Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 60
44 heilsa Helgin 7.-9. september 2012
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
08
16
0
8/
12
Gildir til 30. september
Lægra
verð
í Lyfju
15%
afsláttur
Nicotinell
Tropical Fruit
204 stk. 4 mg: 7.598 kr.
204 stk. 2 mg: 5.454 kr.
24 stk. 2 mg: 799 kr.
WU SHU ART
TAI CHI
KUNG FU
FYRIR ALLA
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Í samstarfi við Kína
-Capital Institute of
Physical Education
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Kaupum Á allra vörum
gloss frá Dior og styrkjum
börn með sjaldgæfa,
ólæknandi sjúkdóma.
Eitt, tvö, þrjú
og það varst þú...
É g er heima í fæðingarorlofi og var dottin í brauð í öll mál og ákvað að gera eitthvað í
því,“ segir Hildur Halldórsdóttir
sem heldur úti vinsælli Facebook-
síðu, Heilsudrykkir Hildar, þar
sem hún setur daglega inn upp-
skriftir af hollustudrykkjum. Hún
gefur upp næringargildi drykkj-
anna og gætir þess að þeir inni-
haldi alltaf eitthvað prótein, góða
fitu og séu ríkir af vítamínum og
andoxunarefnum.
„Upphaflega byrjaði ég á því að
búa mér til safa þar sem ég var
orðin þreytt á tilbreytingarlausu
og einhæfu mataræði, brauð og
aftur brauð alla daga. Síðan fór ég
að leita mér upplýsinga á netinu og
fannst ofboðslega leiðinlegt að fá
allar uppskrifir sem mig langaði að
prufa upp í amerískum einingum
þ.e. oz og cups og þess háttar, auk
þess sem lítið virtist vera um ein-
faldar uppskrifitr á íslensku. Einn-
ig fannst mér vanta næringarinni-
hald þar sem að margir drykkir
eru ótrúlega næringarríkir og eru
í raun heil máltíð og kannski ekki
margir sem átta sig á því. Ég byrj-
aði að safna uppskriftunum mínum
saman í word en fannst það ekki
nógu hentugt og bjó því til þessa
facebook síðu sem kom mjög vel
út,“ segir Hildur.
Hún tekur sjálf fallegar mynd-
ir af öllum drykkjunum og segir
auðvelt að finna uppskriftirnar út
frá myndunum. Þeir eru flokkaðir í
myndaalbúm eftir innihaldi: Hveiti-
kímsdrykkir, skyrdrykkir, möndlu-
og hnetudrykkir, grænir drykkir
og allskonar drykkir.
Hún segir að drykkirnir hafi
skilað sér í mun betri líðan. „Þetta
Hollusta Heilsudrykkir Hildar vinsælir á Facebook
Vildi fjölbreyttara
mataræði
Hildur Hall-
dórsdóttir
var heima í
fæðingarorlofi
og borðaði
bara brauð
með osti. Hún
ákvað að taka
sig á og fór að
gera alls kyns
hollustudrykki
sem bættu
líðan hennar
til muna.
Í kjölfarið
stofnaði hún
Facebook síðu,
Heilsudrykkir
Hildar, sem
nýtur mikilla
vinsælda.
Uppáhald Hildar
Möndlumangó (313 Kcal)
6,7 gr prótein, 56 gr kolvetni, 8,5 gr fita
20 gr möndlur (12 stk) sem hafa legið í bleyti
2 döðlur
2 dl frosið mangó (80 gr)
1 þroskaður banani
spínat ca. 1 lúka, má vera meira eða minna
goji-ber, má sleppa (1 tsk - 1 msk)
Möndlurnar, goji-berin og döðlurnar settar í blandar-
ann ásamt smá vatni og hrært þar til orðið mjúkt og
flott, banana og mangó bætt saman við ásamt spínati
og vatni eftir þörfum og hrært þar til vel blandað og rjómakennt.
