Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 52
Þetta er hugmynd sem er búin að vera lengi í deiglunni, það er að segja að koma
upp félagslegri aðstöðu fyrir eldri
alkóhólista,“ segir Sigurður Gunn-
steinsson, ráðgjafi hjá SÁÁ, um
svokallað Morgunkaffi í Von, alla
virka daga klukkan átta. Þangað
boðar hann eldra fólk í kaffi og
morgunverð og gott spjall.
Félagsleg einangrun
„Margt af þessu fólki er að koma úr
félagslegri einangrun sem það var
í í drykkjunni og við viljum rjúfa
einangrunina. Stefnan er sú að fólk
geti hist og drukkið saman morg-
unkaffi – eigi góða stund saman.
Svo er alltaf möguleiki á því að
gera eitthvað skemmtilegt saman á
staðnum, kynna það sem er í boði
fyrir hópinn og slíkt. Þetta er alveg
nýtt og við vonumst til að þetta
mælist vel fyrir,“ útskýrir Sigurður
sem stefnir á að hrinda átakinu úr
vör um miðjan september.
Sigurður hefur starfað hjá sam-
tökunum allt frá byrjun árið 1978.
Síðustu fimm árin hefur hann
starfað á Vogi sem fræðslustjóri
yfir ráðgjafakennslunni en í nóvem-
ber í fyrra minnkaði hann starfs-
hlutfall sitt. Hann er samt enn á
Vogi að vinna við handleiðslu og
kennslu enda á hann erfitt með að
slíta sig frá þessu gefandi starfi.
Þjóðin að eldast
Sigurður segir hóp eldri alkóhól-
ista vera ört stækkandi og telur
mikilvægt að koma á móts við
þarfir hans:
„Sumt af þessu fólki er sest í
helgan stein og hefur kannski ekki
planað hvernig það ætlar að eyða
deginum eftir starfslok og þá er
gott að hafa stað til að hittast og fá
ráð og hugmyndir. Við stefnum á
að hafa þessa fundi daglega því þá
getur fólk lagt af stað út í daginn
með ákveðna hugvekju, en til að
byrja með verður þetta líklegast
fjórum sinnum í viku, það fer allt
eftir aðsókn. Það á eftir að koma í
Námskeið um
frelsisbaráttu
alkóhólista
Gunnar Smári Egilsson, for-
maður SÁÁ, heldur þriggja
kvölda námskeið um sögu
vímuefnaneyslu og ofneyslu og
hvernig samfélög hafa brugð-
ist við vandanum; rekur sögu
fyrstu samtaka áfengis- og
vímuefnasjúklinga og hvernig
þau háðu baráttu fyrir rétt-
indum sjúklingahópsins. Hann
fer í gegnum sigra og ósigra
baráttunnar, rekur helstu rök
fyrir baráttunni og á hverju
hún hefur strandað. Þá rekur
Gunnar Smári einnig sögu
opinberrar áfengisstefnu stjór-
nvalda á ýmsum tíma; ræðir
áhrif áfengis- og vímuefnasýki
á menningu okkar og listir og
dregur upp mynd af stöðu mála.
Námskeiðið er ætlað öllu
áhugafólki um sögu, menn-
ingu og mennsku. Alkóhólismi
er áhugaverður sjúkdómur og
með því að skoða sögu hans og
átök um skilning á honum má
kynnast manninum betur; sögu
hans, menningu og mannúð.
Námskeiðið er ekki síður
áhugavert fyrir áfengis- og
vímuefnasjúklinga og aðstand-
endur þeirra; enda mikilvægt
fyrir fólk að þekkja til sögu og
baráttu þess hóps sem það til-
heyrir. Þó skal tekið fram að
þetta námskeið er til fróðleiks
og menntunar og mun ekki
gagnast neinum til meðferðar.
