Læknablaðið - 15.04.1999, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
323
Umræða: Niðurstöður okkar gefa ekki til
kynna að bamsfæðing í kjölfar greiningar
brjóstakrabbameins hafi slæm áhrif á horfur.
Hópurinn er þó of lítill til þess að draga al-
mennar ályktanir á grundvelli hans. Hins vegar
eru þessar niðurstöður í samræmi við erlendar
rannsóknir og samkvæmt þeim virðist ekki
þörf á að ráðleggja konum frá því að eignast
börn eftir að hafa greinst með brjóstakrabba-
mein.
E-30. Priðju kynslóðar TRAM-flipar,
DIEP-flipi. Enn eitt skref í þróun
TRAM-flipa til brjóstaendursköpunar
Sigurður E. Þorvaldsson', Rafn A. Ragnars-
son2
Frá 'skurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, 2lýta-
lœkningadeild Landspítalans
Endursköpun brjósta með TRAM-flipa á sér
um 20 ára sögu. í upphafi voru fliparnir stilk-
aðir þannig, að annar magálsvöðvinn sá fyrir
blóðrennsli til og frá vefjasvæði því um neðan-
verðan kvið sem nota átti til uppbyggingar
brjóstsins. Fyrir um það bil 10 árum var svo
farið að framkvæma þennan vefjaflutning með
smáæðatengingum, þar sem aðeins lítill bútur
er tekinn úr vöðvanum með meðfylgjandi slag-
æð og bláæð (a. og v. epigastrica inferior).
Báðum þessum aðgerðum fylgir nokkur áverki
á kvið og þar með hætta á kviðsliti eða útbung-
un á gjafasvæði. Til þess að losna við þennan
fylgikvilla hefur verið þróuð ný kynslóð
TRAM-flipa, svokallaður DIEP-flipi (deep-in-
ferior epigastric perforator flap), þar sem meg-
in æðastilkurinn, ásamt örsmáum næringaræð-
um til flipans er dreginn í gegnum vöðvann,
sem þannig heldur sér nánast óskertur. Því
verður áverki á kviðvegginn í lágmarki.
Við höfum nú gert 50 fría TRAM-flipa, þar
af einn DIEP-flipa, og viljum með þessari
kynningu vekja athygli á þessum flipa sem enn
einum áfanga í átt að viðunandi árangri við
endursköpun brjósta eftir brottnám.
E-31. Golfáverkar
Brynjólfur Mogensen
Frá bœklunarlœkningadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur
Inngangur: Averkar sem tengjast golf-
íþróttinni hafa verið taldir fremur óalgengir.
Þeir geta þó orðið mjöp hættulegir. Lítið er vit-
að um golfáverka á Islandi. Tilgangur rann-
sóknarinnar er að gefa yfirlit yfir þá sem hafa
komið á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur vegna áverka sem hafa tengst
golfiðkun. Norræna slysaskráningin, sem tekin
var í notkun 1. janúar 1997, gefur slíka mögu-
leika.
Efniviður og aðferðir: Fundnir voru allir
slasaðir sem voru skráðir í norræna slysaskrán-
ingarkerfinu og komu vegna áverka eftir golf-
iðkun frá 1. janúar 1997 til og með 31. desem-
ber 1998.
Niðurstöður: Tuttugu og fimm slasaðir leit-
uðu vegna áverka eftir golfiðkun. Voru þeir að
meðaltali 37 ára (7-72). Karlamir voru 18 en
konurnar sjö. Sex höfðu fengið boltann í sig,
þar af fimm í höfuðið. Enginn rotaðist en af
þessum fimm fékk einn boltann í augað og
hlaut af blæðingu í forhólf og brotna augnum-
gjörð. Fjórir fengu kylfuna í sig og tveir meidd-
ust við að slá of fast í jörðina. Tólf sneru sig,
duttu eða tognuðu við sína golfiðkun.
Alyktanir: Fáir sjúklingar koma með golf-
áverka á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Tveir af hverjum fimm höfðu feng-
ið í sig bolta eða kylfu, oftast í höfuðið, en að-
eins einn hlaut fremur alvarlegan áverka. Líkast
til mætti fækka golfáverkum með því að hafa í
heiðri golffeglur og golfsiði í leik og við æfingar.
E-32. Árangur STING aðgerða á Barna-
spítala Hringsins
Anna Gunnarsdóttir', Guðmundur Bjarna-
son2, Jónas Magnússon'
Frá 1 handlœkningadeUd Landspítalans, 2skurð-
deild Barnaspítala Hringsins
Inngangur: Bakflæði frá þvagblöðru til
þvagleiðara er algengt. Bakflæði er metið eftir
migurannsókn (MUCG) í 5 gráður. Oftast
gengur bakflæði til baka en ef grípa þarf til að-
gerðar þá er gerð endurígræðsla á þvagleiður-
um. Árið 1984 var kynnt ný inngripslítil aðgerð
við bakflæði sem gerð var í blöðruspeglun með
því að sprauta tefloni í litlu magni undir þvag-
leiðaraopið (Subureteric Teflon Injection,
STING). Byrjað var að gera STING aðgerðir
hérlendis í janúar 1994. Tilgangur þessarar rann-
sóknar var að kanna árangur þessara aðgerða.
Efniviður og aðferðir: Farið var yfir STING
aðgerðir árin 1994-1998. Níutíu og tvö börn
gengust undir slíka aðgerð, 25 drengir (36,2%)
og 44 stúlkur (63,8%). Tuttugu og þrjú börn
voru útilokuð. Meðalaldur við greiningu var
3,5 ár (0,0-14,0 ár). Meðalaldur við fyrstu að-
gerð var 5,2 ár (0,7-15,8 ár). Ábendingar fyrir