Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 44
Fræðsla og
góður matur
Síðasta vetur var byrjað að bjóða
upp á hollan og góðan mat og hollt
og fróðlegt efni um alkóhólisma og
meðvirkni í hádeginu á þriðju-
dögum. Þessi viðburður mæltist
vel fyrir og því er ákveðið að halda
áfram í vetur. Umfjöllunarefnin
eru fjölbreytt; foreldrahæfni,
þunglyndi, spilafíkn, útivist,
AA-samtökin, fitusöfnun, gras
og hvaðeina. Fyrirlesarar eru
reyndasta fólk SÁÁ; læknar, ráð-
gjafar, sálfræðingar og hjúkrunar-
fræðingar.
Eins og fyrr segir er boðið upp á
hollan og næringargóðan mat með
fyrirlestrunum. Verðinu er stillt í
hóf en efnið hentar öllum; áfengis-
og vímuefnasjúklingum í bata, að-
standendum og öllu áhugafólki um
mannrækt og gott líf.
Í Bandaríkjunum er talað um að eitt af hverjum fjórum eða fimm börnum eigi foreldri eða foreldra
sem er alkóhólisti og því má gera
ráð fyrir að svo sé ástatt um ein
20.000 börn á Íslandi,“ segir Lárus
Blöndal, sálfræðingur hjá SÁÁ,
en hann ber hitann og þungann af
starfi SÁÁ með börnum alkóhólista.
„Þarna úti er stór hópur barna
sem glímir við það vandamál að eiga
annað eða bæði foreldri í neyslu
en SÁÁ leggur mikið upp úr því
að koma til móts við þennan hóp,“
segir Lárus en ýmislegt er á döfinni
hjá SÁÁ í vetur og má þar nefna
aðgerðir sem samtökin settu í gang
til að koma til móts við langa biðlista
eftir sálfræðimeðferð hjá SÁÁ. Bið-
listarnir eru til komnir vegna skiln-
ingsleysis hins opinbera en félagar
í SÁÁ fjármagna að stórum hluta
þessa starfsemi.
„Við hjá SÁÁ viljum sífellt gera
betur og í því samhengi höfum við
komið upp nýrri þjónustu í formi
kynningar á því hvernig við vinnum
fyrir foreldra og börn. Þannig
leyfum við þeim sem óska eftir
þjónustu að taka fyrr þátt í starfinu
og styttum biðlistana.“
Sjálfsmynd foreldra
„Draumurinn er að þröskuldurinn
sé sem lægstur fyrir krakkana að
koma hingað á göngudeildina sjálfa
í Von, Efstaleiti,“ segir Lárus og
bendir á að í Noregi geti krakkar
komið inn án skuldbindinga og þeir
þurfa ekki að gefa upp nafn foreldra
sinna: „Þetta kallast „drop in“ og við
höfum verið að skoða möguleikann
á að bjóða upp á eitthvað slíkt. En
eins og staðan er nú þá er hægt að
óska eftir þessari þjónustu í gegnum
vef samtakanna, www.saa.is, eða
með því að hringja í 530 7600.“
„Fyrir foreldra sem eru edrú er
mikilvægt að axla ábyrgð og endur-
heimta sjálfsmynd sína sem foreldri,
efla foreldrahæfni og vinna úr því
sem hefur bjátað á. Við vitum að
alkóhólismi hefur áhrif á alla fjöl-
skylduna og það má segja að með
þessari sálfræðiþjónustu fyrir börn
alkóhólista séum við að stíga inn á
gríðarlega víðfeðmt svið. Sumt er
komið vel á veg en annað er á byrj-
unarstigi,“ segir Lárus.
Leitað að samstarfsaðilum
Páll Þór Jónsson, verkefnastjóri
hjá SÁÁ og stjórnarmaður í fjöl-
skyldudeild SÁÁ, tekur undir orð
Lárusar um að sviðið sé víðfeðmt.
En til mikils er að vinna og að sögn
Páls kemur hann að verkefninu sem
verkefnastjóri og er hann á hött-
unum eftir samstarfsaðilum. „Sú
þjónusta sem SÁÁ getur boðið fyrir-
tækjum, sem dæmi, er mun meiri
en margir kynnu að halda í fyrstu.
Mörg fyrirtæki eru að missa starfs-
menn, bæði vegna eigin alkóhólisma
og einnig út af alkóhólisma annarra,
jafnvel maka þeirra eða barna.
Það eru hreinar línur ef við tökum
saman á þessu máli munum við
auka lífsgæðin fyrir tugi þúsunda Ís-
lendinga,“ segir Páll.
Mikill vandi barna og unglinga
Helga Óskarsdóttir, áfengis- og
vímuefnaráðgjafi hjá fjölskyldudeild
SÁÁ, hefur í sínu starfi kynnst því
vel hversu mikill vandi steðjar að
fjölda barna: „Við í fjölskyldudeild-
inni erum að vinna með unglingum
og foreldrum með fjölskyldumeð-
ferð og foreldrafræðslu og svo höf-
um við verið að taka á móti 13-14 ára
unglingum auk þess sem við tökum
virkan þátt í því starfi sem Lárus
hefur leitt,“ segir Helga að lokum
en mikilvægt er að foreldrar og að-
standendur kynni sér sjúkdóminn
vel því rannsóknir hafa sýnt að ein
besta forvörnin er að vinna með
börn alkóhólista því sjúkdómurinn
virðist oft leggjast á heilar kynslóðir
sömu fjölskyldu.
