Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 77
Helgin 7.-9. september 2012
5
Við breytum fundarsal
Icelandair hótel í verslun
í einn dag og komum með
okkar allra bestu vörur.
Við verðum með opið
frá kl 12-20.
Hlökkum til að sjá þig.
S: 517 8500
www.tvolif.is Þú nnur okkur á
Vertu vinur okkar á Facebook
Full verslun aF
nýjum buxum
Háar í mittið!
Þrjár síddir, stærðir 34-46.
Aðstandendur Victoria’s Secret undirfatasýningarinnar, sem haldin er
árlega með pompi og prakt, staðfestu í vikunni að sýningunni verður
sjónvarpað þann 4. desember næstkomandi á sjónvarpsstöðinni CBS.
Helstu fyrirsætur heims munu ganga niður tískupallinn eins og venjan
er, á borð við Miröndu Kerr, Candice Swanepoel og nýbökuðu móðurina
Alessöndru Ambrosio, sem allar hafa tekið þátt í sýningunni síðustu ár.
Sýningin sjálf fer þó fram í byrjun nóvember, undir tónum vinsælla
tónlistarmanna, sem ekki enn hafa verið tilkynntir, og mun sjónvarps-
efnið sýna fyrirsæturnar á bak við tjöldin, viðtöl og viðburði á bleika
dreglinum.
Sýningin er eitt vinsælasta sjónvarpsefni ársins þar sem margar millj-
ónir Bandaríkjamanna liggja límdar við skjáinn og ná auglýsingatekjur
sjónvarpsstöðvarinnar hæstu hæðum.
Undraverður
árangur Rosie
Hin nýja undirfatalína fyrrum
Victoria's Secret fyrirsætunnar
Roise Huntington-Whiteley kom
í verslanir Marks & Spencer
í Lundúnum í síðustu viku og
hefur hún selst betur en nokkur
undirfatalína hjá fyrirtækinu
frá upphafi.
Það tók Rosie tvö ár að vinna
að þessari línu, sem heitir
Rosie for Autograph. Innblástur
hennar kemur helst frá tísku
sjötta og sjöunda áratugarins.
Fyrirsætan er aðeins 25
ára gömul og hefur afrekað
margt annað en undirfata-
hönnun á síðustu árum. Meðal
annars hefur hún gengið niður
tískupallinn fyrir Victoria's
Secret undirfatasýninguna
fimm sinnum, leikið aðalhlut-
verk í kvikmyndum á borð við
Transformers og setið fyrir
í auglýsingaherferðum fyrir
helstu hátískufyrirtæki heims.
Vinsælasta undirfata-
sýning veraldar nálgast