Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1995, Blaðsíða 20
20
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
SMAKA9Í C2ut>*UtipU*- JOWU.flB>ans«>M|>»E«W2 UAMlt UMt.
CPUR£>UR. UH HVBJWÍG UlV'P SBHGU Á F}ö^pUM«jjuV«ÁJXff/AÍtf (
dr. Helga Tömassyni, að hætt yrði við shock með-
ferð við maníska sjúklinga þar eð sú meðferð gæti
verið hættuleg en batahorfur lítið betri en við
conservativa meðferð. Ut af þessu urðu shock-
doktorar hér nokkuð fyrtir og sögðu að þá væri
best fyrir dr. Helga að taka við þessum vitfirring-
um sínum en ella væri von að læknar hér notuðu
öll tiltæk ráð til að koma vitinu fyrir þessa fáráð-
linga.
Hinn 4. desember 1944 var haldinn 10 ára af-
mælisfundur og mættu félagar í viðhafnarbúning-
um ásamt mökum sínum til borðhalds þar sem
fram voru reiddar dýrustu krásir en til drykkjar
var ljúffengt öl og kaffi á eftir máltíð. Formaður
Jóhann Þorkelsson rakti sögu félagsins, Pétur
Jónsson ritari mælti fyrir minni frúnna og skáld
félagsins Jón Geirsson flutti revíurímur um félag-
ana og þótti vel takast að vanda.
Á fundi 11. september 1944 var samþykkt, að
Stefán Guðnason settist hér að sem praktiserandi
læknir og var það samhljóða álit fundarmanna, að
hann kæmi sem sending frá himnum í því lækna-
hraki sem Akureyringar áttu þá við að búa. Hinn
4. október 1948 minntist formaður nýlátins aðal-
stofnanda félagsins Steingríms Matthíassonar.
Hinn 17. janúar 1949 var samþykkt uppkast að
samningi milli Læknafélags Akureyrar og Sjúkra-
samlags Akureyrar, þeim sem fól í sér fast lækna-
val fyrir eitt ár í einu. Hinn 18. mars 1949 sam-
þykkti fundur í Læknafélagi Akureyrar að félagið
beitti sér fyrir stofnun krabbameinsvarnafélags
hér. Hinn 9. janúar 1950 var minnst látins félaga,
Jóns Geirssonar, sem féll frá 4. janúar 1950. í
október 1951 var Ólafur Sigurðsson tekinn inn í
félagið á ný, hafði áður verið hér praktiserandi
læknir 1945-1949. Var viðurkenndur sérfræðingur
í lyflækningum í júní 1951 en starfaði 1951-1953
nrestmegnis sem heimilislæknir hér í bænum.
Hinn 7. desember 1953 var boðin velkomin í fé-
lagið Þorbjörg Magnúsdóttir svæfingalæknir.
Hinn 27. október 1952 var tekinn inn í félagið
Sigurður Ólason læknir. Hann var aðstoðarlæknir
við sjúkrahúsið hér frá 1952-1954, var í námsvöl á
röntgendeild Landspítalans nóvember 1954 til
maí 1955 og var röntgenlæknir hér 1955-1973, eftir
það yfirlæknir röntgendeildar til 1990. Hann hafði
mun skemmri framhaldsmenntun að baki en aðrir
röntgenlæknar þá í landinu en starfsferill hans
sýndi vel hversu sjálfmenntun má sín mikils þegar
elja og vinnusemi eru fyrir hendi.
Hinn 15. desember 1953 voru allir sjúklingar og
öll starfsemi sjúkrahússins flutt í hina nýju bygg-
ingu á Eyrarlandstúni og 1. janúar 1954 tók lyf-
lækningadeild til starfa í henni. Frá þeim degi
nefndist sjúkrahúsið formlega Fjórðungssjúkra-
húsið á Ákureyri. Eftir flutninginn 1953-1954
taldist sjúkrahúsið rúma 108 sjúkrarúm alls.
Handlækningadeild rúmaði að meðtalinni 14
rúma fæðingardeild 54 sjúkrarúm talsins. Lyf-
lækningadeild rúmaði í byrjun ásamt með 12 rúma
geðveikradeild 54 sjúkrarúm talsins. Á næstu ár-
um var þó vesturálma þriðju hæðar smám saman
tekin í notkun undir hjúkrunarrúm sem hluti lyf-
lækningadeildar, var kölluð B-deild og rúmaði
nærri 20 sjúkrarúm. Árið 1961 voru fjögur her-
Sigurður Ólason að störfum.