Sálfræðiþjónusta
fyrir börn á aldr-
inum 8-18 ára
SÁÁ hefur um árabil þróað þjónustu
fyrir börn alkóhólista sem ekki eru sjálf
byrjuð áfengis- eða vímuefnaneyslu. Börn-
in eiga það sameiginlegt að eiga foreldra
eða forráðamenn sem eiga við áfengis-
eða vímuefnavanda að stríða, hvort sem
þau eru virk eða óvirk í neyslunni.
Stór fjöldi barna á Íslandi er í þeirri
stöðu að eiga foreldri eða forráðamann í
neyslu. Rannsóknir sýna auknar líkur á því
að barn sem á foreldri sem hefur leitað
hjálpar á Vogi endi sjálft á Vogi. Sálfræði-
þjónusta er því bæði hugsuð til að rjúfa
einangrun þeirra sem hafa búið við þessar
aðstæður og sem forvörn.
Í viðtölunum er farið yfir þætti sem
snerta stöðu þeirra svo sem það að vera
barn alkóhólista og helstu afleiðingar þess.
Börnunum er hjálpað að skilja betur stöðu
sína, fá betri innsýn í eigin styrkleika og
átta sig betur á eigin líðan og þörfum.
Gert er ráð fyrir alls átta viðtölum og að
foreldrar mæti að minnsta kosti í fyrstu
tvö viðtölin með börnum sínum.
Sérstaða viðtalanna felst í sjónrænni
vinnu með hjálp tölvu en það gerir þeim
auðveldara að tjá sig um erfiða reynslu og
tilfinningar.
SÁÁ vill ná til sem flestra og er sífellt
að betrumbæta þjónustuna. Stöðugildi
sálfræðinga hafa verið aukin til að sinna
þessum verkefnum og biðtímar styttast.
Hægt er að hringja og panta tíma hjá SÁÁ,
Efstaleiti 7 í síma: 530-7600.
Um 20.000 börn alast upp
við alkóhólisma á Íslandi
s HVAÐ: Sálfræðiþjónusta fyrir börn alkóhólista
P HVAR: Von Efstaleiti 7
æ HVENÆR: Umsamið
m FYRIR HVERN: Börn alkóhólista
L NÁNAR: www.saa.is
s HVAÐ: Hollt í hádeginu
P HVAR: á Vogi
æ HVENÆR: Þriðjudaga kl.: 12.00
m FYRIR HVERN: Alkóhólista og aðstandendur í bata
L NÁNAR: www.saa.is
Dagskráin í haust:
11. september
Af hverju er svona mikilvægt að
mæta í Von eftir meðferð?
Hörður Oddfríðarson
18. september
Að vera foreldri þegar á reynir
Lárus H. Blöndal
25. september
Þunglyndi í bata
Valgerður Rúnarsdóttir
2. október
Spilafíkn
Ásgrímur Jörundsson
9 október
Útivist er bati
Hjalti Björnsson
16. október
Að vera á varðbergi
Halldóra Jónasdóttir
23. október
Er batinn eins nú og 1977?
Sigurður Gunnsteinsson
30. október
AA og batinn
Gísli Stefánsson
6. nóvember
Fitusöfnun eftir meðferð
Þóra Björnsdóttir
13. nóvember
Að eiga Vogsbarn
Hjalti Björnsson
20. nóvember
Bara gras
Valgerður Rúnarsdóttir
27. nóvember
Bati eftir meðferð
Hjalti Björnsson
Valgerður
Rúnarsdóttir
flytur erindi um
þunglyndi í bata
í september og í
nóvember ræðir
hún um gras.
Páll Þór Jónsson verkefna-
stjóri óskar eftir samstarfi
við fyrirtækin í landinu. Helga Óskarsdóttir og
Lárus Blöndal starfa bæði með
börnum og unglingum hjá SÁÁ.
Í HÁdEgINu Á
þRIÐjudögum ER
VEISlA Í VoN:
Talið er að um
20.000 börn á Ís-
landi alist upp við
alkóhólisma.
SÁÁ HEFuR þRóAÐ SéRtÆkA SÁlFRÆÐIþjóNuStu FYRIR böRN AlkóHólIStA SEm gEFIÐ HEFuR góÐA
RAuN. VERkEFNIÐ ER bRýNt og StEFNA SAmtökIN Á StóRSókN Í þEIm EFNum. mIkIlVÆgt ER AÐ
SAmFélAgIÐ HoRFISt Í Augu VIÐ AÐ SjúkdómuRINN AlkóHólISmI HEFuR mIkIl ÁHRIF Á böRN og
uNglINgA.
4 SEPTEMBER 2012