Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 76

Fréttatíminn - 07.09.2012, Page 76
Helgin 7.-9. september 201260 tíska www.sensai.is PRIMED & PERFECTED Tvöfaldur raki – einstök áhrif fyrir húð þína Með notkun Lotion rakavatns og Emulsion rakakrems getur þú tvöfaldað rakainnihald húðarinnar með einstökum áhrifum Koshimaru silkis bæði dag og nótt. Koishimaru silki er dýrmætasta silki í heiminum og hefur SENSAI uppgötvað sérstaka orku í einstökum trefjum þess. Þú munt finna það. Þú munt sjá það. Húð þín man það. Gerum lífið fallegra með SENSAI. AC442_CELLULARPERFORMANCE_NyttLifad220x297 31/08/12 16:24 Page1  Trend Karlmannsbindi eru málið í haust Tískuvit fylgir nafninu Madonna klæddist oft svörtu bindi við hvíta skyrtu á tónleika- ferðalagi sínu í sumar. Í byrjun árs voru karlmannsbindi áberandi á tískupöllunum hjá helstu hönnuðum heims, sem frumsýndu þá hausttískuna 2012 fyrir áhugasama. Dömurnar í Hollywood hafa verið duglegar að taka upp þetta trend og skarta karlmannsbindum óspart á rauða dreglinum við blússur, skyrtur eða peysur með kraga. Leikkonan Jessica Alba með svart glimmerbindi við gráa peysu og hvítan Pétur Pan kraga. Emmy Rossum klæðist hér einlitum Ralph Lauren fatnaði þar sem glansandi bindið fékk að njóta sín. Nafnið Kate virðist vera það heitasta í tískuheiminum um þessar mundir, hvort sem fjallað er um fyrirsætuna Kate Moss, krónprinsessuna Kate Middleton, leikkonuna Kate Bosworth eða fatahönnuðinn Mary-Kate Olsen. Allar með tölu hafa þær verið áberandi í tískuheiminum þetta árið, enda miklir frumkvöðlar í klæðavali. Ofurfyrir- sætan Kate Moss hefur alltaf verið með rokkaðan og frjálslegan stíl sem hefur orðið vinsælli með hverju árinu. Mary-Kate Olsen fer ekki langt án þess að hafa tvíburasystur sína, Ashley, sér við hlið, og saman mynda þær stórt tískuveldi sem rekur vinsælt tískuhús. Stíll Mary-Kate er mjög villtur og er hún óhrædd að klæðast rifnum fötum eða að vefja sig í gardínur eftir hentisemi. Kate Bosworth hefur alla tíð verið mikil tískudrottning en hún er dugleg að leggja línurnar þegar kemur að nýjum trendum. Kate Middle- ton varð sérstaklega eftirtektar- verð eftir að hún giftist Vil- hjálmi prins og hefur athyglin beinst mikið að klæðavali hennar sem er fágað og dömulegt.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.