Læknablaðið - 15.09.1998, Blaðsíða 85
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
699
Ráðstefna um
rannsóknir f læknadeild
4. og 5. janúar 1999
Ráðstefna um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands verður haldin í Odda dagana 4. og
5. janúar næstkomandi. Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar.
Þátttaka í dagskrá ráðstefnunnar miðast við kennara og starfsmenn deildarinnar, það er í
læknisfræði, lyfjafræði, hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun sem og starfsmenn rannsókna-
stofa og stofnana sem tengjast deildinni og kennslusjúkrahúsum landsins. Þá er aðilum
sem vinna að rannsóknum í samvinnu við starfsmenn læknadeildar einnig boðin þátttaka.
Gert er ráð fyrir frjálsum erindaflutningi (10 mínútur hvert erindi) og spjaldasýningu. Ágrip-
in verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins sem mun koma út fyrir ráðstefnuna. Aðgangur
að ráðstefnunni er öllum heimill, en þátttökugjald verður auglýst síðar.
Leiðbeiningar fyrir ágrip
* Ágrip (á tölvutæku formi) þurfa að hafa borist Vísindanefnd, í síðasta lagi 26. október
1998.
* Ágrip mega ekki vera lengri en 2000 letureiningar (characters).
* Ágrip skulu vera á íslensku.
* Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram í ágripinu í þeirri röð sem þau eru talin upp: titill,
nöfn höfunda, vinnustaðir höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og
ályktanir.
* Nafn þess höfundar sem flytur erindið eða kynnir veggspjaldið skal vera feitletrað.
* Verkefnin þurfa að vera þess eðlis að af niðurstöðunum megi draga einhverjar ályktanir.
* Æskilegt er að textinn sé skrifaður í Word ritvinnslukerfinu eða vistaður fyrir það. Notið
Times leturgerðina. Notið ekki töflur, gröf eða tilvitnanir.
* Takið fram í tölvupóstinum eða skrifið á disklinginn hvort ágripið er skrifað á PC eða
Macintosh tölvu.
* Veljið einhvern eftirfarandi efnisflokka: augnlækningar, barnalæknisfræði, erfðafræði,
faraldsfræði, hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein, handlæknisfræði, lífeðlisfræði,
lyfjafræði, lyflæknisfræði, sýkla- og smitsjúkdómafræði, hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun
eða ýmislegt. Efnisflokkarnir eru miðaðir við reynslu undanfarinna ára, en möguleiki er
að bæta við flokkum ef mörg skyld verkefni lenda í flokknum ýmislegt.
Ágrip skal senda með tölvupósti til birna@icemed.is, en þau má einnig senda á tölvu-
disklingum til Birnu Þórðardóttur, Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi. Með
ágripunum þurfa að fylgja upplýsingar um það hvort óskað er eftir að skýra frá rannsókn-
inni í erindi eða á veggspjaldi, svo og í hvaða efnisflokki það óskast flutt. Reynt verður að
fara eftir óskum þátttakenda um það hvort verkefni verði kynnt sem erindi eða veggspjald
en nefndin áskilur sér þó rétt til þess að breyta því ef nauðsyn krefur, sömuleiðis að hafna
ágripum sem uppfylla ekki ofangreind skilyrði. Nánari upplýsingar veitir Vísindanefnd
læknadeildar, en hana skipa:
Ástríður Pálsdóttir Tilraunastöð HÍ, Keldum, s. 567 4700
Elías Ólafsson taugalækningadeild Landspítalans, s. 560 1660
Hrafn Tulinius Krabbameinsfélagi íslands, s. 562 1414
Jens Guðmundsson kvennadeild Landspítalans, s. 560 1000
Reynir Arngrímsson læknadeild HÍ, s. 587 6216