Læknablaðið - 15.01.1996, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
33
þriggja, fjögurra, sex og 14 mánaða gömlum.
Börnunr frá 15 mánaða aldri til loka þriðja árs
var boðið upp á einn skammt árið sem bólu-
setningin hófst.
Á 10 ára tímabili 1980-1989 veiktust 92 börn
af Hib heilahimnubólgu, 61 af Hib blóð- eða
liðsýkingu og 21 af bráðri barkaloksbólgu.
Á fimm ára tímabili 1990-1994 fékk ekkert
barn heilahimnubólgu af völdum Hib né
barkaloksbólgu en þrjú fengu blóðsýkingu af
völdum Hib.
Hib stofnar voru 10-16% af H. influenzae
stofnum sem fundust í sýnum öðrum en blóði,
mænu- og liðvökva frá börnum yngri en sex ára
á ýmsum tímabilum til vors 1991 en fækkaði
síðan ört.
Mótefni gegn hjúpsykrungum (PRP) Hib í
blóði mældust <0,15 pg/ml hjá 20% barna eftir
þrjá bóluefnisskammmta en >1,0 pg/ml hjá
95% barna eftirfjóra bóluefnisskammta. Ekk-
ert fullbólusett barn hefur fengið sjúkdóm af
völdum Hib en eitt fékk heilahimnubólgu og
tvö fengu blóðsýkingu eftir einn skammt og
eitt fékk blóðsýkingu eftir þrjá skammta.
Árið 1993 fékk 21 fullbólusett barn þriggja til
fjögurra ára, aukaskammt af PRP-D. Meðal-
títri (Geometric Mean Titer) mótefna gegn
PRP reyndist l,llp.g/ml fyrir skammtinn og
137,11 pg/ml eftir. Meðalgildi mótefna gegn
barnaveiki mældist 0,37 AE fyrir skammtinn
og 11,69 AE eftir.
Óvíst er hversu lengi mótefni gegn PRP end-
ast í bólusettum þegar Hib stofnar hverfa.
Inngangur
Haemophilus influenzae af hjúpgerð b (Hib)
getur valdið hættulegum sýkingum í heila-
himnum, blóði og barkaloki. Eru þær algeng-
astar hjá börnum innan fimm ára aldurs en
koma einnig fyrir hjá eldri börnum og fullorðn-
um.
Tíðni heilahimnubólgu af völdum Hib í
börnum yngri en fimm ára á íslandi 1974-1988
var 43 á 100.000 (1).
H. influenzae af öðrum hjúpgerðum
(a,c,d,e,f) eða án hjúps veldur oft sýkingum í
öndunarvegum og miðeyra, en mjög sjaldan í
blóði eða heilahimnum.
Síðla árs 1988 ákváðu heilbrigðisyfirvöld að
bjóða upp á bóluefni gegn Hib fyrir ungbörn,
PRP-D (ProHIBiT®, Connaught Ltd), eina
bóluefnið sem þá var komið á markað af eggja-
hvítutengdum bóluefnum gegn Hib. Það er
myndað úr fjölsykrungi í hjúpi bakteríunnar
Polyribosyl- Ribitol Phosphate (PRP) tengd-
um Diphtheria toxoid (D), sama efni og er í
barnaveikibóluefni. Aðalhvatningin til að taka
það í notkun hér voru niðurstöður sem birtust
1987 úr könnun á árangri bólusetningar 30.000
barna með PRP-D í Finnlandi en þar hafði það
veitt 87% vernd eftir þrjá skammta á fyrsta
aldursári (2).
Var byrjað að gefa það þriggja mánaða
börnum hér á landi í maí-júní 1989 og skammt-
ar endurteknir við fjögurra, sex og 14 mánaða
aldur. Börnum frá 15 mánaða til loka þriggja
ára aldurs var boðinn einn skammtur árið sem
bólusetningin hófst (3). PRP-D hefur því verið
í notkun hér í sex ár.
Niðurstöður um árangur eftir þriggja og
fjögurra ára notkun hafa birst (4,5).
Hér verður skýrt frá fjölda sjúklinga með
heilahimnubólgu, blóðsýkingu og barkaloks-
bólgu af völdum Hib á árunurn 1980-1989 í
samanburði við fjölda þeirra sem greindust
1990-1994 og þeim fjölda Hib stofna sem fund-
ust í ýmiss konar sýnum frá börnum og full-
orðnum á mismunandi tímabilum fyrir og eftir
1989. Loks verður getið um mótefnamælingar.
Efniviður og aðferðir
Fjöldi barna með Hib heilahimnubólgu, Hib
blóðsýkingu án heilahimnubólgu og bráða
barkaloksbólgu fannst með leit í skrám sýkla-
fræðideildar Landspítala og sjúkdómaskrám
barnadeilda Landspítala, Landakotsspítala og
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri en tala full-
orðinna með þessar sýkingar er fengin úr
skrám sýklafræðideildar.
Leit að Hib í öðrum sýnum en blóði, mænu-
vökva og liðvökva var gerð 1984,1986,1990 og
1994. í þrjá til fjóra mánuði á hverju þessara
ára var leitað að Hib meðal allra H. influenzae
stofna sem fundust í aðsendum sýnum frá
hálsi, nefkoki, öndunarvegi, eyra og auga. í
sýnum frá börnum yngri en sex ára var leit þó
gerð samfleytt frá september 1990 til maí 1992.
Á árinu 1992 var safnað nefkokssýnum úr
börnum á dagheimilum til leitar að fjölónæm-
um pneumókokkum (Karl G. Kristinsson og
fleiri) og gafst þá tækifæri til að leita jafnframt
að Hib stofnum.
Nefkoksstrokum úr 17-21 árs gömlum þátt-
takendum í könnun á mótefnamyndun tveggja
meningókokkabóluefna var safnað 1993 til leit-
ar að meningókokka- og Hib berurn.