Læknablaðið - 15.05.1995, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
387
Fjöldi <7f
100
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 20 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42
Vikur
Mynd. Hlutfall kvenna sem hœtt höfdu vinnu við mismunandi meðgöngulengd (cumulative rate).
vegna, upphæð launa, sjúkrabætur og fæðing-
arorlof í meðgöngu. Leitað var afrita af vott-
orðum í mæðraskrá konunnar.
Upplýsingar voru skráðar nafnlaust og færð-
ar af skráningareyðublöðum á gagnaforrit. Við
flokkun á vinnu var stuðst við áður birta ís-
lenska flokkun (5). Erfið vinna var talin taka til
verkamanna, afgreiðslufólks, iðnaðarstarfa,
sjúkrahússtarfsmanna, þjóna og bænda.
Tölfræðilegur samanburður á meðgöngu-
lengd og fæðingarþyngd milli hópa var gerður
með ópöruðu tvíhliða t-prófi, en í öðrum sam-
anburði var notað kí-kvaðratspróf með einni
frítölu. Munur skoðaðist marktækur ef
p<0,05. Siðanefnd Landspítalans samþykkti
athugunina.
Niðurstöður
Meðalaldur kvennanna var 28,2 ár (SEM
0,3). Þær áttu að meðaltali 1,1 (SEM 0,05) barn
fyrir þessa meðgöngu. Meðallengd meðgöngu
var 279 dagar (SEM 0,7; 224-297 dagar) og
börnin vógu að meðaltali 3623g (SEM 29,5).
Kynjaskipting var 222 sveinbörn (53,5%) og
193 meybörn (46,5%). Skipting kvennanna og
maka þeirra í starfsstéttir er sýnd í töflu I.
Giftar eða í sambúð voru 367 (90,2%).
Samtals voru 347 konur í vinnu á meðgöngu
(af 407=85%). Af þeim hættu 304 (87,6%)
vinnu fyrir fæðingu. Einnig gátu 10 húsmæður
ekki sinnt störfum sínum á meðgöngunni.
Konurnar hættu vinnu í vaxandi mæli allt frá
Tafla II. Ástœður forfalla í meðgöngu hjá konum sem hœttu
vinnu.
Ástæður Fjöldi (%)
Fyrirfram ákveðiö aö
hætta þennan dag 47 (15,0)
Fyrirfram ákveðið sumarleyfi 40 (12,7)
Atvinnuleysi 22 (7,0)
Veikindi
— Þreyta, svefnleysi 56 (17,8)
— Meðgöngueitrun, hækkaður
blóðþrýstingur, bjúgur 31 (9,9)
— Blæðing 13 (4,1)
— Samdráttarverkir 16 (5,1)
— Grindargliðnun, bakverkir 48 (15,3)
— Ógleði 2 (0,6)
— Önnur veikindi 20 (6,4)
Vinnuleiði 5 (1.6)
Fósturgalli 4 (1,3)
Flutningur 2 (0,6)
Ýmsar ástæður 8 (2,5)
Samtals 314
upphafi meðgöngu (sjá mynd), en að meðaltali
á 216. degi, það er við tæplega 31 viku eða 65,3
dögum fyrir fæðingu (SEM 3,5). Ástæður for-
falla á meðgöngu eru sýndar í töflu II. Um 60%
(186 konur) hættu vinnu vegna veikinda í með-
göngunni, oftast vegna þreytu eða verkja í
stoðkerfi. Tæpur þriðjungur (87 konur) hafði
ákveðið að vinna ekki til loka meðgöngunnar
og af þeim notaði tæpur helmingur (40) sumar-
leyfið í því skyni.