Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 82

Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 82
66 bíó Helgin 7.-9. september 2012 Anna Gunndís er fanta- góð, ákveðin og hrædd á víxl, og ákaflega sjarmer- andi við erfiðar aðstæð- ur.  RIFF  BíódómuR FRost  í ljósi tilhneigingar Íslendinga til þess að trúa á álfa, móra og skottur þjóðsagnar-arfsins og tíðra og óútskýrðra manns- hvarfa, þar sem vor hrjóstruga jörð virðist hafa gleypt fólk með húð og hári, er sérkenni- legt að ekki hafi skapast sterk hefð í gerð hryllingsmynda og skáldsagna á Íslandi. Maður fór því með nokkurri eftirvæntingu að sjá Frost í þeirri von að nú væri loksins að því komið að spennutryllirinn með hroll- vekjuívafi myndi hasla sér völl í íslenskri kvikmyndagerð. Því miður er því ekki að fagna og það mun þurfa eitthvað annað og meira til þess. Handritshöfundurinn Jón Atli Jónasson og leikstjórinn Reynir Lyngdal sækja á kunnug- leg mið í hryllingnum og að sjálfsögðu kemur heimskautshrollurinn The Thing fyrst upp í hugann. Þar, eins og í Frosti, er sagt frá afdrifum rannsóknarhóps í einangraðri og ískaldri auðn sem raskar ró illra afla sem leggja þunga krumlu smitandi dauða yfir mannskapinn. En þar sleppir samanburð- inum þar sem sagan í Frosti nær aldrei flugi og er stefnulaus og svo óræð að ógnin, sem hefur alla burði til þess að verða eitthvað, er alltaf fjarlæg og tekst ekki að skjóta áhorf- andanum skelk í bringu sem skyldi. Frásagnarmátinn er sóttur til mynda á borð við The Blair Witch Project og Paranor- mal Activity þar sem persónurnar sjálfar skrásetja sögu sína með vídeómyndatökum. Ekki ýkja frumlegt en býður upp á skemmti- leg tilþrif með tökuvélarnar sem ýta undir innilokunarkennd. Og þegar myndavélin hristist og veltur á alla kanta magnar stíl- bragðið vissulega upp örvæntingu þeirra sem eru að filma sjálfa sig. Reynir á nokkra góða spretti í þessum leik með tökuvélina en hamagangurinn er stundum svo mikill að einhverjir áhorfendur gætu fengið sjóriðu. Fátt er þó svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott og Frost á sín augnablik þar sem ekki fer á milli mála að þarna er hæfileikafólk á ferð. Heildin er samt bara svo stefnulaus og beinlínis undarleg að hún gliðnar í sundur. Handritið er snöggi bletturinn og slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Með handrit sem þetta í höndunum hefur Reynir verið eins og villtur maður með bilað GPS-tæki í miðjum snjóstormi. Myndir af því tagi sem Frost virðist hafa átt að sverja sig í ætt við treysta iðulega á spennu eða viðbjóð frekar en góðan leik. Í Frosti er þessu þveröfugt farið. Spennan næst aldrei almennilega upp og hryllingur- inn er takmarkaður en Björn Thors og Anna Gunndís gera merkilega mikið úr því sem þau hafa úr að moða. Anna Gunndís er fanta- góð, ákveðin og hrædd á víxl, og ákaflega sjarmerandi við erfiðar aðstæður. Þau Björn renna eðlilega og tilgerðarlaust í hlutverk ástfangna parsins og ná líka kærkomnum kómískum sprettum þar sem Björn fer leik- andi létt með hlutverk dæmigerðs karlmanns sem veit ekkert í sinn haus og treystir í einu og öllu á konuna sína þegar í harðbakkann slær. Þessi tvö draga Frost þangað sem hún kemst og gera það með aðdáunarverðum sóma þótt það sé vissulega synd að þau hafi ekki fengið að njóta sín í öflugri umgjörð. Frost er virðingarverð tilraun sem gengur því miður ekki alveg upp. Óvæntur og það sem í fyrstu virðist vera ánægjulegir endurfundir elskenda lengst uppi á jökli snýst upp í háskaför þegar einhver undarleg óværa gerir vart við sig og hópur manna í rann- sóknarleiðangri hverfur sporlaust. Því miður lögðu ekki aðeins persónur Frost upp í óvissuferð þar sem kvikmyndagerðarliðið virðist einnig hafa týnst í snjónum og ruglingslegu handritinu. Tilþrif og skemmtilegur samleikur Önnu Gunndísar Guðmundsdóttur og Björns Thors stendur upp úr flóknum sköflum sögunnar og þau bjarga því sem bjargað verður. