Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. A Atvinnuleysi er böl einstaklinga, fjöl- skyldna og samfélagsins í heild. Fylgikvill- arnir eru margir. Fagna ber því að dregið hefur úr atvinnuleysi en það mældist 4,7 prósent í júlí. Spár hafa gert ráð fyrir því að það nái lágmarki sínu á árinu nú í sept- ember en aukist á nýjan leik með hefð- bundinni árstíðarsveiflu. Frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar og fram að hruni, haustið 2008, var atvinnleysi jafnan lítið hér á landi, með nokkrum undantekningum þó, einkum í kringum 1950 og á árunum 1967 og 1968. Þess gætti einnig á fyrri hluta tíunda áratugarins og í upphafi þessarar aldar. Á misserunum eftir efna- hagshrunið 2008 fjórfaldaðist hins vegar tala atvinnulausra og þegar verst var lét nærri að tíundi hver maður væri án atvinnu. Það var ný staða og ein versta afleiðing hrunsins. Niðurdrep- andi er fyrir vinnufúsar hendur að fá ekki verkefni við hæfi. Langtímaatvinnuleysi, lengra en 12 mánuðir, sem lítt þekktist áður varð staðreynd. Það brýtur fólk niður. Tölur sýndu að ungt fólk og lítt menntað var fjölmennast á atvinnuleysisskrá. Í skýrslu sem tekin var saman um ungt fólk án atvinnu, þegar atvinnuleysið var hvað mest árið 2009, voru tíunduð áhrifin sem það hafði. Frumkvæði unga atvinnulausa fólksins var lítið. Stefnu- og rótleysi var áberandi. Virk atvinnuleit var ekki mikil og unga fólkið fékk sjaldan svör þegar það sótti um vinnu. Svefnvenjur röskuðust og sumir sneru sólarhringnum við. Eitt hið alvarlegasta sem fram kom meðal þessa unga fólks var að langtímaatvinnuleysi hafði þau áhrif að sumir sem voru á bótum voru ekki ósáttir við ástandið og sáu ekki ástæðu til breytinga. Hætta er á að fólk í þessari stöðu festist í vítahring og að ör- orkubætur taki við af atvinnuleysisbótum. Beita ber öllu afli til að útrýma böli atvinnuleysisins. Meðal jákvæðra verk- efna í þá veru er átakið Vinnandi vegur sem hleypt var af stokkunum snemma á þessu ári. Um 70 prósent þeirra sem fengu vinnu í sumar í gegnum átakið höfðu verið án vinnu í meira en ár en Runólfur Ágústsson, stjórnarformaður Vinnumála- stofnunar, gerir ráð fyrir því að meirihluti þeirra sé nú kominn með framtíðarstarf. Gerðir voru um 1400 ráðningarsamningar við einstaklinga sem verið höfðu án vinnu í meira en tólf mánuði. Árangurinn er því afgerandi. Fyrir hvert prósentustig sem dregur úr atvinnuleysi minnka útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs um 3 millj- arða á ársgrundvelli. Það vegur á móti út- gjöldum vegna vinnumarkaðsúrræða sem gripið hefur verið til, eins og fyrrnefnds átaks þar sem ávinningurinn er allra, enda standa að því samtök atvinnurekenda, sveitarfélög, stéttarfélag og ríkið. Um leið og atvinnurekendum er gert kleift að ný- ráða starfsfólk, með styrk, er atvinnuleit- endum gefið tækifæri til atvinnuþátttöku. Þeim sem áður voru atvinnulausir vex því ásmegin. Til lengri tíma litið verður hins vegar ekki vinnu að fá fyrir allar vinnufúsar hendur, sem hlýtur að vera markmiðið, nema fjárfesting aukist og hjól atvinnulífs- ins snúist hraðar. Þótt staðan á vinnu- markaði fari, sem betur fer, batnandi er brýn þörf á að fjölga störfum. Fjárfesting hefur verið allt of lítil hér á landi undan- farin ár og atvinnuleysi helst í hendur við litlar fjárfestingar. „Fyrir því er sögulegt samhengi,“ sagði Svana Helen Björns- dóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, á síðu Samtaka atvinnulífsins um leið og hún benti á að fyrir hverja prósentu sem fjárfesting eykst má gera ráð fyrir því