Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 68
52 vín Helgin 7.-9. september 2012
Vínhéruð
Á
Ítalíu er nánast
endalaust úrval
vína. Allt frá
fáguðum vín-
um Piemonte-
héraðs yfir í ávaxtakennd vín
Toskanahérðaðs enda eru
á Ítalíu framleidd vín á um
fjögur hundruð svæðum úr
meira en hundrað þrúgum.
Vín hefur verið búið til í
Toskana í yfir þrjú þúsund
ár en nú til dags er héraðið
þekkt fyrir létt og ávaxtarík
gæðavín sem henta vel með
hversdagsmatnum. Toskana-
vín eru yfirleitt framleidd
úr Sangiovese þrúgunni en
á síðustu árum hefur færst í
aukana að blanda Merlot og
Cabernet Sauvignon þrúg-
unum með sem hefur tekist
einkar vel í svokölluðum
ofur-Toskana vínum (e.
Super Tuscans) sem slegið
hafa í gegn. Þekktustu vín-
svæði Toskana eru Brunello
Di Montalcino, Vino Nobile
de Montepulciano og Chi-
anti Classico en frá þessum
svæðum koma mörg af
bestu vínum Ítalíu.
Létt og ávaxtaríkt frá Toskana
Fleiri góð Frá Toskana
Donna Di Valiano
Toscana Chardonnay
2.599 kr. í Fríhöfninni
Frábært hvítvín. Góð fylling,
örlítið eikað með
vanillu og eplakeim.
Synd að þetta vín
fáist aðeins í Frí-
höfninni en gott
að muna eftir því
næst þegar farið
er þar í gegn.
Piccini rosso Toscana
stráflaska
1.999 kr. í Vínbúð
Þetta vín fæst í mismunandi
umbúðum. Það er samt eitt-
hvað skemmtilega toskanskt
við að hafa það í
stráflösku. Vínið er
týpískt fyrir létt og
ávaxtarík Toskana-
vín. Það er ferskt og
líflegt með smá
kirsuberjum og
skógarbotni.
Frábært með
tómatpastanu.
sasso al Poggio
Toscana
3.599 kr. í Vínbúð
Kröftugur og líflegur
Toskani úr blöndu af
Sangiovese, Merlot
og Cabernet Sauvig-
non. Frábært dæmi
um nýjan stíl
vína frá Toskana.
Kryddað og með
keim af plómum
og mjúk tannín
sem lyfta þessu
víni og gera það
virkilega gott.
Ruffino Riserva Ducale
Chianti Classico 2007
3.099 kr. í Vínbúð
Fágað Chianti með
nettu leðri í lykt
og kirsuberjum og
lakkrís í bragði.
Meðalfylling og
gott jafnvægi.
Þetta er ekta Ítali
sem passar vel
með klassískum
ítölskum mat,
rísottói, spagettíi
með kjötsósu og
ljósu kjöti.
Brunello di
Montalcino
Vín frá svæðinu í
kringum bæinn Montalc-
ino í suðurhluta Toskana
njóta eflaust mestrar
virðingar allra Toskana
vína. Þau eru fram-
leidd úr þrúgunni
Brunello sem
er náskyld
Sangioveseþrúg-
unni. Gæðin eru
þó misjöfn eftir
framleiðendum
en yfirleitt þarf
að borga meira
fyrir þau góðu
en það er um að
gera að prófa sig
áfram.
Fréttatíminn
mælir með:
Banfi Brunello
di Montalcino
Vino Nobile di
Montepulciano
Oft er hægt að gera
góð kaup í Vino Nobile
vínum. Þetta eru vín úr
Sangioveseþrúgunni
og koma frá svæði í
kringum smábæinn
Montepulciano
eins og nafnið
gefur til kynna.
Eins og með
Brunello vínin
geta gæðin verið
misjöfn en hins
vegar eru góð
Nobile vín yfir-
leitt á betra verði
en betri Brunello
vínin.
Fréttatíminn
mælir með:
Piccini Vino
Nobile di
Montepulciano
Chianti
Þetta er eflaust
þekktasta vínsvæði
Toskana og gríðarlegt
úrval vína þaðan. Þau
bestu koma þó án
efa frá miðju Chianti
svæðinu og kallast
Chianti Classico.
Á því svæði hafa
gæðin aukist
jafnt og þétt
undanfarin ár
og vín frá þessu
svæði eru oft
flóknari og hafa
meiri fágun en
önnur Chianti
vín án þess þó
að missa létt-
leikann.
Fréttatíminn
mælir með:
Valiano Chianti
Classico
Fróðleiksmolar
Vín er framleitt á 67.298 hekturum í Toskana
Alls eru framleiddir 2.2 milljón hektólítrar
Þar ríkir miðjarðarhafsloftslag með mildum
vetrum og þurrum sumrum sem gerir það að
verkum að ekki er mikill munur á milli árganga
eins og norðar í álfunni.
72% af framleiðslunni eru rauðvín og restin hvít-
vín
Helsta þrúga svæðisins er Sangiovese.
Kirsuber, plómur, leður og tóbak eru einkennandi
fyrir Sangioveseþrúguna.
Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.
Pantanir í email: kbdesign@outlook.com s: 6909474
erum á Facebook - KB Design
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011