Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 76
Helgin 7.-9. september 201260 tíska
www.sensai.is
PRIMED & PERFECTED
Tvöfaldur raki – einstök áhrif fyrir húð þína
Með notkun Lotion rakavatns og Emulsion rakakrems
getur þú tvöfaldað rakainnihald húðarinnar með
einstökum áhrifum Koshimaru silkis bæði dag og
nótt. Koishimaru silki er dýrmætasta silki í heiminum
og hefur SENSAI uppgötvað sérstaka orku í
einstökum trefjum þess.
Þú munt finna það. Þú munt sjá það. Húð þín man það.
Gerum lífið fallegra með SENSAI.
AC442_CELLULARPERFORMANCE_NyttLifad220x297 31/08/12 16:24 Page1
Trend
Karlmannsbindi
eru málið í haust
Tískuvit fylgir
nafninu
Madonna
klæddist
oft svörtu
bindi við
hvíta skyrtu
á tónleika-
ferðalagi
sínu í
sumar.
Í byrjun árs voru karlmannsbindi áberandi á
tískupöllunum hjá helstu hönnuðum heims,
sem frumsýndu þá hausttískuna 2012 fyrir
áhugasama. Dömurnar í Hollywood hafa verið
duglegar að taka upp þetta trend og skarta
karlmannsbindum óspart á rauða dreglinum
við blússur, skyrtur eða peysur með kraga.
Leikkonan
Jessica Alba
með svart
glimmerbindi
við gráa peysu
og hvítan
Pétur Pan
kraga.
Emmy Rossum klæðist hér einlitum
Ralph Lauren fatnaði þar sem
glansandi bindið fékk að njóta sín.
Nafnið Kate virðist vera það heitasta
í tískuheiminum um þessar mundir,
hvort sem fjallað er um fyrirsætuna
Kate Moss, krónprinsessuna Kate
Middleton, leikkonuna Kate Bosworth
eða fatahönnuðinn Mary-Kate Olsen.
Allar með tölu hafa þær verið áberandi
í tískuheiminum þetta árið, enda miklir
frumkvöðlar í klæðavali.
Ofurfyrir-
sætan Kate
Moss hefur
alltaf verið
með rokkaðan
og frjálslegan
stíl sem hefur
orðið vinsælli
með hverju
árinu.
Mary-Kate
Olsen fer
ekki langt án
þess að hafa
tvíburasystur
sína, Ashley,
sér við hlið, og
saman mynda
þær stórt
tískuveldi sem
rekur vinsælt
tískuhús. Stíll
Mary-Kate er
mjög villtur og
er hún óhrædd
að klæðast
rifnum fötum
eða að vefja sig
í gardínur eftir
hentisemi.
Kate Bosworth
hefur alla tíð
verið mikil
tískudrottning
en hún er
dugleg að
leggja línurnar
þegar kemur
að nýjum
trendum.
Kate Middle-
ton varð
sérstaklega
eftirtektar-
verð eftir að
hún giftist Vil-
hjálmi prins og
hefur athyglin
beinst mikið
að klæðavali
hennar sem
er fágað og
dömulegt.