Læknablaðið - 15.04.1999, Side 120
384
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Félag íslenskra landsbyggðarlækna stofnað
Nýtt félag, Félag íslenskra landsbyggðar-
lækna (FÍLL), var stofnað 2. október 1998.
Markmið félagsins er að vinna að bættri heil-
brigðisþjónustu dreifbýlisins svo og almennum
hagsmunum landsbyggðarlækna auk viðeig-
andi símenntun og sérfræðimenntun. Félagið er
ætlað þeim læknum er deila með sér svipuðum
kjörum og starfsaðstöðu á landsbyggðinni en er
opið öllum læknum er hafa áhuga á að vinna að
markmiðum félagsins.
A fyrsta aðalfundi félagsins sem haldinn var
laugardaginn 5. mars síðastliðinn voru eftir-
taldir kosnir í stjóm: Ágúst Oddsson formaður,
Bolungarvík, Stefán Þórarinsson ritari, Egils-
stöðum og Kristján G. Guðmundsson gjald-
keri, Blönduósi. I varastjórn voru kosnir: Þórir
B. Kolbeinsson. Hellu og Hallgrímur Magn-
ússon, Grundarfirði.
Heimasíða Félags íslenskra landsbyggðar-
lækna: www.icemed.is/felog_laekna/fill.htm
Netfang formanns: agodds@mmedia.is
Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á
aðalfundinum.
Ályktun aðalfundar Félags íslenskra
landsbyggðarlækna
Aðalfundur Félags íslenskra landsbyggðar-
lækna haldinn 5. mars 1999 leggur áherslu á að
landsbyggðarlækningar séu sérstök grein innan
læknisfræðinnar.
Mikilvægt er fyrir uppbyggingu heilbrigðis-
þjónustu á Islandi að fræðigreinin eigi sinn sess
í grunnmenntun lækna. Möguleikar til sí-
menntunar þurfa að vera fyrir hendi og stefna
þarf á að bjóða upp á sérfræðimenntun í grein-
inni.
Aðalfundurinn leggur áherslu á að starfsum-
hverfi og kjaramál landsbyggðarlækna séu á
þann veg að þau laði lækna til starfa.
Félag íslenskra landsbyggðarlækna leitar
eftir samvinnu við stjórnvöld um fyrrgreind at-
riði og þar með lausn á þeim gífurlega vanda
sem við blasir vegna læknaskorts á lands-
byggðinni.
Ályktun um sjúkraflug
Aðalfundur Félags íslenskra landsbyggðar-
lækna haldinn í Kópavogi 5. mars 1999 sam-
þykkti eftirfarandi ályktun:
Félag íslenskra landsbyggðarlækna skorar á
yfirvöld heilbrigðismála að koma sem fyrst á
úrbótum í sjúkraflutningum með flugvélum.
Félagið telur að fá verði öfluga flugvél með
jafnþrýstibúnaði sem yrði sérstaklega útbúin til
sjúkraflutninga.
Telur félagið að þessi flugvél verði best stað-
sett á Akureyri.
Ný stjórn
Aðalfundur Félags íslenskra fæðinga- og
kvensjúkdómalækna var haldinn í febrúar síð-
astliðnum. Kosin var ný stjórn sem er þannig
skipuð: Jens A. Guðmundsson formaður, Ósk
Ingvarsdóttir varaformaður, Hildur Harðar-
dóttir ritari og Guðjón Vilbergsson gjaldkeri.
Ný stjórn
Aðalfundur Læknafélags Akureyrar var hald-
inn 27. janúar síðastliðinn. Kosin var ný stjóm
sem er þannig skipuð: Kristinn Eyjólfsson for-
maður, Vilhjálmur Andrésson varaformaður,
Magnús Ólafsson ritari og Elsa Guðmunds-
dóttir gjaldkeri.
Ný stjórn
Á aðalfundi Félags sérfræðinga í meltingar-
sjúkdómum 25. febrúar síðastliðinn var ný stjóm
kjörin. Stjórnina skipa: Hallgrímur Guðjóns-
son formaður, Ásgeir Theodórs ritari og Ás-
geir Böðvarsson gjaldkeri.
Ný stjórn
Aðalfundur Félags íslenskra lækna í Bret-
landi (FÍLÍB) var haldinn 27. febrúar síðastlið-
inn, en nú eru hátt í 40 íslenskir læknar í Bret-
landi. Ný stjórn var kosin. Páll Matthíasson er
formaður. Ingólfur Einarsson ritari og Vigdís
Þórisdóttir gjaldkeri. Netfang formanns er:
p.matthiasson@iop.kcl.ac.uk