Mælt er með að borða daglega u.þ.b. 2-3 grömm af goji-berjum
Talið er að andoxunarefnið polysaccharides í goji-berjunum sé sérlega afkastamikið,
styrki frumurnar hratt og örugglega og styrki þar með ónæmiskerfið á undrahraða.
Goji-berin innihalda flest þau næringarefni sem að við þurfum á að halda til að halda
góðri heilsu. Að auki við andoxunarefnið polysaccharides, innihalda þau 500 sinnum
meira C-vítamín en appelsínur, mjög hátt magn af karótíni, fjölda B-vítamína og E-
vítamín. Einnig 18 amínósýrur og mikið af steinefnum, eins og sink, járn, kopar, kalk,
selen, fosfór og fleiri nauðsynleg næringarefni.
Hildur Halldórsdóttir segir að
heilsudrykkirnir hjálpi sér að neyta
fjölbreyttari og hollari fæðu.
Hr. Bleikur -
Uppáhald barnanna
Hr. Bleikur (316 Kcal)
6,6 gr prótein, 63 gr kolvetni, 5 gr fita
1 frosinn banani
1 dl frosið mangó
350 ml kókosvatn
Blandið þessu fyrst saman og hellið í glas
Ekki skola blandarann, setjið næst:
10 gr möndlur sem hafa legið í bleyti yfir
nótt (6 stk)
2 dl frosin jarðarber
1 dl frosin hindber
Vatn eftir þörfum
Byrjið á því að setja möndlurnar í
blandarann og blandið þar til þær eru
orðnar mjúkar, setjið þá jarðarber og
hindber og vatn eins og þarf og blandið
vel. Hellið yfir banana/mangó blönduna
og hrærið aðeins í. Hressandi og fallegur
drykkur sem gaman er að drekka og
krökkum finnst hann frábær.
Kókosvatnið inniheldur sérstaklega
mikið kalium eða margfalt meira en
t.d. bananar, er einnig með afar lágt
sodium innihald. Kókosvatnið er basískur
drykkur, hitaeiningasnautt og inniheldur
kalk, magnesíum, kalíum og ýmislegt
fleira sem er gott fyrir bein og taugar auk
þess að innihalda enga fitu. Þá er vatnið
ríkt af aminosýrum, vítamínum, stein- og
snefilefnum og laust við öll aukaefni.
hefur hjálpað mér mjög mikið og
mér líður betur bæði andlega og
líkamlega. Það er gott að byrja
daginn á næringarríkum og
bragðgóðum drykk í stað þess að
fá sér bara brauð með osti eins og
ég var dottin í. Ég var aðallega að
hugsa um að borða eitthvað holl-
ara,“ segir hún.
Hildur býr til uppskriftirnar
sjálf og reiknar út næringargildi
drykkjanna enda segist hún alltaf
hafa áhuga á hollustu. Aðspurð
segist hún hafa fengið góð við-
brögð við síðunni og fjölmörg
skilaboð frá fólki sem segir að
uppskriftirnar hafi hjálpa því við
að bæta mataræði sitt. „Fólk seg-
ir að því líði betur því það fái nú
betri næringu og mataræðið sé
fjölbreyttara. Þessi jákvæðu við-
brögð hvetja mig áfram,“ segir
hún.
Hildur á tvær dætur, níu mán-
aða og fjögurra ára. „Þær fá báð-
ar heilsudrykki daglega og finnst
þeir mjög góðir. Sú eldri biður
reglulega um drykki: „má ég fá
grænan“ eða „mig langar í bleik-
an“, segir Hildur.
Hildur heldur sjálf mest upp
á avókadó og möndlur. „Ég nota
hvort tveggja mjög mikið enda er
það fullt af góðri fitu og möndl-
urnar einnig ríkar af próteinum.“
Uppáhaldsdrykkurinn hennar er
með möndlum, mangói, spínati,
goji-berjum og vatni. Uppskriftin
fylgir hér með.