Læknablaðið - 15.09.1998, Blaðsíða 36
652
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
mætti hvort almenningi ætti
ekki að vera ljóst, að hafi ein-
staklingur sem leitar sér með-
ferðar í heilbrigðiskerfinu eða
aðstandendur hans ekki sér-
staklega tekið það fram að
ekki megi nota upplýsingar
um viðkomandi til rannsókna
eða við skráningu, þá hafi sá
hinn sami þar með gefið sam-
þykki sitt til slíks. Það er á
þessum forsendum sem tilvist
Tölvunefndar og vísindasiða-
nefnda byggist og ef talið
hefði verið algjörlega ófram-
kvæmanlegt af siðferðilegum
ástæðum að stunda slíkar
rannsóknir, þá væri þessara
nefnda ekki þörf. I hinu nýja
frumvarpi um gagnagrunn á
heilbrigðissviði er gert ráð
fyrir að þessar nefndir komi
að samsetningu og notkun
gagnagrunnsins. En hefðin
minnkar auðvitað ekki ábyrgð
þeirra sem meðhöndla sjúkra-
gögn eða stunda á þeim rann-
sóknir, fremur en upplýst
samþykki eykur raunverulegt
öryggi upplýsinganna eða
tryggir að varlegar sé farið
með þær. Til leiðbeiningar við
framkvæmd rannsókna eru
siðanefndir og ráð, auk þess
sem útgefinn hefur verið fjöldi
yfirlýsinga og samþykkta á al-
þjóðavettvangi, vísindamönn-
um, stofnunum og ríkisstjórn-
um til leiðbeiningar.
Til að gera upp hug okkar
um það hvort við viljum að
umræddum gagnagrunni verði
komið á fót, þá getum við
annars vegar litið ti! þeirrar
hefðar sem skapast hefur við
framkvæmd læknisfræðirann-
sókna á íslandi og notkun
heilbrigðisupplýsinga til
skráningar og talningar, eins
og nefnt var hér að framan.
Hins vegar getum við skoðað
hvar markalínur hafa verið
dregnar í formlegum yfirlýs-
ingum og sáttmálum eins og
þeim sem fjallað er um hér á
eftir.
Markmiðið er að leita
lækninga við
sjúkdómum
Markmiðið með miðlægum
gagnagrunni á heilbrigðis-
sviði er það sama og almennt
tíðkast um rannsóknir í lækn-
isfræði: að leita lækninga eða
fyrirbyggjandi aðgerða við
sjúkdómum og bæta meðferð.
Margir hafa orðið til að
benda á að samsetning gagna-
grunns af þeirri tegund sem
um er rætt stangist á við al-
þjóðlegar samþykktir, laga-
drög og sáttmála, meðal ann-
ars þá sem Islendingar hafi
undirritað. Af þessum skal
helsta nefna:
• Uppkast að alþjóðlegri yfir-
lýsingu UNESCO um erfða-
mengi mannsins og mann-
réttindi (Universal declara-
tion on the human genome
and human rights: http://
www.unesco.org/ibc/uk/ge
nome/project/index.html).
• Tilmæli ráðherranefndar
Evrópuráðsins til aðildar-
ríkja um vernd heilsufars-
upplýsinga frá 13. febrúar
1997 (Recommendation
No. R (97) 5 of the Council
of Europe committee of
ministers to member states
on the protection of medi-
cal data. http://www.coe.fr/
cm/dec/1997/ta97r5 .html).
• Skipun Evrópuþingsins no.
95/46/EC og löggjafarsam-
kundunnar frá 24. október
1995 um vernd einstaklinga
með tilliti til vinnslu per-
sónuupplýsinga og frjálsra
flutninga slíkra upplýsinga
(Directive 95/46/EC of the
European Parlament and
the Council of 24 October
1995 on the processing of
personal data and on the
free movement of such
data. The Official Journal
of the European Communi-
ties of 23 November 1995
No. L. 281 p.31. http://
europa.eu.int/comm/dgl5/e
n/media/dataprot/dir9546.h
tm).
• Yfirlýsing lögfræðisiða-
nefndar HUGO um sið-
fræðileg, lögfræðileg og
þjóðfélagsleg atriði sem
tengjast erfðafræðirann-
sóknum (Statement on the
Principled Conduct of
Genetic Research. HUGO
Ethical, Legal, and Social
Issues Committee Report to
HUGO Council. http://
hugo.gdb.org/conduct.htm).
Rauði þráðurinn í öllum
þessum yfirlýsingum er virð-
ing fyrir manninum sem líf-
veru og sem einstaklingi,
sjálfsákvörðunarrétti hans og
vernd gegn mögulegum skaða
af rannsóknum. Það er í raun
þessi sama umhyggja fyrir
einstaklingum og sjúklingum
sem er driffjöðurin á bak við
allar læknisfræðilegar rann-
sóknir, því allar miða þær að
því að bæta heilsu manna með
því að koma í veg fyrir eða
finna lækningu við sjúkdóm-
um. í yfirlýsingum sem þess-
um má því greina togstreitu
og andstæður sem geta virst
ósættanlegar og þeir sem vilja
nýta sér þær til leiðbeiningar
verða að minna sjálfa sig á
hvert hið raunverulega mark-
mið með rannsóknum þeirra
sé og um leið hver sé raun-
verulegur tilgangur slíkra
yfirlýsinga og leiðbeininga.
Yfirlýsing UNESCO er
mjög almenns eðlis með meg-
ináherslum á virðingu fyrir
manninum sem einstaklingi
og fyrir sjálfsákvörðunarrétti