Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1998, Síða 65

Læknablaðið - 15.01.1998, Síða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 63 íðorðasafn lækna 96 Teppukvef Michael Clausen, barnalækn- ir, skrifar frá Akureyri og gerir grein fyrir ástandi sem ung börn fá stundum þegar þau veikjast af veirum og kallast áensku „bron- chiolitis" og á sœnsku „obstruc- tiv bronchitis“ og einkennist af kvefeinkennum og teppu í lungnapípum. Michael er ekki sáttur við þau íslensku heiti sem tilgreind eru í íðorðasafni lækna og leggur fram sína eigin tillögu: Mín tillaga er að við köllum það teppukvef, ástandið sem ein- kennist af hvœsandi, lengdri út- öndun hjá veikum börnum yngri en tveggja ára, sem eru án of- nœmiseinkenna. Kvef Erindi Michaels gefur tilefni til þess að taka heitið kvef til svolítillar skoðunar, en það hef- ur lengi beðið á verkefnalista undirritaðs. íslensk orðabók Máls og menningar lýsir kvefi þannig: algengur farandkvilli, venjulega samfara bólgu í slím- himnu koks og háls, stundum hósta. Lesandinn er litlu nær. Islenska alfræðiorðabókin gerir mun betur: kvefsótt: algengur, smitnœmur veirusjúkdómur í slímhúð nefs og háls; lýsir sér með nefrennsli, hnerra, höfuð- verk, hitaslœðingi, beinverkjum og oft háls- og barkabólgu. Best er þó lýsing læknisfræðiorða- bókar Stedmans undir flettunni cold: Veirusýking í efri öndun- arvegi sem einkennist af vökva- fyllu íslímhúðinni, vatnskenndu nefrennsli og almennum lasleika sem varir þrjá til fimm daga. Ið- orðasafn lækna tekur í sama streng um common cold og gef- ur þar íslensku heitin kvef, kvef- sótt og bráð kvefsótt án sér- stakrar aðgreiningar. Því má svo skilja að um samheiti sé að ræða. Heitin kvef og kvefsótt koma fyrir í íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndal frá 1920-1924, en þar er gerður sá greinarmunur að kvefsótt er tal- in farandkvilli. íslensk læknis- fræðiheiti Guðmundar Hannes- sonar frá 1954 tilgreinir kvef sem eina af íslensku þýðingun- um á catarrhus, en bráð kvef- sótt er tilgreind sem þýðing á catarrhus respiratorius acutus. Gríska sögnin katarrhein merk- ir að renna eða flæða niður. Fyrrgreind orðabók Stedmans lýsir catarrh þannig: bólga í slímhúð með auknu flœði slíms eða vilsu. Ekki er sérstaklega vísað í slímhúð öndunarvegar, en nú er fengin skýringin á því að Iðorðasafn lækna geymir nokkur kvefheiti sem nota má um bólgur með slím- eða bólgu- vilsurennsli úr öðrum líffærum, svo sem magakvef, ristilkvef, augnkvef, lungnakvef og jafnvel legkvef. Gríska læknisfræðiheit- ið coryza vísar hins vegar sér- staklega í öndunarfærin og er þýtt á ensku sem acute rhinitis og á íslensku sem nefkvef. Það er talið samsett úr nafnorðinu korys, sem merkir hjálmur eða höfuð, og sagnorðinu zeein, sem merkir að sjóða, ólga eða freyða. Greinilegt er að snemma urðu læknisfræðiheiti lýsandi. Að lokum má minnast á nafnorðið kvefja. íðorðasafn lækna gefur heitin slímhúðar- bólga og kvefja undir flettunni catarrh, en í Islensku orðsifja- bókinni má finna sögnina að kvefja í merkingunni að kæfa eða stífla. Kvefja Helsti gallinn við tillögu Michaels er sá að heitið teppu- kvef vísar ekki sérstaklega í þau líffæri sem teppt eru, berkjurn- ar. Teppukvef gæti allt eins vís- að í stíflað nef og stíflaða görn. Spurningin er nú hvort ekki megi taka þetta nýja nafnorð, kvefja, til að nota um kvefmeð stíflu og að bæta síðan við tilvís- un í það líffæri sem stíflað er eða teppt. Berkjukvef er bólga í berkjuslímhúð með auknu slím- og vilsurennsli og berkjukvefja yrði þá berkjukvef með teppu eða stíflu. Án þess að leggjast beinlínis gegn tillögu Michaels er þessu hér með varpað fram honum og öðrum áhugamönn- um til umhugsunar. Aðrar til- lögur eða frekari umræða væri vel þegin. Veiruflétta Óvænt rak nýlega á fjörurnar heitið virus complex. í latínu má finna orðin complexio sem merkir samtenging eða samein- ing og complexus sem merkir samofinn. Af orðabókum má ráða að nafnorðið complex geti merkt samstæða, kerfi, flóki, flækja, eða flétta. Ein af orð- skýringunum getur þess að líf- færafræðileg samstæða sé mynduð úr þremur eða fleiri skyldum fyrirbærum. Líffæra- og vefjafræðiheitin frá 1995 gera ráð fyrir að complex fái íslenska heitið flóki. Hér má þó vera að veirusamstæða hæfi betur, jafn- vel veiruflétta. Jóhann Heiðar Jóhannsson (netfang: johannhj@rsp.is)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.