Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 14
Jafnvel flokks-
systkin ýja að
afsögn
Hart hefur verið sótt
að Ögmundi Jónassyni
innanríkisráðherra eftir að
Kærunefnd jafnréttismála
úrskurðaði að hann hefði
brotið jafnréttislög við
embættisskipan. Flokks-
systkin hafa lýst yfir
vonbrigðum með við-
brögð ráðherrans við
dómnum og jafnvel
ýjað að afsögn.
Smáralind
Sími: 528 8800
drangey.is
Drangey | Napoli
Stofnsett 1934
KortavesKi 21. aldarinnar
frá þýsKalandi
Hulstur úr hágæða áli.
Ver kort m.a. fyrir rafsegul-
geislun, sem kemur í veg
fyrir að þjófar geti skannað
kortaupplýsingar. Níðsterkur
og léttur kostagripur í
mörgum litum.„Oyster“
6 kort, nafnspjöld, seðlar
og mynt
Stærð: 10x6x2,5
kr. 7.700
„RAZOR“
12-14 kort og nafnspjöld
Stærð: 10x6x2
kr. 6.900
Tilvalin tækifærisgjöf
fyrir herra og dömur.
Sendum í póstkröfu
Einhverfa og einelti
Bannað að vera öðruvísi
Ó la fannst hann ekkert óeðli-legur þótt hann væri með önnur áhugamál en skólafélag-
arnir. Í stað þess að stunda íþróttir og
fylgjast með fótboltanum vissi hann
allt sem hægt var að vita um risaeðlur,
áhugi sem þróaðist út í víðtækari áhuga
á dýraríkinu þegar hann óx úr grasi.
Fyrir vikið átti hann fátt sameiginlegt
með jafnöldrum sínum sem
fannst hann tilvalinn skotspónn
líkamlegs og andlegs eineltis
sem náði hámarki um tíu ára
aldurinn þegar nýr umsjónar-
kennari brást við af hörku og
reyndist Óla vel. Eineltið hélt
samt sem áður áfram þangað
til í unglingadeild þegar hann
var meira eða minna látinn í
friði, hundsaður. Hann var ekki
til. Það er ekki auðvelt að vera
öðruvísi.
Óli vill ekki að ég noti hans
rétta nafn. Hann er ekki sá
eini sem ég hef rætt við um
Asperger-einhverfu og einelti
síðan ég skrifaði viðtal við ungan mann
frá Bolungarvík, Hermann Ása Falsson,
sem lýsti fötlun sinni sem foreldrar hans
telja að megi fyrst og fremst rekja til
illrar meðferðar í skóla. Hann er einnig
greindur með Asperger.
Þeir, sem hafa sett sig í samband við
mig, hafa svipaða sögu að segja: Aspar,
eins og þeir kalla sig, lenda ósjaldan
í einelti. Á upplýsingasíðu fyrir for-
eldra barna með Asperger kemur fram
að flestir með þessa greiningu lendi í
einelti.
Fólk með Asperger-heilkenni á erfitt
með félagsleg samskipti og eignast því
oft fáa eða enga vini. Óli átti vini, segir
hann, en þeir stóðu ekki með honum
þegar á reyndi. Óli segist ekkert sér-
staklega hissa á því, þar sem engin
umræða hafi verið um einelti á þessum
tíma.
Óli var greindur með Asperger þegar
hann var sex ára. Hann fékk enga að-
stoð með fötlun sína og bekkjarfélögum
hans var ekki sagt frá því hvers vegna
Óli væri eins og hann var. Hann var
mjög uppstökkur og viðkvæmur, að
eigin sögn, en kennir eineltinu fyrst og
fremst um það. Hann var orðinn hrædd-
ur. Hann segist hafa brugðist mjög
harkalega við þegar honum var ögrað,
jafnvel þótt það hefði verið óviljaverk.
Ef einhver rakst í hann réðst hann á
viðkomandi af mikilli hörku. Hann vildi
helst meiða hann svo mikið að hann
myndi aldrei snerta sig aftur. Hann veit
að önnur börn hugsuðu ekki svona. Þau
slógust – en á öðrum forsendum. Hann
slóst til þess að meiða. Það hræddi hann
líka.
Fólk með Asperger á erfitt með að
lesa í aðstæður eða skilja líkamstján-
ingu. Það á oft erfitt með að setja sig í
spor annarra og hegðun þess er því oft
nokkuð and-félagsleg.
Móðir átta ára drengs segir viðhorf
samfélagsins í litla þorpinu hennar úti á
landi hafa gjörbreyst eftir að sonurinn
fékk Asperger-greiningu fyrir tveimur
árum. Bekkjarfélagar hans séu um-
burðarlyndari og skilningsríkari gagn-
vart hegðun hans og leggi sig fram við
að vera góðir við hann. Börnin eru öll
upplýst um það hvers vegna skólabróðir
þeirra hegðar sér öðruvísi en þau eiga
að venjast.
