Fréttatíminn - 07.09.2012, Blaðsíða 57
Sækjast sér um líkir
H
„Hér er eitthvað fyrir þig, elskan,“ sagði
konan um leið og hún benti mér á dag
blaðsauglýsingu þar sem við sátum yfir
blöðunum í morgunkaffinu á laugar
daginn. Ég taldi víst að hún hefði rekist
á fótanuddtæki, bumbubana eða annað
þarfaþing en gamansemi þessarar kyrr
látu morgunstundar var enn þroskaðri þar
sem ég sat í sakleysi mínu með rúgbrauð
sneið og kaffibolla. Við blasti heilsíðuaug
lýsing ferðaskrifstofu sem boðaði til sín
ákveðinn aldurshóp. „Úrvalsfólk (60+)“
stóð þar stórum stöfum og fyrir neðan
voru kynntar Kanaríeyjaferðir vetrarins –
Kanaríeyjaferðir fyrir aldraða!
Mér svelgdist á kaffinu og rúgbrauðinu
enda hafði ég ekki séð mig í því ljósi sem
lífsförunautur minn sá mig þarna. Víst
hef ég heyrt og lesið um Kanaríeyjaferðir
fyrir fólk á virðulegum aldri en aldrei mát
að sjálfan mig við þann hóp. Hef raunar
staðið í þeirri meiningu að ég væri einn
fárra sem aldrei hafa komið til Kanarí
eyja. Þangað hefur meira að segja minn
betri helmingur farið, með systur sinni á
fund foreldra sinna sem þar dvöldu sér til
endurnæringar og sálarbótar. Eitthvað var
gantast með það að þær systur hefðu ekki
áttað sig á því, við göngu á strönd þar ytra,
hvort strandgestir væru berir eða í illa
straujuðum sundfötum.
Nú sá konan sem sat gegnt mér eigin
mann sinn í hópi jafningja sinna. Hún
nefndi ekki hvort hún gæti hugsað sér að
fara með í slíka för – en þó má ætla að hún
telji sig skuldbundna til þess sem hlut
hafi í svo löngu hjónabandi, þó ekki væri
nema sem stuðningsaðili. Áður en til þess
kemur má pistilskrifarinn búast við því að
vera sendur á boccianámskeið.
Sú góða kona áttar sig hins vegar ekki
á því í hvaða hóp eiginmaður hennar er
kominn. Það er vegna þess að synir mínir
og tengdasynir litu svo á, sennilega með
réttu, að konur hefðu ekki sérstakan
áhuga á bíósýningu sem þeir buðu föður
sínum og tengdaföður að sjá með sér í
vikubyrjun, harðhausamyndina The Exp
endables 2. Þeir tóku mig með snemma
árs í fyrra á forverann, The Expandables.
Þá vissi ég ekki á hverju
ég átti von en var
betur undir sýn
inguna búinn nú.
Söguþráðurinn
er einfaldur.
Gengi mála
liða slátrar
fleiri föntum
og fúlmennum
en tölu verður
á komið. Byss
urnar eru
stærri en notað
ar eru við stór
gripaveiðar og
tröllslegur hlátur
skekur bíóið þeg
ar hausar fjúka
og blóðið
slettist. Þetta er karlabíó þar sem saman
koma helstu harðhausar kvikmyndasög
unnar – vöðvastælt hörkutól sem bregður
hvorki við sár né bana, fremur en Gunnari
forðum – og allir á þeim aldri að komast
í hóp „Úrvalsfólks (60+)“. Ég sé þá samt
ekki fyrir mér í boccia.
Fyrir málaliðahópnum fer slagsmála
hundurinn Sylvester Stallone, 66 ára
gamall. Ungir menn standast honum
ekki snúning. Arnold Schwarzeneggar
gefur heldur ekkert eftir, enda ekki nema
65 ára. Hann er kominn aftur, betri en
nokkru sinni. Mesta gleði piltanna – og
að mér sýndist annarra karla í kvik
myndahúsinu – vakti þó innkoma Chuck
Norris. Sá harðhaus er 72 ára. Ég verð að
viðurkenna að sögu hans sem kvikmynda
leikara þekkti ég ekki en í myndinni stóð
ekkert í vegi fyrir Norris og vopni hans.
Hann er nagli.
Svo vel voru strákarnir að sér um
Chuck Norris að í hléi röktu þeir sögu
hans í slagsmálamyndum. Á heimleiðinni
bættu þeir um betur og sögðu brandara
sem eignaðir eru Chuck Norris og hörku
hans. Af þeim má dæma að aðrir vilja ekki
mæta kappanum í ham. Hann var sagður
vera með bjarnarteppi heima en tekið var
fram að björninn sem þakti gólfið væri
ekki dauður en þyrði ekki að hreyfa sig.
Þá ku gata hafa verið nefnd eftir harðjaxl
inum en götunafninu var breytt því enginn
lifir það af að ganga yfir Chuck Norris.
Annað dæmi um hörku Chuck var sagan
um að hann hefði dáið fyrir 20 árum en
Dauðinn hefði enn ekki haft kjark til að
segja honum frá því. Höggþungur er harð
hausinn en eitt sitt gaf hann hrossi svo
hressilega utan undir að háls afkomenda
þess lengdust til muna enda þekkjum við
þá sem gíraffa. Fleiri dýrasögur tengjast
Chuck Norris, meðal annars sú að skrölt
ormur hafi eitt sinn bitið kappann.... og
eftir þrjá kvalafulla daga... hafi skröltorm
urinn drepist. Gamli harðhausinn mun
víst hafa verið fyrsti maðurinn sem steig
fæti sínum á Mars – sem sést af því þar
finnst ekkert líf!
Síðan eru sögur af öðrum toga. Flettir
þú Chuck Norris upp í leitarvél Google
finnst hann ekki – Chuck Norris finnur
þig. Sagan segir enn fremur að Chuck
Norris læri aldrei – hann viti allt
fyrir fram. Það má meðal annars
sjá af því að þegar Alexander
Bell fann upp símann biðu þrjú
„missed calls“ á síma upp
finningamannsins. Og fyrst
við erum farið að sletta ensku
er best að láta einn fljóta með
á móðurmálinu, enda verður
hann trauðla þýddur: „Chuck
Norris doesn´t flush the toilet, he
scares the shit out of it.“
Það er því ekki í kot vísað að vera
í hópi með þessum ofurmennum, að
minnsta kosti kominn á sama ára
tug og þeir – nema auðvitað hinn
ódauðlegi Chuck Norris sem
er orðinn enn eldri. Hann
viðurkennir það bara
ekki – og enginn
þorir að segja
honum frá
því.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
4
3
2
5
9
568 8000 | borgarleikhus.is
Stein
unn Á
sa,
Með o
kkar
augu
m
4 sýn
ingar
að eig
in val
i
Áskri
ftar-
kortið
mitt
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Kaupum Á allra vörum
gloss frá Dior og styrkjum
börn með sjaldgæfa,
ólæknandi sjúkdóma.
Eitt, tvö, þrjú
og það varst þú...
Helgin 7.-9. september 2012 viðhorf 41