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Venju samkvæmt verður hægt að velja úr aragrúa kvikmynda frá flestum heims- hornum á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík en veislan hefst undir lok þessa mánaðar. Fyrir kvikmyndaáhugafók er til dæmis mikill fengur í heimildarmyndinni Woody Allen: A Documentary, eftir Robert B. Weide. Allen er ákaflega hlédrægur maður sem er lítið fyrir að berast á en féllst á að hleypa Wade inn í sinn innsta hring með tökuvélina á lofti. Allen veitir áhorfendum meðal annars innsýn í það hvernig hann vinnur handrit og gamla ritvélin sem hann skrifar myndir sínar á kemur við sögu. Sambandi Allens við leikara hans er einnig gefinn gaumur og fjöldi stórstjarna sem unnið hefur með honum í gegnum árin kemur fram í myndinni. Þar á meðal eru Scarlett Johansson, Diane Keaton, Penélope Cruz, John Cusack og Larry David. Woody Allen opnar sig Robert B. Weide opnar áhorfendum einstaka sýn inn í heim Woodys Allen. Áhorfendur úti í kuldanum Ill öfl leynast í myrkrinu í Frosti en ná ekki að brjótast í gegnum flókna söguna.  FRumsýnd HasaRInn HelduR áFRam án Jason BouRne Arfleið Ludlums Á árabilinu 1980 til 1990 sendi bandaríski spennusagnahöfund- urinn Robert Ludlum frá sér þrjá bækur um ofurnjósnarann Jason Bourne, The Bourne Identity, The Bourne Supremacy og The Bourne Ultimatum. Bourne hét réttu nafni David Webb en gerði sér upp persónuna Jason Bourne í tilraun sinni til þess að hafa hendur í hári hins alræmda hryðjuverkamanns Carlosar, eða Sjakalans. Í upphafi fyrstu bókar- innar var Webb minnislaus og vissi ekkert um sjálfan sig en kom sér á óvart með því hversu úrræðagóður hann var, vopnfimur og snjall í slags- málum. Bækurnar þrjár voru kvikmyndað- ar á árunum 2002 til 2007 með Matt Damon í hlutverki Bourne. Mynd- irnar áttu að vísu sárafátt sameigin- legt með bókum Ludlums annað en titlana, nafn aðalpersónunnar og þá staðreynd að Damon var minnislaus í upphafi myndaflokksins sem hefur notið gríðarlegra vinsælda. Í myndunum snerist Bourne gegn yfirboðurum sínum sem vildu hann ólmir feigan. Handritshöfundur fyrstu myndanna þriggja hefur nú tekið við bálknum og leikstýrir The Bourne Legacy. Þótt Bourne og hans brölt leynist í bakgrunni myndarinnar eru hann og Matt Damon fjarri góðu gamni og nú er fókusinn á Jeremy Renner í hlut- verki álíka ofurnjósnara og Bourne, Aaron Cross. Cross áttar sig á því að margt er á huldu um fortíð hans og á meðan Bourne gerir yfirboðurum sínum lífið leitt er ákveðið að uppræta alla njósnara af hans sauðahúsi og þar með er Cross orðinn skotmark yfir- valda. En rétt eins og Jason Bourne snýr hann vörn í sókn og verður ekki komið í hel auðveldlega. Jeremy Renner leysir Matt Damon af í The Bourne Legacy. Sjálfur Jason Bourne situr hjá í þessari umferð og Aaron Cross er í eldlínunni. Ingvar Þórðarson fulltrúi dómnefndar, Erlingur Jack Guðmundsson fram- leiðandi (Grafir og bein), Haukur M. leikstjóri (Mission to Mars), Ingimar Elíasson leikstjóri (Móðir) og Ómar Örn Hauksson leikstjóri (Undying Love).  stuttmyndadagaR Mission to Mars sigraði Mission to Mars eftir Hauk M. sigraði á Stutt- myndadögum í Reykjavík 2012. Anton Sigurðsson var í öðru sæti með Grafir og bein og í þriðja sæti var zombiesplatterinn Undying Love eftir Ómar Örn Hauksson. Stuttmyndadag- arnir eru árviss viðburður og þeir fóru fram í byrjun vikunnar. Sextán stutt- myndir kepptu um þrenn verðlaun dómnefndar auk þess sem sérstök áhorfendaverð- laun voru veitt en þau hreppti myndin Móðir eftir Ingimar Elíasson. MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  MIÐASALA: 412 7711 KOMDU Í KLÚBBINN! bioparadis.is/klubburinn Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! ÁFRAM Í BÍÓ PARADÍS! KÓNGAGLENNA (EN KONGELIG AFFÆRE) ÞAU BREYTTU SÖGU DANMERKUR AÐ EILÍFU! STÆRSTA MYND DANA Á ÞESSU ÁRI TILNEFND TIL KVIKMYNDAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.