Ég hef fengið að heyra fleiri svona
sögur frá fólki og leiðarstefið í þeim er
nokkurn veginn það að eftir því sem
opnari umræða er um það hvers vegna
barn er frábrugðið – öðruvísi – eykst
skilningur og umburðarlyndi þeirra
sem í kringum barnið eru. Við erum því
miður ekki komin þangað að samfélagið
leyfi börnum ósjálfrátt að vera öðru-
vísi. Við erum að þokast í áttina að því
að börn hafi skilning á því að börn geti
verið frábrugðin – ef á því finnst skýring
og þau eru upplýst um það.
Það sem sló mig hins vegar eftir þau
fjölmörgu samtöl sem ég hef átt við
foreldra barna sem þurft hafa að þola
einelti, sem og börnin sjálf, er að þol-
endurnir vilja almennt ekki koma fram
undir nafni.
Ég get ekki lesið í það öðruvísi en
þannig að ástæðan sé skömm yfir hlut-
skipti sínu. Skömm yfir því að hafa þurft
að þola einelti. Það er óásættanlegt.
Hermann Ási líkti einelti því sem
hann varð fyrir í skóla við „andlega
nauðgun“. Er það ekki einmitt málið?
Þolendur eineltis standa jafnfætis þol-
endum nauðgana í samfélaginu. Hvort
tveggja er því miður á einhvern hátt
ennþá tabú. Umræðan um nauðganir
mjakast hægt og rólega upp á yfirborðið
þökk sé hugrökkum konum og körlum.
Þolendur nauðgana hafa stigið fram og
sagt sögu sína í því skyni að reyna að
létta skömminni af fórnarlömbunum.
Hið sama þarf að gerast í eineltismálum.
Það er ekki skömm að vera fórnarlamb.
Það er skömm að vera gerandi.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjÓnarhÓll
Kynjahalli til hægri
Hrókeringar í þingflokki Sjálfstæðisflokksins
vöktu litla hrifningu á Facebook þegar
Ragnheiði Elínu Árnadóttur var ýtt til hliðar
svo Illugi Gunnarsson kæmist í stól þing-
flokksformanns. Viðbrögð Ragnheiðar Elínar
vöktu ekki síður athygli.
Konu bolað í burtu fyrir karl. Konan er ekki
ánægð. Hún heldur samt með liðinu sínu. Þótt
henni sé hliðrað til innan þess gegn sínum
vilja. Merkilegt.
knuz.is
„Því sterka vígi Sjálfstæðisflokksins. Ég ætla
að gera allt sem í mínu valdi stendur að við
rústum því í næstu kosningum.“ - Fyrst var
Reykjanesbær lagður í rúst af Sjálfstæðis-
flokknum, en nú er stefnan á allt Suðurkjör-
dæmi...
Hallgrímur Helgason
Strákarnir okkar
Glaðhlakkaleg auglýsing Stöðvar 2 um
dagskrá sína í september hleypti illu blóði
í marga vegna þess hversu konur voru lítt
áberandi í auglýsingunni á meðan flottum
körlum eins og Bubba og Loga Bergmann var
gert hátt undir höfði.
Þessi auglýsing gerir áskrift að Stöð tvö
hreint ómótstæðilega. Það eru sko alltof
margar konur í sjónvarpinu mínu þegar ég er
bara með RÚV.
Hildur Knútsdóttir
HeituStu Kolin á
Þetta er ekki einu sinni slagsíða... þetta er
bara karlaklúbbur de lux
Heiða B Heiðars
Nei halló 365 afhverju hatið þið konur svona
fast? María Lilja Þrastardóttir
Óóó! Verða þá ekki lengur stelpukvöld á
miðvikudögum (eða fimmtudögum eða
whatever)? Magnea J. Matthiasdottir
Var búin að taka eftir þessu. Ekkert annað í
stöðunni en bojkott.
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
Þetta snýst varla um að „tengja þetta
við karlembu“. Það er bara rosalega
mikil tippafýla af þessari auglýsingu og þarf
engann súper-femínista til að koma auga á
það. Þetta er bara drasl.
Þórarinn Leifsson
Heiðursborgari Reykjavíkur
Erró var gerður að heiðurborgara Reykjavíkur
við opnun sýningar á verkum hans í Listasafni
Reykjavíkur. Fyrri heiðursborgarar Reykjavíkur eru
séra Bjarni Jónsson, Kristján Sveinsson augnlæknir
og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti.
Góð viKA
fyrir
Erró myndlistarmann
Slæm viKA
fyrir
Ögmund Jónasson innanríkisráðherra
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
14 fréttir Helgin 7.-9. september 2012 vikunnar