Námskeiðið fer fram á þrem-
ur kvöldum: Mánudeginum 17.
september, miðvikudeginum
19. september og lýkur mánu-
daginn 24. september. Það hefst
öll kvöldin klukkan 20.15 og
lýkur um klukkan 22.00. Nám-
skeiðsgjald fyrir öll kvöldin er
5.000 krónur.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi,
heldur þriggja kvölda námskeið um alkóhól-
isma í október. Á námskeiðinu mun hann
rekja sögu sjúkdómshugtaksins og lækn-
inga við alkóhólisma, hvernig meðferð við
sjúkdómnum byggðist upp, hann rekur nýj-
ustu rannsóknir um sjúkdóminn og hvernig
þær hafa ýmist styrkt fyrri hugmyndir eða
dregið fram þörf á að bæta meðferðina og
auka þjónustuna við sjúklingana.
Það þarf ekki að kynna Þórarin; hann hef-
ur starfað með alkóhólistum stærstan hluta
síns starfsferils, verið farsæll yfirlæknir hjá
SÁÁ og var einnig formaður samtakanna í
23 ár. Enginn Íslendingur hefur sinnt jafn
mörgum áfengis- og vímuefnasjúklingum
og fáir fylgst jafn vel með uppbyggingu
þekkingar á orsökum sjúkdómsins eða
þróun meðferðar við honum.
Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki
um sögu og mennsku. Alkóhólisminn er
svo áhugaverður sjúkdómur að með því að
skoða hann má kynnast bæði manninum
betur; sögu hans og menningu. Námskeiðið
er ekki síður áhugavert fyrir áfengis- og
vímuefnasjúklinga og aðstandendur þeirra.
Þó skal tekið fram að þetta námskeið er
til fróðleiks og menntunar og mun ekki
gagnast neinum til meðferðar.
Námskeiðið fer fram á þremur kvöldum:
Mánudeginum 15. október, fimmtudeginum
18. október og lýkur mánudaginn 22. októ-
ber. Það hefst öll kvöldin klukkan 20.15 og
lýkur um klukkan 22.00. Námskeiðsgjald
fyrir öll kvöldin er 5.000 krónur.
s HVAÐ: Námskeið um alkóhólisma
P HVAR: Von, Efstaleiti 7
æ HVENÆR: Hefst 17. september
m FYRIR HVERN: Allir velkomnir
L NÁNAR: www.saa.is
GuNNAR SmÁRI
EGIlSSoN mEÐ
þRIGGjA kVöldA
NÁmSkEIÐ
Rjúfum einangrun
eldri alkóhólista
Morgunkaffi fyrir eldri alkóhólista í Edrúhöllinni í Von er nýjung sem boðið verður upp í vetur.
Þetta byrjar allt um miðjan september og það er enginn annar en ráðgjafinn góðkunni, Sigurður
Gunnsteinsson, sem heldur utan þessa nýju morgunverðarfundi.
s HVAÐ: Morgunkaffi
P HVAR: Von, Efstaleiti 7
æ HVENÆR: klukkan 8 virka daga
m FYRIR HVERN: Fyrir óvirka alkóhólista 55 ára og eldri.
L NÁNAR: www.saa.is
Sigurður telur brýnt að koma
til móts við félagslegar þarfir
eldri alkóhólista.
þóRARINN TYRFINGSSoN mEÐ þRIGGjA kVöldA NÁmSkEIÐ:
Námskeið um þekkingu á alkóhólisma
s HVAÐ: Námskeið um alkóhólisma
P HVAR: Von, Efstaleiti 7
æ HVENÆR: Hefst 15. september
m FYRIR HVERN: Allir velkomnir
L NÁNAR: www.saa.is
ljós hversu mikil þörfin er og verður,
en okkar von er að þetta virki jafnvel
og meðferð okkar fyrir aldraða hefur
gert,“ segir Sigurður en árið 2004
setti SÁÁ upp sérstakt meðferðarúr-
ræði á Vík fyrir karla eldri en 55 ára.
Sú meðferð hefur reynst mjög vel, en
þörfum kvenna hafði verið mætt frá
1995 með kvennameðferðinni.
„Það er ljóst að allir aldurshópar
þurfa úrræði sem uppfylla þeirra
þarfir. Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á þessum málaflokki, þjóðin
er að eldast og svo eru þetta margir
hverjir jafnaldrar mínir,“ segir Sig-
urður sem ætlar að mæta strax um
miðjan september í morgunkaffi í
Edrúhöllinni í Von og biður fólk að
fylgjast með á vefsíðu samtakanna,
eða á Facebook.
12 SEPTEMBER 2012