Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1996, Page 109

Læknablaðið - 15.01.1996, Page 109
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 85 Alþjóðlegir staðlar um örugga starfshætti við svæfíngar og deyfíngar Samþykkt af Alþjóðasamtökum svæfmgalæknafélaganna, World Federation of Societies of Anesthesiologists 13.júní1992 Þróað af alþjóðlegum starfshópi er fjallaði um: Öryggi svæfinga og deyfinga. L.H. D.J. Boij (Holland), J.M. Desmonts (Frakkland), P.G. Duncan (Canada), J.H. Eichhorn (U.S.A.) ritari, J. S. Gravenstein (U.S.A.), C.D. Hanning (Bretland), K. Ikeda (Japan), W.B. Runciman (Ástralía), H. Stoeckel (Þýskaland), T. Tammisto (Finnland). Inngangur Þessir staðlar eiga erindi til allra svæfingalækna í heimin- um. Ætlun þeirra er að vera leiðarljós fyrir svæfingalækna, svæfingalæknafélög, stjórnend- ur á sjúkrahúsum og í öðrum stofnunum til að efla gæði og öryggi svæfinga og deyfinga. Fyrir einhverja svæfinga- lækna eru þessir staðlar mark- mið til að stefna að, fyrir aðra nú þegar í fullu gildi skilyrðis- laust. Mikilvægast er að þeir höfði til sérhvers svæfingalækn- is. Vaktarar eru öflugir öryggis- þættir við svæfingar og deyfing- ar og eru mikill styrkur við færni svæfingalæknis, en geta ekki komið í hennar stað. Lágmarksstaðlar eiga að gilda um sérhverja ráðgerða svæfingu eða deyfingu, frá mati á sjúklingi fyrir innleiðslu svæf- ingar, uns hann útskrifast af vöknun; í bráðatilvikum gilda Þýðandi Ólafur Z. Ólafsson svæHngalæknir. þó ætíð tafarlaus viðbrögð. Eft- ir því sem efnahagur og þjálfun leyfa ætti að stefna að ítarlegri ráðstöfunum. Fyrst ætti að koma í framkvæmd þeim sem eindregið er mælt með, síðan þeim sem mælt er með og loks þeim sem hvatt er til að mæta. (I viðauka A eru örfá hugtök út- skýrð, sem notuð eru í þessu skjali.) Ráðgert er að þessir staðlar muni þurfa endurskoðunar við, eftir því sem verkhættir og tækni þróast. Almennir staðlar 1. Fagleg stada: Svæfinga- læknisfræði er nauðsynlegur þáttur í undirstöðum heilbrigð- iskerfisins og verðskuldar við- eigandi hlutdeild í því. Eindreg- ið er þess vænst að svæfinga- læknar hafi hlotið tilskylda menntun og þjálfun og fullnægi á allan hátt þeim kröfum sem til þarf, bæði klínískt og að öðru leyti. Þar sem að svæfingar og deyfingar eru stundaðar af öðr- um en svæfingalæknum, er eindregið mælt með því, að það starfslið hafi hlotið viðeigandi menntun og þjálfun og gengist undir hæfnismat, og sé jafn- framt undir eftirliti og stjórn sérfræðinga í svæfingalæknis- fræði. 2. Faglegar stofnanir: Svæf- ingalæknar eiga að stofna eigin samtök og stofnanir sem geta verið staðbundin, svæðabundin og á landsvísu, til þess að setja vinnustaðla, stuðla að og fylgj- ast með þjálfun og viðhalds- menntun með tilheyrandi stað- festingum og viðurkenningum og efla á allan hátt viðgang svæf- ingalæknisfræðinnar sem sjálf- stæðrar sérgreinar. Þessi sam- tök eiga síðan að tengjast sams- konar hópun innan svæðis og lands sem og á alþjóðavísu. 3. Menntun, þjálfun, skírteini, viðurkenningar: Tryggja skal að nægjanlegur tími og möguleikar séu á faglegri menntun og þjálf- un, bæði í upphafi og til við- halds þekkingar og færni. Mælt er með formlegri staðfestingu á menntun og þjálfun sem og á þeim viðurkenningum sem ávinnast. 4. Skráning og tölfrœði: Gera á skrá um alla þætti og gang sér- hverrar svæfingar og deyfingar, sem geymd skal í sjúkraskrá sjúklings. Ennfremur mat og álit á sjúklingi fyrir innleiðslu svæfingar svo og varðandi eftir- meðferð. Mælt er með því að einstaklingar, deildir og stofn- anir á svæðavísu og landsvísu sjái um að safna upplýsingum með tilhlýðilegri yfirsýn um allt varðandi svæfingar og deyfing- ar, til að auka framfarir og efla öryggi, nýtingu, árangur og virðingu. 5. Fagleg gagnrýni: Koma skal upp leiðum innan stofnana, svæða og/eða á landsvísu, til að endurskoða stöðugt framgang og framkvæmd svæfinga og deyfinga. Reglubundin umræða meðal jafningja í fullum trúnaði er mikilsverð, þar sem fjallað er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.