Sagnir - 01.04.1990, Blaðsíða 22

Sagnir - 01.04.1990, Blaðsíða 22
Eggert Þór Bernharðsson fögnuð landsmanna. Enn verri þótti þó tilhneiging „Reykjavíkur- stúlkunnar" til að endurbæta hör- undslit sinn með alls kyns farða og smyrslum. Annar íslenskur rithöf- undur, síðar víðfrægur nóbelsverð- launahafi sem vildi m.a. um þetta leyti kenna þjóð sinni að búa í borg, ritaði um drengjakollsklippinguna um miðjan þriðja áratuginn. Hann bar dætur Reykjavíkur saman við erlendu nútímakonuna. Heldur hallaði á þá íslensku í þeim sam- jöfnuði. Sú útlenda klippti hár sitt stutt en að áliti rithöfundarins var stutta hárið „hvorki meira né minna en ytra tákn um endurmat allra gilda í viðhorfi nútíðarkonunnar." Hann sagði síðan m.a.: Stúlka sem tollir í tísku um klæðaburð verður til athlægis á götum Reykjavíkur, svo er hún fáséður fyrirburður; en hitt al- geingt, að kvenfólkið heingi ut- aná sig einhverjar sviplausar dulur, að ég ekki tali um þennan svokallaða þjóðbúníng. Og ég veit ekki betur en að dreingja- kollurinn ... þyki enn hálfgert furðuverk í Reykjavík, og veki jafnvel fyrirlitníngu og ógeð úngra stúlkna. Pó sést ein og ein sem hefur látið skella neðanaf hárinu á sér fyrir neðan eyrun, í einhverju meiníngarleysi, en út- lend stúlka, sem kom til Reykja- víkur seinni hluta síðasta vetrar, sagði mér að hún hefði hvergi á hárgreiðslustofum kvenna feing- ið hár sitt klipt eftir þeirri tísku sem ytra réði, og loks orðið að láta gera það á rakarastofu karla.10 Þannig hafði hártískan, tákn um endurmat nútímakonunnar, ekki náð til „Reykjavíkurstúlkunnar" ár- ið 1925 en tískan getur oft verið fljót í förum og ef til vill hefur miðað eitthvað áleiðis næstu ár. í það minnsta sýndist Kamban gæta breytinga í þessu efni. En raunar þurfti ekki marga „drengjakolla" til þess að þeir vektu athygli og umtal. Andlegrar framtakssemi „Reykja- víkurstúlkunnar" gætti lítið í opin- beru lífi. Það urðu jafnvel áköfustu fylgismenn hennar að viðurkenna en þeir spurðu um leið hvernig hún ætti að gera það í því umhverfi sem Reykjavík bauð upp á. Andlegu lífi Reykvíkinga væri svo háttað að það hvetti hana sannarlega ekki til þess og það væri að vel athuguðu máli vafasamt hvort yfirleitt væri hægt að tala um nokkurt andlegt líf í höf- uðstaðnum. „Stendur hér stormur um nokkurn andans mann? Koma hér fram nýjar hugsanir sem þrótt- mikil æska greypir í fána sinn eða þróttmikil æska rís öndverð á móti?" spurði Kamban.11 Var þess að vænta að „Reykjavíkurstúlkan" innti af höndum andleg afrek í loftslagi slíkrar deyfðar? Þannig reyndi Kamban að verja „Reykjavíkurstúlkuna" eftir bestu getu gegn gagnrýninni. Það var svo sem ekki að ástæðulausu sem rit- höfundurinn gerði þetta. I hans huga var „Reykjavíkurstúlkan" ein- hver mikilvægasta manneskja landsins. En var hún ekki bara tískufyrirbrigði? Var breytingin sem orðin var á „Reykjavíkurstúlkunni" yfirleitt nokkurs virði? Hvaða gildi hafði sjálf tískan? Átti hún sér nokkurt lögmál? Var hún annað en einskisverðar kenjar? Þannig spurði Kamban en hann áleit að á bak við hina margumræddu og sí- hrjáðu tísku, sem sigraði þó jafnan viðstöðulaust, fælist siðmenning Evrópu, borgarmenningin. Það væri kjarni málsins. í kjölfar sið- menningarinnar kæmi hin alþjóð- lega tíska. Tískan hefði drepið nið- ur fæti á hinu strjálbýla íslandi fyrr á öldum en ekki siðfágunin. Hér hefði vantað bæ. Nú væri stundin hins vegar að renna upp. Hér væri risinn bær. Að vísu þyrfti mörg stúlkan að vita að þó hún væri kom- Dætur Reykjavíkur sem vildu tolla í tísk- unni fengu mikilvæga þjónustu d hdrgreiðslu- stofum bæjarins. Ekki er þó „drengjakollur- inn" í burðarliðnum d þessari mynd, sem tek- in var undir lok þriðja dratugar, enda þótt sú hdrtíska hafi þd riðið húsum víða tim lönd í nokkur dr. 20 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.