Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.1997, Side 40

Læknablaðið - 15.07.1997, Side 40
506 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Table IV. Severity ofburns. Age <5 years Age >5 years Number 1.° burn 3 5 8 (3.0) 2.° burn 67 104 171 (64.3) 3.° burn 16 71 87 (32.7) Burn size <5% 44 100 144 (54.1) Burn size 5-15% 34 53 87 (32.7) Burn size >15% 8 27 35 (13.2) Transplant 17 85 102 (38.3) Table V. A verage hospital stay and factors other than the burn injury, that influence the length ofstay. Number Hospital days (average) All 266 17.5 Treatment elsewhere 6 Self-discharge 1 9.6 (shorter stay) Died 3 Local infection 12 Systemic infection 3 Multifactorial 3 Psychological/social factors 3 39.1 (longerstay) Multitrauma 2 Gl-problems 2 Burn only 264-35 15.5 Erlendir ferðamenn sem lágu á sjúkrahúsi vegna brunasára voru 13. Þeir lágu að meðal- tali skemur inni en landsmenn. Sex þeirra lágu inni í skemmri tíma þar sem þeir fengu fram- haldsmeðferð á erlendu sjúkrahúsi og er ekki vitað um afdrif þeirra. Ef undan er skilinn mismunur á lengd sjúkrahúsdvalar (7,9 dagar) og mikill fjöldi hveravatnsbruna (76,9%) hjá erlendum ferðamönnum, eru brunaáverkar þeirra samskonar og annarra. Umfang og dýpt brunasáranna, auk fjölda þeirra sem þurftu húðflutning við meðferð sár- anna, eru sýnd í töflu IV. Yfirleitt var um að ræða annars eða þriðja stigs bruna. Ekki var samband á milli stærðar brunasvæða og aldurs en aftur á móti var hlutfall þriðja stigs bruna- sára hærra hjá þeim sem voru fimm ára og eldri (39,4% miðað við 18,6%). Ekki kom fram munur á alvarleika brunaáverkans eftir því hver orsökin var. í töflu V er meðalfjöldi legudaga og fjöldi þeirra sjúklinga þar sem aðrir þættir en bruna- sárin sjálf höfðu áhrif á lengd sjúkrahúsdvalar. Algengast var að sýking í brunasárum ylli því að sjúkrahúsdvöl lengdist en aðrir þættir voru sjaldgæfari. Alls lengdist sjúkrahúsdvöl 25 sjúklinga vegna þessa. Einn þeirra var þó ekki lagður inn fyrr en 10 dögum eftir slysið. Sex ferðamenn voru útskrifaðir áður en þeir voru útskriftarfærir þar sem ákveðið var að þeir fengju framhaldsmeðferð erlendis. f þeim tilvikum þar sem sjúklingar létust af völdunt brunasára var undantekningalaust um að ræða þriðja stigs brunasár yfir nteira en 40% af lík- amssvæði. Einn dó eftir að hafa dottið ofan í heitan hver. Ekki kom fram marktækur munur á meðalfjölda legudaga þegar þessir sjúklingar voru teknir út úr útreikningum. Umræða Tíðni og orsakir brunaslysa: Vegna mikils og frjáls aðgangs að heitu vatni hér á landi hefur verið talið að brunaslys vegna þess væru al- gengari hér en í nágrannalöndunum. Hingað til hefur ekki verið sýnt fram á það svo að óyggj- andi sé. Niðurstöður rannsókna sýna að nýgengi og kynjahlutfall allra brunaáverka sem þurfa meðferðar við á sjúkrahúsi er svipuð og erlend- is (3,4). Yfirleitt virðist sama gilda þegar litið er á nýgengi slíkra brunaáverka barna fimm ára og yngri en þó var nýgengi alvarlegra brunaáverka í þessum aldurshópi 40,3 á 100.000 íbúa á ári í nýlegu erlendu uppgjöri sem er lægra en í okkar niðurstöðum (40,3 á móti 78,6) (11-13). Nokkrar erlendar rann- sóknir hafa sýnt að aðdragandi brunaáverka hjá börnum fimm ára og yngri er oft annar en hjá þeim sem eldri eru (7-9). Þegar tölur frá Landspítalanum á árunum 1970-1984 eru bornar saman við niðurstöður nú kemur frarn að enginn munur virðist vera á nýgengi innlagna vegna bruna (14). í uppgjöri frá slysadeild Borgarspítalans á öllum bruna- slysum í Reykjavík 1974-1989 var nýgengi brunaslysa 580 á 100.000 íbúa á ári en var 440 á 100.000 á ári síðustu tvö ár tímabilsins. í könnuninni reyndist nýgengi brunaslysa sem þörfnuðust sjúkrahúsmeðferðar vera 28 á 100.000 íbúa á ári að meðaltali (rnörk 16^14 á 100.000 á ári). Er það ívið hærri tala en fram kemur hér (15). Þegar kynjaskiptingin er skoðuð nánar kem- ur fram í okkar niðurstöðum að konur virðast fremur hafa tilhneigingu til að brenna sig inni á heimili, en karlar frernur utan þess. Stór hluti karlanna brennir sig á vinnustað. Gera má ráð

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.