að atvinnuleysi minnki um hálfa prósentu. Fleiri orð þarf vart að hafa um mikilvægi þess að greiða fyrir aukinni fjárfestingu. Vinnumarkaðsúrræði hjálpa en aukin fjárfesting er það sem þarf Ráð gegn böli atvinnuleysisins Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Illa farið með góðan dreng Ég er bæði sár og svekktur og veit ekki hvað ég hef gert af mér. Sjónvarpsmaðurinn vinsæli, Magnús Hlynur Hreiðarsson, sem hefur verið sérlega fundvís á skemmtilegar fréttir af Suðurlandi, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar honum var fyrirvaralaust sagt upp hjá Ríkisútvarpinu. Heiðarlegur og góður bloggari Ég er ekkert smeykur. Ef ég tapa, þá geri ég það með reisn. Ef ég vinn, geri ég það með auðmýkt. Teitur Atlason mætti Gunnlaugi M. Sigmundssyni fyrir dómi þar sem hann reynir að verja hendur sínar og bloggheiður. Margt er undrið Þá hefur þetta dregið úr trúverðugleika mínum því ég var viðurkenndur sem heiðarlegur og góður rekstrarmaður. Gunnlaugur M. Sigmundsson stefndi bloggaranum Teiti Atlasyni fyrir dóm og samkvæmt þessu ekki síst til þess að endurheimta æru sína sem góður bissnissmaður. Enda hundfúlt Ég er nú ekkert sérstaklega ánægð með þetta. Ragnheiður Elín Árnadóttir, sem verið hefur þingflokksformaður Sjálfstæðis- flokksins í tvö ár, var í vikunni látin víkja fyrir Illuga Gunnarssyni sem er risinn upp úr rústum Sjóðs 9. Bannað að plata! Ég stend sjálfur á gati og veit ekki neitt. Þetta er hræðilegt. Þetta er ekki gaman. Þórarinn Engilbertsson flæktist illa í eigin sagnavef eftir að ýkjusaga hans um alvarlega líkamsárás drengja í Breiðholti á sex ára dreng reyndist ekki einu sinni vera mýfluga sem breyttist í úlfalda. Slökkt á perunni Í ljósi þess að nú er búið að innleiða reglugerð ESB um kvikasilfursmengandi spar- perur – þá verð ég að hryggja ykkur með því að ég hef keypt upp lagerinn af gömlu góðu 60 W – Edison glóperunum – ... Evrópusambandið gerði enn eina aðförina að lífsgæðum og sálarheill Vigdísar Hauksdóttur alþingiskonu með banni á gömlu, hlýju glóperunni. Vigdís sneri hins vegar á ESB og tryggði sér áratugabirgðir af ljósaperum sem eru svo góðar að þær gætu nánast verið íslenskar. Í sögu eftir Kafka Ég neita sök og mun ekki tjá mig frekar um málið að svo stöddu. Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, verst eins og fleiri fyrir dómi þessa dagana en kýs að segja sem minnst.  VikAn sem VAr Maður vikunnar að þessu sinni er Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingkona og fráfarandi þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins: „Þetta verður að teljast vera með betri titlum sem ég hef fengið. Allavega í þessari viku,“ sagði Ragnheiður um leið og hún þakkaði fyrir sig. Hún hefur setið á þingi í rúm fimm ár og þar af síðustu tvö ár verið þingflokks- formaður. Aðspurð hvernig næsta vika verði segir Ragneiður að það losi um að vera ekki lengur þingflokksformaður og nú geti hún einbeitt sér meira að sinni pólitík eytt meiri tíma með fjölskyldunni. Hún á tvo stráka, fjögurra og tíu ára gamla, og tvær stjúpdætur sem eru átján og tuttugu og þriggja. Það eru því alltaf næg verkefnin hjá henni og manninum hennar, Guðjóni Inga Guðjónssyni sölustjóra. „Fátt er svo með öllu illt,“ segir Ragnheiður að lokum, nokkuð glaðbeitt. MaðuR vikunnaR Með betri titlum sem ég hef fengið Krumma Gylfaflöt 7, 112 Reykjavík 587-8700 www.krumma.is Full búð af nýjum BRIO vörum 4.199 kr. 14.990 kr. 3.094 kr. 14.990 kr. 3.315 kr. 3.648 kr. 12 viðhorf Helgin 7.-9. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.