
- viðtöl við fjölskylduráðgjafa
- viðtöl við lækni – fyrir báða hópa
- viðtal við sálfræðing – fyrir
báða hópa, en sérstaklega börn
alkóhólista.
Auk þess reka göngudeildirnar
hina ýmsu stuðningshópa við
alkóhólista og fíkla og fjölskyldur
þeirra. Sem dæmi má nefna
Heldrimannaklúbb þeirra karla
sem hafa verið í meðferð á Vík,
Staðarfells hópinn, Grettistakið (í
samvinnu við Reykjavíkurborg),
Helgarmeðferðir, Unglingameð-
ferð, Fjölskyldumeðferð og svo
mætti lengi fram telja. Nánari
upplýsingar um meðferðarstarfið
er hægt að finna á heimasíðu sam-
takanna www.saa.is og síminn hjá
SÁÁ er 530 7600.
Vetrardagskráin komin á fullan skrið
Anna Hildur Guðmundsdóttir, deildarstjóri göngu-
deildar SÁÁ á Akureyri. Þar er vetrardagskráin
komin á fullan skrið eins og reyndar í Reykjavík.
ÞóRARINN TYRFINgssoN, YFIRlÆkNIR Á VogI, sEgIR mIkIlVÆgAsT FYRIR FoREldRA og
AÐsTANdENduR AÐ AFlA séR ÞEkkINgAR sé uNgmENNI í NEYslu. ÞAÐ ER AllTAF VoN og mARgT
HÆgT AÐ gERA ÞóTT uNglINguRINN NEITI AÐ FARA í mEÐFERÐ.
Inngrip í vanda unglinga
Þórarinn
segir það
mikilvægt að
aðstandendur
fræðist, breyti
viðhorfum
sínum og
hegðun því
það ýti á að
unglingurinn
fari í meðferð.
Þegar unglingar eru í neyslu þá er það því miður oft þannig
að þeir vilja ekki hætta þegar við viljum að þeir geri það.
14 SEPTEMBER 2012