Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1997, Síða 28

Læknablaðið - 15.07.1997, Síða 28
494 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Tilgangurinn með þessari grein er að kynna lesendum Læknablaðsins HL-prófið með því að sýna hvernig prófið greindi heilsutengd lífs- gæði mismunandi sjúklingahópa í annarri rannsókn og hvetja til notkunar þess eða ann- arra prófa í sama tilgangi sem hluta af klínísk- um og fræðilegum rannsóknum við mat á ástandi sjúklinga fyrir og eftir meðferð. Prófið er birt í viðauka. Efniviður og aðferðir Prófið var samsett af 30 spurningum sem varða 11 þætti heilsutengdra lífsgæða (tafla I). Svarmöguleikar eru þrír, fimm eða sex við flestum spurningunum nema 1-10 við spurning- um sem svara á með sjónmáli (visual analog- ue). Spurningar í hverjum þætti eru ein til fimm. í því skyni að auðvelda samanburð á milli hluta prófsins er samanlögðum einkunn- um í hverjum þætti og í prófinu í heild breytt í T-einkunnir þar sem meðaleinkunn er 50 og staðalfrávik er 10 (17) eins og sýnt er í töflu II. Taflan sýnir umbreytingu grunneinkunna byggða á þeim fjórum hópum sem þegar hafa verið prófaðir. Niðurstöður eru sýndar með línuriti samkvæmt einkunnum fyrir hvern þátt og fyrir prófið í heild (mynd 1). Lágar ein- kunnir sýna lítil lífsgæði. Til þess að athuga nánar tengsl líðanar eða ánægju með lífið og heilsufars var reiknuð fylgni milli fjögurra spurninga, sem varða ein- göngu fyrri atriðin, við svör við 24 spurningum sem lutu að heilsufari. Tengsl heilsufarslegu og félagslegu þáttanna í lífsgæðunum voru athug- uð með sama hætti. Leitað var til 1) allra fullorðinna sem kom á heilsugæslustöð á nokkrum dögum, þó ekki í mæðravernd, 2) áfengissjúklinga, 3) öryrkja vegna líkamlegrar fötlunar, sem bjuggu í ör- yrkjaíbúðum og 4) öryrkja vegna geðfötlunar, sem leituðu í athvarf, og þeir beðnir að svara spurningalistanum. Persónuauðkenni voru ekki skráð, aðeins upplýsingar um kyn og ald- ur. Vegna þess að þátttakendur fylltu yfirleitt sjálfir út spurningaeyðublaðið varð nokkuð innra brottfall í svörum við öllum þáttunum. Með slíkt brottfall er hægt að fara á ýmsan hátt. Vegna þess að ætlunin er að gera hér grein fyrir hvernig einkunnir eru reiknaðar var valið að nota aðeins þau próf sem var svarað til fullnustu, samtals 154 próf. Við samanburð á meðaleinkunnum hópanna var notuð dreifi- greining með leiðréttingu vegna fjölda saman- Table I. Subscales of the questionnaire used to evaluate health-related quality of life, with question-numbers (cf app- endix) and maximum score for each subscale. Subscale Question number Maximum score General health (Heilsufar) 1,12,13,15,29 28 Depression (Depurð) 6,7,18,19,20 34 Social functioning (Samskipti) 3,30,31 25 Financial status (Fjárhagur) 25,26 10 Energy (Þrek) 8,16,17 18 Anxiety (Kvíði) 9,10 12 Physical health (Líkamsheilsa) 21,30 8 Self-control (Sjálfsstjórn) 11,24 11 Sleep (Svefn) 21,27 10 General well-being (Líðan) 4,28,32 26 Cognition (Hugsun) 5,22 9 Pain (Verkir) 2 6 Fig.l. Health-related quality oflife profdes in different groups of patients and disabled. burða (Bonferroni). SPSS forritið var notað við gagna- og tölfræðivinnslu (18). Niðurstöður Af þeim sem leitað var til fengust 85 þeirra sem komu á heilsugæslustöð á nokkrunr dög- um, til að svara spurningalistanum, 41 sjúkling- ur sem var innlagður til meðferðar vegna áfengisfíknar, 48 öryrkjar vegna líkamlegrar fötlunar og 45 öryrkjar vegna geðfötlunar. Tæp 60% þátttakenda voru karlar. Karlar voru í meirihluta í öllum hópunum, meðalaldur var 39-47 ár, lægstur hjá áfengissjúklingunum, en hæstur hjá þeim líkamlega fötluðu (12). Prófið í heild greindi þá veikari og fötluðu frá þeim sem sóttu á heilsugæslustöð, sem ætla má að hafi síður verið með langvinn eða alvar-

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.