Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1999, Síða 84

Læknablaðið - 15.04.1999, Síða 84
354 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 byggðarlækningum sem sjáist meðal annars af því að þau hyggist leggja niður sjúkrahús á landsbyggðinni. Eg segi ekki að þau séu beinlínis á móti okkur en það skortir nokkuð upp á viljann. Það er skelfileg hugmynd að ætla að leggja niður landsbyggðar- sjúkrahúsin. Það var reynt í Astralíu og reynslan af því var slæm. Hún yrði væntanleg enn verri hér á landi þar sem veðurfarið er mun erfiðara. Það er sjálfsagt hægt að spara víða en með því að leggja nið- ur sjúkrahúsin mun þjónustan versna verulega. Það gengur heldur ekki á sama tíma og verið er að draga úr endur- greiðslum á ferðakostnaði sjúklinga. Ef það á að fjölga ferðum fólks til lækninga í höfuðborginni yrði það til þess að ýta enn frekar undir flutning fólks suður. Við send- um engan að gamni okkar suð- ur því það er dýrt fyrir fólk. Menn verða að taka sér frí frá vinnu og sjá sér fyrir gistingu og uppihaldi í Reykjavík, auk hins beina ferðakostnaðar. Það má líka nefna sem dæmi um ákveðið skilnings- leysi á stöðu okkar þegar til stóð hér um árið að láta lækna kaupa embættisbústaðina sem ríkið hefur látið byggja. Þetta gæti gengið í þéttbýlinu en þar sem enginn markaður er fyrir húsnæði og húsin verðlaus stenst þetta ekki.“ - Svo vitnað sé í annan út- lendan landsbyggðarlækni þá segir John Wootton í blaði kanadískra landsbyggðar- lækna að í því sé fólgin viss mótsögn að safna landsbyggð- arlæknum saman í félög, það sé eins og að ætla sér að smala köttum. Þeir vilji vera einir og þess vegna fari þeir til starfa á landsbyggðinni. Er þetta rétt? „Ég veit það nú ekki, en það má svo sem segja að við höfum svarað þessu með starfi félagsins. Ef við værum þessir smákóngar þá færum við varla að stofna með okkur félag. En það er rétt að það er ákveðinn lífsstíll að lifa og starfa sem læknir í dreifbýli. Þeir sem geta sætt sig við hann sækjast eftir því að vera áfram ef þeir hrökklast þá ekki suður undan vinnuálagi eða af fjölskyldu- ástæðum. Það fylgja því margir kostir að búa á lands- byggðinni. Fólk er í nánari snertingu við náttúruna og umhverfið og læknar eru máttarstólpar byggðarlagsins sem ábyrgðarmenn heilbrigð- is- og neyðarþjónustunnar. Þessa sakna margir þegar þeir flytja á mölina,“ sagði Ágúst Oddsson í Bolungarvík. -ÞH Atacancl^ Tofiur, c 09 c a andesartanaie*etiiInnihaldslýsing: Hver tafla inniheldur Candesartanum INN, cilexetil 4 mg, 8 mg eöa 16 mg. Abendingar: Hár blóðþrýstingur. Skammtar og lyfjagjöf: Skömmtun: Venjulegur viðhaldsskammtur Atacand® er 8 mg eða 16 mg einu sinni á dag. Hámarks blóðþrýstingslækkandi verkun næst innan 4 vikna frá upphafi meðferðar. Lyfið má taka með eða án matar og án tillits til aldurs. Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (þ.e. kreatínín klerans <30 ml/mín. skal hefja meðferð með 4 mg. Börn: Lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf. Varnaðarorð og varúðarreglur: Skyld lyf geta aukið þvagefni í blóði og kreatínín í sermi hjá sjúklingum með tvíhliða nýrnaslagæðaþrengsli eða þrengsli í slagæð að einu nýra ef aðeins eitt nýra er til staðar. Þetta getur einnig átt við um angíótensín II viðtaka antagónista. Hjá sjúklingum með alvarlega skert blóðrúmmál geta einkenni lágþrýstings komið fram. Samhliða gjöf á Atacand® og kalíumsparandi. þvagræsilyfi getur valdið hækkun á kalíumþéttni í sermi. Milliverkanir. Engar þekktar. Aukaverkanir: Lágþrýstngur vegna áhrifa lyfsins. Lyfhrif: Eiginleikar: Atacand® er forlyf ætlað til inntöku. Það umbreytist hratt í virkt efni, candesartan, vegna esterhýdrólýsu við frásog úr meltingarvegi. Candesartan er angíótensín II viðtaka blokki, sérhæfður fyrir AT-1 viðtaka, með sterka bindingu við og hæga losun frá viðtakanum. Það hefur enga eigin virkni. Blóðþrýstingslækkandi verkun er vegna lækkunar á útlægu æðaviðnámi, en hjartsláttartíðni, slagrúmmál og hjartaútfall breytist hins vegar ekki. Það er ekkert sem bendir til alvarlegs eða óeðlilega mikils lágþrýstings eftir fyrsta skammt eða versnunar þegar meðferð er hætt. Blóðþrýstingslækkandi verkun hefst innan 2 klst og næst hámarks blóðþrýstingslækkandi verkun, innan fjögurra vikna og helst við langtíma meðferð. Blóðþrýstingslækkun af völdum lyfsins helst jöfn í 24 klst. og þess vegna er nægjanlegt að gefa lyfið einu sinni á dag. Lyfið hefur svipaða virkni, óháð aldri og kyni sjúklingsins. Candesartan eykur blóðflæði um nýru og viðheldur eða eykur gaukulsíunarhraða á meðan viðnám nýrnaæða og síunarhlutfall minnkar. Atacand® hefur engar óæskilegar verkanir á blóðsykur eða blóðfitu. Lyfjahvörf: Frásog og dreifing: Eftir inntöku umbreytist candesartan cílexetíl í virka efnið candesartan. Meðal aðgengi (nýting) candesartans er u.