Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Qupperneq 2

Fréttatíminn - 07.09.2012, Qupperneq 2
Lyfjaval.is • sími 577 1160 Bílaapótek Hæðasmára Mjódd Álftamýri 15% afsláttur  TónlisT ForsTjóri Haga samdi lag Fyrir BuBBa morTHens Bubbi syngur lag Finns Árnasonar Finnur Árnason, forstjóri Haga, hefur lengi gengið með plötu í maganum en hann hefur vasast í tónlist síðan á unglingsárum í Hafnarfirði. Nú nýverið datt hann í lukkupottinn því eitt laga hans rataði í hendur Bubba Morthens sem syngur lagið og er upptakan nú kominn inn á borð Rásar 2 en þar á bæ á eftir að taka ákvörðun um hvort lagið fari í spilun. g ott lag finn-ur góðan söngv- ara,“ segir Bubbi Morthens um nýtt lag, Er þetta ástin?, sem hann syngur og er hugsanlega á leið í spilun á Rás 2. Allavega er Óli Palli kominn í málið en höfundur lags og texta er enginn annar en Finnur Árnason, forstjóri Haga. „Bubbi vissi af þessu brölti hjá mér og vildi heyra,“ út- skýrir Finnur Árna- son, forstjóri Haga, en hann hefur lengi gengið með plötu í maganum og eitt af langtímamark- miðunum er að gefa hana út: „Svo bauðst Bubbi bara til að syngja og það er náttúrulega mikill heiður fyrir mig.“ Finnur hefur lengi vasast í tónlist en löngu áður en hann varð forstjóri Haga þá var hann bara strákur í Hafn- arfirði sem lærði á píanó og var í hljómsveit- um með mönnum eins og Óttari Matt vini sínum. Síðan hefur hann verið að gutla við að semja en alltaf hafa önnur verkefni gleypt hann. „Það var náttúru- lega frábært núna að lenda í höndun- um á jafn miklu fag- mönnum og Benzín- bræðrum, þeim Daða Birgissyni og Berki Hrafni Birgis- syni, sem útsettu lagið ásamt mér og Bubba,“ segir Finnur en auk fyrr- nefndra þá syngur Kristjana Stefáns- dóttir söngkona bakraddir í laginu sem er samkvæmt innvígðum á Rás 2 „ástarstuðdiskó- lag“ ef hægt að er að finna merkimiða og koma í orð hvers lags tónlist um er að ræða. Mikael Torfason mikaeltorfason@ frettatiminn.is Er þetta ástin? Lag og texti: Finnur Árnason Þegar dagurinn vaknar að vori, og vonin um birtuna hlær, þá spyr sóleyin sig hvort hún þori, að horfa á mót sólgul og skær. Undir bæjarvegg kyrrð ræður ríkjum, og rós svæfir tímann um stund, þá úr þessari veröld við víkjum, er vorið við sól á sinn fund. (Viðlag) Er þetta ástin sem allir finna? Aðeins einu sinni. Þá gefur þú allt og ekkert minna, ekki missa af henni. Þínir fingur í hönd minni heyra, hvurnig hjarta mitt taktfast slær. Þegar hvíslar þú orð í mitt eyra, allur heimurinn hljóminn fær. Það er ástin sem fæðist og ferðast, full vonar hún bindur sitt traust. Og mun horfa á vináttu veðrast, vaka er lauf falla um haust. (Viðlag) Það er birtan sem sýnir mér skuggann, Þegar sefur þú mér við hlið. Heimurinn grætur utan við gluggann, en gæti elskað eins og við. (Viðlag) Bubbi Morthens og Finnur Árna- son leiða hesta sína saman í nýju lagi, Er þetta ástin?, sem Finnur semur en Bubbi syngur.  HeilBrigðismál launaHækkun ForsTjóra landspíTalans Úr áttföldum sjúkraliðalaunum í tíföld Launahækkun Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, upp á 450 þúsund krónur sem RÚV skýrði frá í gær, nemur launum tveggja sjúkraliða á mánuði. Grunnlaun sjúkraliða eru rúmar 237 þúsund krónur á mánuði. Samkvæmt fréttum RÚV er Björn með rúmar 2,3 milljónir króna á mánuði eftir launahækkunina og jafngildir það því launum nær tíu sjúkraliða. Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum eru með tæplega 281 þúsund krónur á mánuði, um 44 þúsundum krónum meira en sjúkraliðar. Laun Björns nema því launum átta hjúkrunarfræðinga. Fréttatíminn sagði frá því í febrúar að Björn hefði afþakkað forstjórastöðu hjá Skånes Universitetssjukhus, einu stærsta og virtasta sjúkrahúsi Norðurlanda sem varð til við sameiningu háskólasjúkrahúsanna í Malmö og Lundi. Starfsmenn eru tólf þúsund og fimm hundruð og árleg fjárhagsáætlun þess hljóðar upp á um tíu milljarða sænskra króna eða um 180 milljarða íslenskra króna. Það er þriðja stærsta sjúkrahús Svíþjóðar á eftir Karolinska í Stokkhólmi og Sahlgrenska í Gautaborg. Björn tók við forstjórastöðu Landspítalans í lok árs 2010 en hafði áður veitt stofnuninni tímabundna forstöðu frá 15. september 2009. Ekki náðist í Björn við vinnslu þessarar fréttar né heldur Guðbjart Hannesson velferðarráðherra, sem sagðist í viðtali við RÚV bera pólitíska ábyrgð á launahækkun Björns. -sda Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, er með tíföld sjúkraliðalaun eftir nýfengna launahækkun. Þurfa nýjar áætlanir til að bregðast við íslenskum Breivik Lögregluyfirvöld telja, eftir að hafa gluggað í skýrslu norsku rannsóknarnefndarinnar um sprengingu og skotárás Breiviks í Noregi í fyrrasumar, að útbúa þurfi viðbragðsáætlun sem nái til landsins alls en ekki aðeins staðbundinna árása. „Við þurfum að skipuleggja atvik af svona stærðargráðu betur,“ segir Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn. Jón segir vinnu við að fara yfir skýrsluna ekki lokið. Unnið verði með innanríkisráðuneytinu við að fara yfir athugasemdir, ábendingar og tillögur að úrbótum. „Þetta er verkefni sem mun standa næstu mánuði. “ Hann segir að á síðustu árum hafi orðið ljóst að hættulegir árásarmenn geti leynst hvar sem er. Hann telur íslensku lögregluna standa betur hvað varðar suma þætti en þá norsku. Hér sé til að mynda eitt sameiginlegt fjarskiptakerfi um allt land, fjarskiptamiðstöð og samhæfingarmiðstöð. Svo sé ekki í Noregi sem hafi valdið töfum. Hins vegar sé norska lögreglan mun öflugri en sú íslenska á öðrum sviðum. - gag Neyðarsöfnun fyrir börn í Sýrlandi Neyðarsöfnun fyrir stríðshrjáð börn frá Sýrlandi hófst í vikunni. Mikill straumur flóttafólks liggur nú frá Sýrlandi og á hverjum degi leita þúsundir barna og fjöl- skyldur þeirra skjóls í nágranna- ríkjunum. Helmingur flóttafólks- ins eru börn. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er með mikinn viðbúnað á svæðinu enda verður ástandið alvarlegra með degi hverjum. Því blæs UNICEF á Íslandi til neyðarsöfnunar fyrir stríðshrjáðu börnin frá Sýrlandi. Almenningur á Íslandi er hvattur til að senda sms með skilaboð- unum „unicef“ í söfnunar- símanúmerið 1900 og styrkja þannig hjálparstarfið um 1500 krónur. Einnig er hægt að leggja söfnuninni lið á heimasíðunni www.unicef.is. -jh Jólaundirbúningur hafinn í Hafnarfirði Jólaundirbúningur er hafinn í Hafnarfirði því auglýst hefur verið eftir umsóknum um söluhús í Jólaþorpinu sem Gaflarar setja nú upp í tíunda sinn. Þeir sem sækjast eftir því að fá pláss í Jólaþorpinu verða að gæta þess að básinn sé líflegur og að söluvaran sé gæðavara. Jólaþorpið er orðinn einn vinsælasti viðburður ársins í Hafnarfirði og sótti Hafnarfjarðarbær um einkaleyfi á heitinu Jólaþorp fyrir fáeinum árum þegar nágrannasveitarfélögin voru farin að stelast til þess að setja upp samskonar fyrirbæri undir sama heiti. -sda 2 fréttir Helgin 7.-9. september 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.