Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 90
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Kaupum Á allra vörum
gloss frá Dior og styrkjum
börn með sjaldgæfa,
ólæknandi sjúkdóma.
Eitt, tvö, þrjú
og það varst þú...
Það kostar líka að Þvo sjálfur!
láttu okkur sjá um þínar skyrtur.
350 kr. skyrtan
hreinsuð og pressuð
-ef komið er með fleiri en 3 í einu
Fullt verð 580 kr.
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
- nú á þremur stöðum
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is Efnalaug - Þvottahús
Lára gefur út kabarettplötu
Söng- og leikkonan Lára Sveinsdóttir þótti standa sig frábærlega í hlutverki Judy Gar-
land í kabarett sem hún setti upp í fyrra. Nú hefur hún gefið út plötu með tónlistinni úr
sýningunni.
Platan var tekin upp í Sundlauginni hjá Bigga sundlaugarverði og Kjartani Sveins-
syni, kenndum við Sigur Rós, sem er bróðir Láru. Tónlistin í sýningunni var sérstaklega
útsett fyrir sex manna hljómsveit undir stjórn Úlfs Eldjárns og leikur sveitin að
sjálfsögðu undir á disknum.
Í tilefni af útkomu plötunnar, sem fæst í öllum betri hljómplötuverslunum, verða
Lára og hennar fólk með tvær sýningar á Judy Garland Kabarett í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Sýningarnar verða 14. og 16. september næstkomandi. Nánari upplýsingar má
finna á Facebooksíðu kabarettsins.
Lára Sveinsdóttir samdi
leiktexta kabarettsins
út frá ævisögum, við-
tölum og upptökum sem
til eru af Judy Garland.
„Þetta hefur gengið framar vonum. Við erum
komin með 32 prósent af upphæðinni á tæpri viku,“
segir Egill Viðarsson, söngvari hljómsveitarinnar
Nóru.
Meðlimir sveitarinnar eru nú að legga lokahönd
á aðra breiðskífu sína. Fóru þeir nýstárlega leið til
að afla fjár fyrir útgáfuna. Áhugasamir geta heitið
á bandið á Pledgemusic.com og markmiðið er að
safna um hálfri milljón króna. Lægsta framlagið
tryggir eintak af plötunni. Fyrir aðeins hærri upp-
hæð fær maður fyrri plötu sveitarinnar með í kaup-
unum. Og fyrir 250 dollara, um 30 þúsund krónur,
geta áhugasamir keypt sér matarboð með meðlim-
um Nóru. „Bassaleikarinn okkar er kokkur, hann
getur gert þetta almennilega,“ segir Egill.
Fyrri plata Nóru kom út fyrir tveimur árum en
vinna við þá næstu hefur staðið í um það bil ár.
Egill segir að meira sé lagt í allt nú þó tónlistin
flokkist áfram sem melódískt rokk. „Þetta verður
einhver epík – það er allt stærra núna.“ Platan mun
kallast Himinbrim en í vikunni var fyrsta lagið af
henni, Sporvagnar, sett inn á Gogoyoko þar sem
hægt er að hlusta á það. Þeir sem taka þátt á Pled-
gemusic ættu að fá plötuna rafrænt í lok mánaðar-
ins. Diskurinn kemur svo út í október. „Alla vega
fyrir Airwaves. Svo verður mikil spilamennska hjá
okkur,“ segir Egill.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
TónlisT HljómsveiTin nóra fer frumlegar leiðir við plöTuúTgáfu
Safna hálfri milljón á netinu
Önnur plata Nóru kemur út í næsta mánuði. Hún er að hluta til fjármögnuð í
gegnum netið, á Pledgemusic.com/projects/nora.
KrisTjana sKúladóTTir Í Kjólum sTrÍðssöngKvennanna
Tómt fjósið var
leiksvið æskunnar
Leikkonan Kristjana Skúladóttir hélt í vor tónleika sem hún nefndi Söngkonur
stríðsáranna þar sem hún söng lög sem valkyrjur á borð við Marlene Dietrich,
Vera Lynn, Edith Piaf og fleiri gerðu vinsæl á stríðsárunum. Tónleikarnir fengu
svo góðar undirtektir að hún hefur gefið lögin út á geisladiski og ætlar að
endurtaka leikinn og fylgja plötunni eftir með tónleikum í Iðnó.
Kristjana Skúladóttir gerði það gott með tónleikum sínum Söngkonur stríðsáranna í vor og er búin að gefa
lögin sem hún söng þar út á geisladiski.
Þ að má kalla þetta „show“ þar sem ég segi einnig frá þessum afrekskon-um sem tróðu upp á átakasvæðum til
þess að stappa stálinu í hermennina,“ segir
Kristjana. „Þetta voru konur sem stóðu á
hliðarlínunni í átökum síðari heimsstyrj-
aldarinnar. Með söng sínum skildu þær oft
á milli þess hvort hermenn, örmagna á sál
og líkama, gæfust upp eða ekki. Þær voru
á staðnum, gáfu af sér eins og þær gátu og
hvöttu liðið áfram í baráttunni gegn ógninni
sem var á góðri leið með að kaffæra Evrópu
alla,“ segir Kristjana og bætir við að Mar-
lene Dietrich hafi ekki látið sitt eftir liggja
þótt staða hennar væri óneitanlega sérstök
þar sem hún var þýsk en hvatti bandamenn
til dáða.
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir í kvöld,
föstudagskvöld og Kristjana segist syngja
lögin á sinn hátt og hún reyni hvorki að
leika né stæla konurnar sem hún vill heiðra
með tónleikunum. „Ég brýt líka dagskrána
upp með því að segja frá því sem var að
gerast í tónlistarlífinu á Íslandi á stríðsár-
unum og þar kemur Hallbjörg Bjarnadóttir
að sjálfsögðu við sögu, eins skemmtilegur
og skrautlegur persónuleiki og hún var.“
Fyrsta hlutverk Kristjönu á sviði eftir
útskrift úr Leiklistardeild LHÍ var Rómeó
og Júlía með Vesturportshópnum. „Enda
voru bekkjarsystkyni mín kjarninn í þeim
hópi.“ Kristjana ólst upp á bænum Mið-
felli í Hrunamannahreppi. „Þar mjólkaði
ég kýrnar og var byrjuð að vinna á traktor
tólf ára gömul.“ Og leikkonudraumurinn
vaknaði snemma hjá sveitastelpunni. „Það
var sérstaklega gaman á vorin þegar búið
var að sleppa beljunum lausum. Hljóm-
burðurinn í tómu fjósinu var nefnilega svo
góður að ég gat hangið þar endalaust og
sungið fyrir sjálfa mig.“
Kristjana á þrjú börn, tíu, átta og tveggja
ára og er gengin fjóran og hálfan mánuð
með sitt fjórða barn. Hún segist líf sitt,
frá því hún útskrifaðist, hafa snúist um að
finna jafnvægi milli móðurhlutverksins og
listarinnar. „Þetta getur verið snúið en ég
held að stóra málið sé að leita ekki langt
yfir skammt að hamingjunni. Að njóta lífs-
ins eins og það er og missa ekki af gjöf-
unum sem felast í augnablikinu,“ segir
Kristjana sem nýtur þess engu að síður að
horfa til fortíðar til kvenna sem hún hefur
í hávegum.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Þetta getur
verið snúið
en ég held
að stóra
málið sé að
leita ekki
langt yfir
skammt
að ham-
ingjunni.
74 tónlist Helgin 7.-9. september 2012