Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.1999, Side 40

Læknablaðið - 15.04.1999, Side 40
314 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Frá ‘endurhœfingardeild Landspítalans, 2rönt- gendeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, 'hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans ínngangur: Forrannsóknin (pilot study) er hluti af viðameiri rannsókn á öndunarhreyf- ingum og lungnafylgikvillum eftir hjartaskurð- aðgerðir þar sem bringubeinsskurði (sterno- tomy) er beitt. Markmið forrannsóknarinnar var að kanna hreyfingar á brjóstkassa og kviði við hvíldar- og hámarksöndun fyrir og eftir bringubeinsskurð og bera saman við opnun og skekkingu á brjóstkassa við skurðaðgerð, lungnarúmmál (vital capacity, VC) og röntgen- myndir af lungum. Efniviður og aðferðir: Öndunarhreyfingar á brjóstkassa og kviði hjá 10 körlum sem fóru í bringubeinsskurð voru mældar með mælitækinu Andra, fyrir aðgerð og á öðrum og sjöunda degi eftir aðgerð. Mæld var þvermálsaukning (anter- ior-posterior) á efri hluta brjóstkassa, við rifja- bogann og til hliðar við nafla vinstra og hægra megin, í hvíld og við hámarksöndun. I skurðað- gerð var breidd bilsins milli skurðbrúna bringu- beins mæld og hæðarmunur hægri og vinstri brúnar. Lungnarúmmál var mælt með öndunar- mæli (spirometer) fyrir aðgerð og á sjöunda degi eftir aðgerð. Röntgenmyndir af lungum voru teknar á fyrsta, öðrum og fimmta degi eftir að- gerð og þær metnar á kvarðanum 1-4. Sjúkling- arnir fengu meðferð sjúkraþjálfara samkvæmt stefnu deildarinnar fyrir og eftir aðgerð. Urvinnsla: Notuð var lýsandi tölfræði. Niðurstöður: Lungnarúmmál á sjöunda degi eftir aðgerð var 67% miðað við gildi fyrir að- gerð. Samkvæmt röntgenmyndum voru 90% með allnokkuð samfall á neðri hluta lunga, 60% með allnokkuð vinstra megin, engin hægra megin og 40% með allnokkra þindarhá- stöðu vinstra megin. Tengsl milli stærðar skurð- ops, skekkingar á brjóstkassa og öndunarhreyf- inga voru ekki merkjanleg. Sjö af 10 sjúkling- um gátu ekki fylgt áætlun deildarinnar um sjúkraþjálfun. Alyktanir: Mælitækið fyrir öndunarhreyf- ingar, sem er áreiðanleikaprófað á heilbrigðum einstaklingum, reynist nothæft í klínískum rannsóknum og getur gefið svör við spurning- um sem ekki hefur verið unnt að fá svör við til þessa. í forrannsókn þessari voru skráðar fjöl- margar breytur fyrir aðgerð, í aðgerð og eftir aðgerð. í ljós kom að sumar þeirra voru óþarfar en þörf á að bæta öðrum við í væntanlegri aðal- rannsókn. E-17. Góðkynja meinvarpandi sléttvöðva- æxli. Sjúkratilfelli Andri Konráðsson', Helgi J. Isaksson2, Bjarni Torfason', Helgi Sigurðsson3 Frá 1 handlœkningadeild Landspítalans, 2rann- sóknastofu HI í meinafrœði, 'krahbameins- lœkningadeild Landspítalans Fyrir tilviljun greindist stakur hnútur í lunga 52 ára konu á röntgenmynd. Tölvusneiðmynd sýndi marga litla hnúta í báðum lungum sem þóttu líkjast meinvörpum. Uppvinnsla með til- liti til frumæxlis var árangurslaus. í heilsufarssögu konunnar var það helst að árið 1982 var fjarlægt vel þroskað slímþekjukrabba- mein úr munnvatnskirtli hennar. Engin meinvörp höfðu greinst. Arið 1986 var leg konunnar fjar- lægt vegna stækkunar og blæðingartruflana. Til þess að fá vefjasýni var konan tekin til aðgerðar og gerður hægri brjóstholsskurður. Þrír hnútar voru fjarlægðir og sýndi vefjaskoðun að þeir samanstóðu af vel þroskuðum slétt- vöðvafrumum, kollageni og kirtilsvæðum. Ut- litið var dæmigert fyrir góðkynja meinvarpandi sléttvöðvaæxli (benign metastasizing leiomyo- mata) og samanburður við sýni frá hnútum í legi konnunnar frá 1986 sýndu sams konar vöxt. Konan fékk enga meðferð en hefur verið fylgt eftir með tölvusneiðmyndum sem hafa ekki sýnt stækkun þeirra æxla sem eftir eru. Góðkynja meinvarpandi sléttvöðvaæxli eru talin vera meinvörp sléttvöðvasarkmeins af lágri gráðu, upprunnu í legi. Algengasta stað- setningin er í lungum en þau hafa fundist mjög víða annars staðar. Þau vaxa hægt og hafa vefjafræðilega góðkynja útlit. Oftast greinast þau fyrir tilviljun eða vegna vægra einkenna frá lungum. Meðferð, þegar hennar er þörf, getur verið með brottnámi æxlanna, brottnámi legs og eggjastokka (æxlin eru alltaf hormónanæm), hormónameðferð eða krabbameinslyfjum. Aðeins hefur verið lýst um 30 staðfestum til- fellum af sjúkdómnum í heiminum og er þetta í fyrsta skipti sem hann greinist hér á landi svo vitað sé. E-18. Kransæðaaðgerðir á Landspítalan- um vegna höfuðstofnsþrengsla árin 1986- 1995 Kristinn B. Jóhannsson, Hörður Alfreðsson, Þórarinn Arnórsson, Bjarni Torfason, Grétar Olafsson Frá hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.