Læknablaðið - 15.05.1995, Blaðsíða 51
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
421
tenging fjölsykra við prótein eykur ónæmissvar gegn
þeim. Gott mótefnasvar hefur fengist eftir bólusetn-
ingu tveggja til fimm ára barna með fjölsykru af
hjúpgerð 6B sem tengd hefur verið á Tetanus toxoid
(Pn6B-TT). Frá 1988 hefur tíðni penicillin ónæmra
pneumókokka farið vaxandi hér á landi, og eru þeir
nú um 20% allra ræktaðra pneumókokka. Um 75%
þeirra eru fjölónæmir sem næstum allir eru af hjúp-
gerð 6B. í þessari rannsókn athuguðum við ónæmis-
vekjandi áhrif bólusetningar með Pn6B-TT í tveim-
ur hópum ungbarna.
Hópur A var frumbólusettur við þriggja, fjögurra
og sex mánaða aldur, en hópur B við sjö og níu
mánaða aldur. Báðir hópamir voru endurbólusettir
við 18 mánaða aldur. Blóð var tekið fyrir og fjórum
vikum eftir hverja bólusetningu. Nefkoksræktun var
gerð í hverri komu. Aukaverkanir voru skráðar sex,
24 og 48 klukkustundum eftir bólusetningu. Mótefni
voru mæld með ELISA (IgG, IgGl, IgG2, IgA,
IgM) og RIA (heildarmótefni).
Eftir frumbólusetningu höfðu 2/21 í hópi A mynd-
að meira en 300 ng Ab N/ml (verndandi mark) af
heildarmótefnum í sermi, en 10/19 náðu því í hópi B
(p<0,005). Niðurstöður um heildarmótefnamagn
eftir síðustu bólusetningu liggja ekki enn fyrir. Sér-
tæk IgG, IgA og IgM svörun eftir síðustu bólusetn-
ingu má sjá í eftirfarandi töflu.
Fj>fjórföld aukning eftir 18 mán. bólus. Fj. meö Pn6B > 3 ng/ml
Fjöldi IgM igG . IgA igG
A 21 15 11 10 16
B 19 10 16 5 15
Aukaverkanir voru mildar, það er staðbund-
inn roði og bólga. Hiti (^38°C) sást eftir 13 af
142 bólusetningum. Þrjú börn fengu >38,7°C
hita, sem skýrðist af öndunarfærasýkingu.
Marktæka aukningu mátti sjá í IgG mótefnum
eftir fyrstu þrjár bólusetningar í hópi A
(p<0,01) og eftir tvær bólusetningar í hópi B
(p<0,001), auk þess sem lokabólusetningin jók
svarið enn betur í báðum hópum (p<0,001).
Eftir 18 mánaða bólusetninguna reyndist ekki
marktækur munur milli hópanna með tilliti til
IgG mótefna, þó betra svar hafi fengist til að
byrja með í hópi B.
Niðurstöður okkar sýna að Pn6B-TT er ör-
uggt bóluefni og eykur mótefnamyndun í ung-
börnum. Þessi svörun er svipuð og sjá má eftir
bólusetningu ungbarna með próteintengdum
fjölsykrum af H. influenzae gerð b, og bendir
til þess að tenging pneumókokka-fjölsykra við
prótein geti reynst heillavænleg leið til þróunar
bóluefnis til notkunar í ungbörnum.
Höfundaskrá
Atli Dagbjartsson ...................... 2, 4
Árni V. Þórsson ......................... 8
Björn Árdal ............................. 3
Elías Ólafsson .......................... 6
Elísabet Konráðsdóttir................... 8
Geir Friðgeirsson........................ 2
Gestur Pálsson........................... 2
Gestur Viðarsson......................... 9
Guðbjörg Jónsdóttir ..................... 7
Guðmundur K. Jónmundsson................. 5
Gunnar Biering .......................... 2
Hauser WA ............................... 6
Helgi Valdimarsson....................... 9
Hróðmar Helgason ........................ 7
Hörður Bergsteinsson..................... 2
Ingibjörg Halldórsdóttir ................ 1
Ingileif Jónsdóttir .................... 1, 9
Jón R. Kristinsson....................... 5
Karl G. Kristinsson...................... 9
Kristín E. Guðjónsdóttir ...............
Kristín E. Jónsdóttir...................
Pétur Lúðvígsson........................
Rachel, sjá Schneerson
Schneerson R............................
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir ............ 1,
Sólveig Sigurðardóttir..................
Steinn Jónsson .........................
Sveinn Kjartansson .....................
W.Allen, sjá Hauser
Þóra Víkingsdóttir........................ 1
Þórólfur Guðnason ...................... 1, 9
VOVOONVOVO ONfOOO