Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 92

Læknablaðið - 15.04.1999, Page 92
Durogesic FORÐAPLASTUR; N 02 A B 03 X R E Eiginleikar: Forðaplásturinn er ætlaður til samfelldrar meðferðar með fentanýli. Fentanýl er sterkt morfínlyf sem fyrst og fremst binst fi-viðtökum. Abendingar: langvinnir verkir, af völdum illkynja sjúkdóma, sem eru næmir fyrir morfínlyfjum. Frábendingar: Slævð öndun. Varúð: Aukinn heilaþrýstingur, minnkuð meðvitund, meðvitundarleysi og órói í kjölfar neyslu áfengis og svefnlyfja. Hægur hjartsláttur. Astmi. Slímsöfnun í lungum. Samtímis notkun annarra slævandi lyfja. Fylgjast þarf náið með sjúklingum með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi svo og öldruðum sjúklingum og sjúklingum í kröm. Meðganga og brjóstagjöf: Morfínlyf geta hamið öndun hjá nýburum. Ef um langvarandi notkun lyfsins á meðgöngu hefur verið að ræða má gera ráð fyrir fráhvarfseinkennum hjá baminu eftir fæðinguna. Fentanýl berst í brjóstamjólk í nægilegu magni til þess að hafa áhrif á bamið, jafnvel þó að gefnir séu venjulegir skammtar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru ógleði/uppköst (28%) og syfja (23%). Alvarlegasta aukaverkunin er hömlun öndunar og er skammtaháð, en þessi aukaverkun cr sjaldgæf hjá sjúklingum, sem myndað hafa þol gegn morfínlyfjum. Algengar (>1%): Almennar: Kláði. Hjarta- og œðakerfi: Lágur blóðþrýsting- ur, hægur hjartsláttur. Miðtaugakerfi: Syfja, rugl, ofskynjanir, sæluvíma. Hömlun öndunar. Meltingarfœri: Ógleði, uppköst, hægðatregða. Húð: Erting í plástursstæðinu (roði, kláði, útbrot). Þvagfœri: Þvagteppa. Húðertingin hverfur venjulega innan sólarhrings eftir að plástur hefur verið fjarlægður. Sjúklingar, sem fá morfínlyf, geta myndað þol og einnig orðið háðir lyfinu. Milliverkun: Fentanýl samverkar með barbítúrsýrulyfjum. Skammtastærðir handa fullorðnum: Skömmtun er einstaklingsbundin og byggir á ahnennu ástandi sjúklings svo og á fyrri sögu um notkun morfínlyfja. Hafi sjúklingur ekki fengið sterk morfínlyf áður ber að stilla inn stuttverkandi morfínlyf fyrst og síðan breyta þeim skammti yfir í Durogesic. Skammtur lyfsins er svo endurskoðaður með jöfnu millibili þar til æskilegum áhrifum cr náð. Þegar breytt er úr morfínlyljum til inntöku eða stungulyfjum yfir í Durogesic skal nota eftirfarandi til leiðbeiningar: 1. Leggið saman notkunina á sterkum verkjalyfjum síðasta sólarhring. 2. Ef sjúklingurinn hefur notað annað lyf en morfín, breytið þá yfir í jafngildisskammt (sjá sérlyfjaskrá) af morfíni til inntöku. 3. Notið töflu (sjá sérlyfjaskrá) til þess að ákveða upphafsskammt Durogesic og miðið við morfínskammt til inntöku á sólarhring. (90 mg af morfíni til inntöku á dag er sambærilegt við Durogesic 25 míkróg/klst. Þannig skal nota Durogesic 50 mfkróg/klst. ef morfínskammtur til inntöku er 135-225 mg/sólarhring). Skipta skal um plástur eftir 72 klst. Hæfilegur skammtur fyrir hvem einstakling er fundinn með því að auka skainmtinn þar til verkjastillingu er náð. Fáist ekki nægjanleg verkun af fyrsta plástri, má auka skammtinn cftir 3 daga. Síðan er unnt að auka skammtinn á þriggja daga fresti. Þurfi sjúklingurinn mcira cn 100 mflcróg/klst. má nota fleiri en einn plástur í senn. Durogesic skal líma á efri hluta líkamans eða á upphandlegg og á ógeislaða, slétta, og heilbrigða húð. Ef hár eru á staðnum ber að klippa þau af en ekki raka en hárlaus svæði eru æskilegust. Ef þvo þarf svæðið áður en plásturinn er settur á, skal gera það með hreinu vatni. Ekki má nota sápu, olíu, áburð eða önnur efni sem geta ert húðina eða breytt eiginleikum hennar. Þegar skipt er um plástur skal hann settur á annan stað. Fyrri stað má ekki nota fyrr en eftir nokkra sólarhringa. Skammtastæröir handa börnum: Lítil reynsla er af notkun lyfsins til meðferðar hjá börnum.Athugið: Durogesic á ekki að nota gegn bráðaverkjum eða verkjum eftir skurðaðgerðir. Pakkningar og verð (1.4.1998): Forðaplástur 25 míkróg/klst.: 10 cm2 2x5 stk. - 5967 kr. Forðaplástur 50 míkróg/klst. : 20 cm2 2x5 stk. - 10428 kr. Forðaplástur 75 míkróg/klst.: 30 cm2 2x5 stk. - 14060 kr. Forðaplástur 100 míkróg/klst.: 40 cm2 2x5 stk. - 17052 kr. Thorarensen Vatnagarðar 18 ■ 104 Rcykjavfk ■ Sfm L Y F 568 6044 ^JANSSEN-CILAG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.