Læknablaðið - 15.04.1999, Síða 92
Durogesic FORÐAPLASTUR;
N 02 A B 03 X R E
Eiginleikar: Forðaplásturinn er ætlaður til
samfelldrar meðferðar með fentanýli. Fentanýl
er sterkt morfínlyf sem fyrst og fremst binst
fi-viðtökum. Abendingar: langvinnir verkir, af
völdum illkynja sjúkdóma, sem eru næmir fyrir
morfínlyfjum. Frábendingar: Slævð öndun.
Varúð: Aukinn heilaþrýstingur, minnkuð
meðvitund, meðvitundarleysi og órói í kjölfar
neyslu áfengis og svefnlyfja. Hægur
hjartsláttur. Astmi. Slímsöfnun í lungum.
Samtímis notkun annarra slævandi lyfja.
Fylgjast þarf náið með sjúklingum með
skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi svo og
öldruðum sjúklingum og sjúklingum í
kröm. Meðganga og brjóstagjöf:
Morfínlyf geta hamið öndun hjá nýburum.
Ef um langvarandi notkun lyfsins á
meðgöngu hefur verið að ræða má gera
ráð fyrir fráhvarfseinkennum hjá baminu
eftir fæðinguna. Fentanýl berst í
brjóstamjólk í nægilegu magni til þess
að hafa áhrif á bamið, jafnvel þó að gefnir
séu venjulegir skammtar. Aukaverkanir:
Algengustu aukaverkanir eru
ógleði/uppköst (28%) og syfja (23%).
Alvarlegasta aukaverkunin er hömlun
öndunar og er skammtaháð, en þessi
aukaverkun cr sjaldgæf hjá sjúklingum,
sem myndað hafa þol gegn morfínlyfjum.
Algengar (>1%): Almennar: Kláði.
Hjarta- og œðakerfi: Lágur blóðþrýsting-
ur, hægur hjartsláttur. Miðtaugakerfi:
Syfja, rugl, ofskynjanir, sæluvíma.
Hömlun öndunar. Meltingarfœri: Ógleði,
uppköst, hægðatregða. Húð: Erting í
plástursstæðinu (roði, kláði, útbrot).
Þvagfœri: Þvagteppa. Húðertingin hverfur
venjulega innan sólarhrings eftir að plástur
hefur verið fjarlægður. Sjúklingar, sem
fá morfínlyf, geta myndað þol og einnig
orðið háðir lyfinu. Milliverkun: Fentanýl
samverkar með barbítúrsýrulyfjum.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Skömmtun er einstaklingsbundin og byggir
á ahnennu ástandi sjúklings svo og á fyrri
sögu um notkun morfínlyfja. Hafi sjúklingur
ekki fengið sterk morfínlyf áður ber að stilla
inn stuttverkandi morfínlyf fyrst og síðan
breyta þeim skammti yfir í Durogesic.
Skammtur lyfsins er svo endurskoðaður með
jöfnu millibili þar til æskilegum áhrifum cr
náð. Þegar breytt er úr morfínlyljum til inntöku
eða stungulyfjum yfir í Durogesic skal nota
eftirfarandi til leiðbeiningar:
1. Leggið saman notkunina á sterkum
verkjalyfjum síðasta sólarhring.
2. Ef sjúklingurinn hefur notað annað lyf en
morfín, breytið þá yfir í jafngildisskammt (sjá
sérlyfjaskrá) af morfíni til inntöku.
3. Notið töflu (sjá sérlyfjaskrá) til þess að ákveða
upphafsskammt Durogesic og miðið við
morfínskammt til inntöku á sólarhring. (90 mg
af morfíni til inntöku á dag er sambærilegt við
Durogesic 25 míkróg/klst. Þannig skal nota
Durogesic 50 mfkróg/klst. ef morfínskammtur til
inntöku er 135-225 mg/sólarhring). Skipta skal um
plástur eftir 72 klst. Hæfilegur skammtur fyrir hvem
einstakling er fundinn með því að auka skainmtinn
þar til verkjastillingu er náð. Fáist ekki nægjanleg
verkun af fyrsta plástri, má auka skammtinn cftir 3
daga. Síðan er unnt að auka skammtinn á þriggja
daga fresti. Þurfi sjúklingurinn mcira cn 100
mflcróg/klst. má nota fleiri en einn plástur í senn.
Durogesic skal líma á efri hluta líkamans eða á
upphandlegg og á ógeislaða, slétta, og heilbrigða
húð. Ef hár eru á staðnum ber að klippa þau af en
ekki raka en hárlaus svæði eru æskilegust. Ef þvo
þarf svæðið áður en plásturinn er settur á, skal gera
það með hreinu vatni. Ekki má nota sápu, olíu, áburð
eða önnur efni sem geta ert húðina eða breytt
eiginleikum hennar. Þegar skipt er um plástur skal
hann settur á annan stað. Fyrri stað má ekki nota
fyrr en eftir nokkra sólarhringa. Skammtastæröir
handa börnum: Lítil reynsla er af notkun lyfsins
til meðferðar hjá börnum.Athugið: Durogesic á
ekki að nota gegn bráðaverkjum eða verkjum
eftir skurðaðgerðir.
Pakkningar og verð (1.4.1998): Forðaplástur
25 míkróg/klst.: 10 cm2 2x5 stk. - 5967 kr.
Forðaplástur 50 míkróg/klst. : 20 cm2
2x5 stk. - 10428 kr. Forðaplástur
75 míkróg/klst.: 30 cm2 2x5 stk. -
14060 kr. Forðaplástur 100 míkróg/klst.:
40 cm2 2x5 stk. - 17052 kr.
Thorarensen
Vatnagarðar 18 ■ 104 Rcykjavfk ■ Sfm
L Y F
568 6044
^JANSSEN-CILAG