Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1995, Side 10
10
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Sverrir Bergmann
Kveðjur frá Læknafélagi Islands
Ágæti formaður Læknafélags Akureyrar, kol-
legar mínir góðir hér á Akureyri og hátíðargestir
allir.
Dagurinn er svo fagur að hann er ekki aðeins
hentugur til fallbyssuskota heldur hefur maður
lúmskan grun um það, að sjálft almættið taki þátt í
þessum hátíðarhöldum eða hafi í það minnsta á
þeim velþóknun. Ég þakka fyrir að hafa fengið
tækifæri til að vera hér á Akureyri í dag og með
ykkur á þessum hátíðisdegi, 60 ára afmæli Lækna-
félags Akureyrar. Það er mér mikil ánægja og
mikill heiður og ég flyt ykkur þakkir, kveðjur og
árnaðaróskir frá Læknafélagi íslands og þá eftir
atvikum kveðju allra íslenskra lækna til ykkar
kolleganna og annarra hér á Akureyri og til ham-
ingju með afmælið.
Á Akureyri var í upphafi aldarinnar handskrif-
að Læknablaðið. Það gerði prófessor Guðmund-
ur Hannesson læknir og hér fór sá sem síðar var
frumkvöðull að stofnun heildarsamtaka íslenskra
lækna, það er Læknafélags íslands, og fyrsti for-
maður þess við stofnun árið 1918. Guðmundi var
ljós máttur samstöðunnar og nauðsyn heildar-
samtaka lækna svo að þeir væru sterkir inn á við,
öflugir sem heild og fengju þannig staðið undir
skyldum sínum og undir þeirri miklu ábyrgð sem
hvílir á læknum hvers lands. Þetta er grundvall-
aratriði og það er óhrakið í harðri umræðu og í
mati nútímans á gildi félaga. Þessar staðreyndir
eru jafngildar nú og þá og á tímamótum sem
þessum er heppilegt að árétta þessi sannindi.
Aðeins sem sterk heild fá læknar beitt áhrifum til
mótunar mannúðar-, þekkingar- og menningar-
samfélags í landi sínu með afskiptum af heilbrigð-
is-, félags-, mennta- og menningarmálum öðrum
frentur þótt ekkert sé okkur óviðkomandi. Þekk-
ing okkar og sú siðfræði sem við göngumst undir í
orði og í athöfnum við beitingu hennar á að gera
okkur hæfa til þess að vera hinir mikilvægu ráð-
gjafar á þessum sviðum og við ættum oftar að vera
í forystu en er í dag. í þessum orðum felast að mér
finnst sannindi, ekki hroki og síst af öllu lítilsvirð-
ing gagnvart þeim sem öðrum störfum gegna
meðal annars okkur við hlið og stefna að sama
marki.
Læknar á Akureyri hafa haldið merkinu hátt á
lofti og verið sjálfum sér, samtökum sínum og
læknastéttinni allri til sóma. Þeir hafa af trú-
mennsku rækt skyldur sínar við þau þjóðfélags-
Iegu viðfangsefni sem læknum eru lögð á herðar
að fást við og gert að skila. Um þetta þarf ekkert
að deila og verkin sýna merkin. Þess verður vænst
áfram að læknar á Akureyri, með samtök sín að
baki, verði virkir þátttakendur í heilbrigðis-, fé-
lags-, mennta- og menningarmálum staðarins.
Ánægjulegt hefur verið að fylgjast með grein-
um lækna á Akureyri um heilbrigðismál í blaðinu
Degi. Það ergleðilegt líka að vita af því hversu vel
er skipað heilbrigðismálum á Akureyri og ná-
grenni þrátt fyrir allt, þótt allir muni ekki vera
mér sammála um það og margt vanti vafalaust
upp á, og eins hversu stórhuga er áætlað í þeim
efnum. Fagna ber framtaki Læknafélags Akur-
eyrar í sambandi við varðveislu og heiðrun lækn-
isfræðilegra og menningarsögulegra verðmæta.
Þetta hól get ég viðhaft en ekki þeir sem hér eru
sjálfir starfandi, þótt ég verði að ætla þeim eins og
öðrum mönnum að þeim þyki lofið gott. Þeir eru
ekki heldur alveg meðvitaðir um árangur sinn
endilega nema að litlu leyti þótt allsgáðir séu og
breytir þar engu meðfædd hógværð og lítillæti.
Mat gestsins er oftast miklu raunsannara.
Það er svo unt aldur félaga sem aldur manna að
hann er afstæður og ekki verður heldur séð hvort
félög fái náð háum aldri fremur heldur en á við um
mannfólkið. Sent fyrr er erfitt að spá í framtíðina.
Veraldleg tilvist mannsins hefur þó enn sín tak-
ntörk þrátt fyrir ntikla framför læknavísindanna
en maðurinn á auðvitað eftir eilífðina alla fyrir
handan. Það er minna vitað um tilvist félaga þeim
megin með nokkurri vissu en tilvist þeirra hérna
ntegin getur orðið svo öldum skiptir eins og dæm-
in sanna, liggi að baki þeim grundvöllur eins og á
við um samtök lækna. Því er Læknafélag Akur-
eyrar vafalaust ungt að árum nú, þegar það stend-
ur á sextugu og hefur árin tvö tæplega umfram
þann sem hér stendur.
Við sem fædd erum og uppalin ekki svo langt
frá Akureyri, en þó svo óralangt í burtu, sáum
þennan stað í hillingum sem eitthvað æðra og svo