Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 86

Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 86
Davíð Þór sendir frá sér skáldsögu og fólk býst við bítandi samfélags- satíru og mein- hæðinni þjóðfélags- ádeilu!.“ F ÍT O N / S ÍA F I0 4 3 2 5 9 568 8000 | borgarleikhus.is „Spen ahóp urinn “ Vinirn ir á h eima vistar gang inum „Spe na“ í MA 1 964– 1968 og ko nur þ eirra 4 sýn ingar að eig in val i Áskri ftar- kortið okka r Ummyndun systra Systurnar Ólöf og Sigrún Einarsdætur opna sýninguna Ummyndun í Gerðubergi á laugardaginn klukkan 14. Þær hafa í gegnum tíðina haft mikil samskipti í listsköpun sinni og fyrir um tíu árum fóru þær að tefla saman textíl og gleri í sama verkinu. Þær leggja áherslu á að jafnvægi ríki, þannig að efnin bæti hvort annað upp í stað þess að slást eða yfirgnæfa hvort annað. Ólöf og Sigrún sækja gjarnan innblástur í náttúru Íslands og ekki síst í hin ótemjanlegu innri öfl hennar. Sýningin Ummyndun er á efri hæð Gerðu- bergs og stendur til 28. október. Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16. Sóprankonur síðdegis Sópransöngkonurnar Hulda Björk Garðarsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Björg Þórhallsdóttir flytja þekktar íslenskar einsöngsperlur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara á síðdegistónleikunum Íslenskt? Já takk! í Salnum í september. Hulda Björk steig á svið síðastliðinn miðviku- dag og í næstu viku kemur röðin að Hallveigu sem flytur íslensk þjóðlög. Björk tekur síðan við miðviku- daginn 19. september og syngur perlur íslenskra sönglaga. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.30 næstu tvö miðvikudagssíðdegi. Davíð Þór Jóns- son, guðfræð- ingur og rithöf- undur, bíður ekki eftir brauðinu heldur fer utan til að vinna við ritstörf í faðmi frúarinnar. Hann dreymir um frekari störf innan kirkjunnar en í sumar var hann þjónn hennar á Seyðis- firði. Löggu- og kokkaþættirnir á skjánum heilluðu hann ekki svo hann skellti í vísindaskáldsögu sem kemur út í október. D avíð Þór Jónsson, guðfræðingur og rithöfundur, hefur gefist upp á fjar-búðinni frá Þórunni Grétu Sigurðar- dóttur, konu sinni til sjö ára og fimm daga, og ætlar að flytja á eftir henni til Hamborgar í Þýskalandi. Þórunn Gréta er þar í meistara- námi við tónlistarháskólann. „Ég er aftur að fara að vinna við þýðingar og ritstörf. Ég get unnið við það hvar sem er í heiminum og ástæðulaust að reka tvö heimili og hafa hafið á milli okkar,“ segir Davíð. „Ráðningu minni fyrir austan er lokið og þó að fjarbúð hafi verið dýrmæt reynsla er óþarfi að halda henni áfram,“ segir Davíð Þór sem sinnti Guði og mönnum á Seyðis- firði í sex mánuði. Hann vann fyrir Þjóðkirkj- una og dreymir um brauð – fast starf innan kirkjunnar – þótt samkeppnin sé hörð. „Það leggur enginn á sig að taka meistara- próf í fagi sem hann langar ekki að vinna við.“ Spurður hvort fortíðin þvælist fyrir honum, en Davíð Þór hefur víða komið við, meðal annars ritstýrt kynlífstímariti. „Eins og gengur og gerist opnar fortíðin ákveðnar dyr og lokar öðrum,“ svarar hann. „En þvert á móti hefur mér fundist sem fólki finnist traustvekjandi að kirkjunnar þjónn hafi pínu- litla reynslu af lífinu líka – hafi ekki skriðið beint úr skóla í bómull kirkjunnar og varð- veittur þar allt sitt líf.“ En þótt Davíð Þór sé farinn kemur hann aftur í október þegar bókin hans, Orrustan um Fold, verður gefin út. „Þetta er vísinda- skáldsaga um geimvíkinga og risakóngulær sem berjast um yfirráðin á litlu tungli sem snýst um stóra reikistjörnu í fjarlægu sól- kerfi einhvern tímann í framtíðinni.“ Hverjir eru í líki geimvíkinga og hverjir risakóngulóa? „Davíð Þór sendir frá sér skáldsögu og fólk býst við bítandi samfélags- satíru og meinhæðinni þjóðfélagsádeilu! Þetta er eins og þegar Halldór Laxness var spurður að því hvað strompurinn stæði fyrir í Strompleiknum,“ svarar Davíð og leikur skáldið: „Ég held hann standi nú aðallega fyrir reykháf, svaraði skáldið.“ Hann viður- kennir þó að vera að varpa fram siðferðis- legum spurningum. „Risakóngulærnar eru framandi vits- munaverur. Og þó að ég teikni þær upp sem risakóngulær eru þær í eðli sínu ekkert öðruvísi en framandi vitsmunaverur sem við dílum við á hverjum einasta degi í okkar lífi. Við köllum þær annað fólk. Stundum hjálpar okkur að flokka þessar verur og kalla þær femínista, homma, múslíma, anarkista eða „whatever“.