þ.b. 40% eftir inntöku á candesartan cílexetíli í lausn. Meðalhámarksþéttni í sermi (Cmax)) næst eftir 3-4 klst. eftir inntöku töflu. Þéttni candesartans eykst línulega með auknum skammti á lækningalegu skammtabili. Ekki hefur greinst neinn munur á lyfjahvörfum candesartan eftir kyni. Flatarmálið undir sermiþéttni-á móti-tíma-kúrfu (AUC) fyrir candesartan breytist ekki vegna fæðu. Candesartan er í miklum mæli bundið plasma- próteinum (>99%). Dreifingar-rúmmál candesartans er 0,1 l/kg. Umbrot og útskilnaður: Candesartan skilst aðallega út i óbreyttu formi í þvagi og galli og einungis að litlum hluta vegna umbrota í lifur. Lokahelmingunartími candesartans er u.þ.b. 9 klst. Engin uppsöfnun á sér stað við endurtekna skammta. Heildar plasmaklerans candesartans er u.þ.b. 0,37 ml/mínykg, með nýrnaklerans u.þ.b. 0,19 ml/mínykg. Eftir inntöku á 14c-merktu candesartan cílexetíli safnast um 30% af heildargeislavirkni fyrir í þvagi og um 70% í saur. Lyfjahvörf hjá ákveðnum sjúklingahópum: Hjá öldruðum (eldri en 65 ára) aukast bæði Cmax og AUC fyrir candesartan miðað við unga einstaklinga. Engu að síður er blóðþrýstingssvörun og tíðni aukaverkana svipuð eftir gefinn skammt af Atacand® hjá ungum og öldruðum, svo ekki er nauðsynlegt að leiðrétta skammta hjá öldruðum. Hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi í samanburði við þá sem hafa eðlilega nýrnastarfsemi, sést hækkun á Cmax, AUC og útskilnaðarhelmingunar-tíma candesartans. Þrátt fyrir það er ekki nauðsynlegt að leiðrétta skammta hjá sjúklingum með væga til miðlungs skerta nýrna-starfsemi. Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (þ.e. kreatinín klerans <30 ml/minV1,73 m^ BSA) er klínísk reynsla takmörkuð og íhuga skal hvort gefa skuli lægri upphafsskammt 4 mg. Hjá sjúklingum með væga eða miðlungs skerta lifrarstarfsemi hafa engar breytingar á lyfjahvörfum sést. Pakkningar og verð: mars 1998. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga: R, B. Pakkningar: Töflur 4 mg: 28 stk. (þp.) -2.853 kr.; 98 stk. (þp.) -7.966 kr; 1 tafla x 98 stk. (þp, sjúkrah.pkn.) -7.966 kr. Töflur 8 mg: 28 stk. (þp.) -3.172 kr.; 98 stk. (þp.) - 8.987 kr.; 1 tafla x 98 stk. (þp, sjúkrah.pkn.) -8.987 kr. Töflur 16 mg: 28 stk. (þp.) - 3.810 kr.; 98 stk. (þp.) -10.980 kr.; 1 tafla x 98 stk. (þp, sjúkrah.pkn.) -10.980 kr. Markaðsleyfishafi: Hássle Lákemedel, Svíþjóð. Umboð á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. HtWldir. 1: Nishikawa K et al Candesartan cilexetil; a review ol its predimcal pharmacology Journai of Human Hypertension 1997; It Suppl 2: S9-S17. 2: Sever P. Candesartan cilexetil: a new. long-actmg. eflective anglotensin II type 1 receptor blocker. 3. Húbner R et al. Pharmacokinetics of candesartan after single and repeated doses of candesartan cilexetil in young and elderly healthy volunteers. Joumal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S19-S25. 4: Elmfeldt D et al. Candesartan cilexetil. a new generation angiotensm II antagomst provides dose depentent antihypertensive effect. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S49-S53. 5: Andersson OK and Neldam S. A comparison of the antihypertensive effects of candesartan cilexetil and losartan in patients with mild to moderate hypertension. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2; S63-S64. 6: Sever P and Holugreve. Long-term efficacy and tolerability of candesartan cilexetil in patients with mild to moderate hypertension. Journal of Human Hypertension 1997,11 Suppl 2: S69-S73. 7: Belcher G et al Candesartan cilexetil: safety and tolerability in healthy volunteers and patients with hypertension. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl: S85-S89 8: Heuer HJ et al Twenty-four hour blood pressure profile of different doses of candesartan cilexetil in patients wrth mild to moderate hypertension. Journal of human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S55-S56.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.