“ Davíð Þór telur að nú sé runninn upp tími íslenskra höfunda vísindasagna, rétt eins og gerðist hjá glæpasagnahöfundum. „Fyrst og fremst er þetta saga sem hefur upphaf og endi; er ævintýri. Betri ástarsaga en Twilight. Það er númer eitt, tvö og þrjú.“ Davíð ætlar ekki að fygjast með jólabóka- sölunni úr návígi. „Ég geri ráð fyrir að koma aftur með vorinu.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  Viðtal Farinn Frá Fróni en skilur eFtir sig FolD Davíð Þór eltir ástina sína til Þýskalands Davíð Þór Jónsson og Þórunn Gréta Sigurðardóttir eru hætt í fjarbúð og ætla að verja vetrinum saman. Samband þeirra er sjö ára og fimm daga gamalt – upp á dag, sértu að lesa þetta á föstudegi. Mynd/Hari Minningaleiftur frá Skólavörðuholti Útimyndlistarsýningarnar á Skólavörðuholti 1967 - 1972 brutu blað í sögu höggmyndalistar á Íslandi og voru jafn- framt jarðvegurinn sem Myndhöggvarafélagið spratt upp úr. Sýningarnar fimm voru víðfeðmar. Fjörutíu og fimm listamenn á aldrinum 17–75 ára tóku þátt. Eldri kynslóð virtra listamanna, ungir róttækir listamenn, listnemar og áhugamenn sýndu hlið við hlið verk sem spönnuðu mikla vídd í aðferðarfræði, inntaki og efni. Nú, um fjörutíu árum síðar, er kominn tími til að skoða og endurskoða þennan merka listviðburð. Ámundarsalur, hús Ásmundar Sveinssonar á Skólavörðuholti sem nú hýsir Listasafn ASÍ, var vagga sýninganna og því þykir við- eigandi að minnast þeirra í þessu sögufræga húsi. Á sýningunni verða nokkur þeirra verka sem sýnd voru á Holtinu, m.a. eftir Diter Roth, Hallstein Sigurðsson, Inga Hrafn Hauksson, Jón Gunnar Árnason, Jón B. Jónsson, Ragnar Kjartansson, Sigrúnu Guðmundsdóttur, Sigurjón Ólafsson og Þorbjörgu Pálsdóttur. Stór hluti verkanna er ekki lengur til svo sem Flugan hans Magnúsar Tómassonar og Súperþvottavélin hennar Rósku og verður mörgum þeirra gerð skil með ljósmyndum og öðrum heimildum. Sýningin verður opnuð á laugardaginn klukkan 15 og stendur til 30. september. Verk Rósku á úti- myndlistarsýningu á Skólavörðuholti.  alþýðuóperan serpina tekur VölDin Útsmogin og hættuleg kona Alþýðuóperan frumsýndi gamanóperuna Ráðskonuríki á Café Rósenberg í síðustu viku en tilgangur Alþýðuóperunnar er ekki síst að færa óperuna nær fólki og því er verkið flutt á vægast sagt óhef- bundnum óperustað, eins og Rósenberg. „Þetta var bara æðislegt,“ segir Ísabella Leifsdóttir um frumsýningu Alþýðuóperunnar á verkinu Serpína stjórnar hér. „Við sungum fyrir fullu húsi á Kaffi Rósenberg og þetta gekk vonum framar og við vorum ótrúlega ánægð með hversu lifandi salurinn var.“ Ráðskonuríki fjallar um þjónustu- stúlkuna Serpinu en henni þykir hún hafa heldur lítil völd á heimili sínu og einsetur sér að verða þar húsfrú með því að giftast húsráðandanum, Uberto. Ísabella og Hanna Þóra Guðbrandsdótt- ir skiptast á að syngja hlutverk Serpinu. Jón Svavar Jósefsson syngur Uberto á móti Ísabellu en Steinþór Jasonarson er í skóm Ubertos þegar hann mætir Hönnu Þóru. „Serpina er ansi útsmogin og hættu- leg, eins og nafnið gefur til kynna, en auðvitað þykir mér vænst um hana,“ segir Ísabella um persónuna. „Hún er frekar vafasöm, táldregur karlinn og dregur hann á asnaeyrunum.“ Ísabella er einn stofnenda Alþýðuóper- unnar en hún kynntist hugmyndinni um alþýðuóperur þegar hún lærði og starfaði í Bretlandi. „Þar var mikið um að óperur væru sýndar á óvenjulegum stöðum. Ég held að það breyti einhvern veginn viðhorfum fólks, kannski ómeð- vitað, til óperunnar. Það verður aðeins afslappaðra þegar það þarf ekki að fara í sparifötin og sitja kannski í þrjá tíma,“ segir Ísabella og bætir við: „Ég er viss um að fullt af fólki sem kemur á þessa sýningu hafi aldrei farið áður á óperu en þetta verður kannski kveikjan að því að það fari í Íslensku óperuna.“ Ísabella Leifsdóttir og Hanna Þóra Guðbrands- dóttir skiptast á að syngja hina útsmognu Serpinu. Hún er frekar vafasöm, táldregur karlinn. 70 menning Helgin 7.-9. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.