Sagnir - 01.04.1990, Page 38
Arnþór Gunnarsson
ingar og getnaðarvarnir á íslandi og
það var ekki fyrr en á fjórða áratugi
þessarar aldar að umræðan varð
opinber. í öðru lagi verður sjónum
beint að þeim málum sem Katrín
vann að á Alþingi og vörðuðu kon-
ur sérstaklega þó segja megi sem
svo að öll þingmál snerti konur með
einhverjum hætti eins og haft var
eftir Katrínu skömmu eftir að hún
tók sæti á þingi.2 Að síðustu verður
lítillega greint frá skoðunum Katr-
ínar á stöðu kvenna í íslensku þjóð-
félagi.
Frjálsar ástir
Árið 1931 flutti Katrín erindi í boði
Jafnaðarmannafélagsins um tak-
markanir barneigna eins og þessi
mál voru gjarnan nefnd á þeim
tíma. Skömmu síðar flutti hún er-
indið aftur, nú í boði Guðspekifé-
lagsins í Reykjavík. Þegar fleiri fé-
lög buðu Katrínu að flytja erindið
tók hún fyrir það enda stóð til að
því yrði útvarpað. Vegna þeirrar
gífurlegu athygli sem erindið vakti
og mikilla viðbragða almennings sá
hún sig tilneydda til að leyfa útgáfu
þess á prenti undir heitinu Frjálsar
ástir. Erindi um takmarkanir barn-
eigna.3
I formála erindisins sagði Katrín
að fólk hafi hneykslast bæði af orða-
Katrín hafði „óbeit" á fðstur-
eyðingutn og vildi fræða fólk
um getnaðarvarnir.
vali og efni þess. Einnig hafði hún
orðið vör við að fólk gerði sér alls
kyns ranghugmyndir um þessi mál
en það hafði hún m.a. ráðið af þeim
bréfum sem henni bárust víðsvegar
að vegna erindisins. Orðrétt sagði
Katrín:
Sumir báðu um nánari upplýs-
ingar, aðrir vildu fá sendar verj-
ur og þóttist ég samt hafa tekið
það skýrt fram, að slíkt gæti því
aðeins komið að gagni, að ná-
kvæmt mál hefði verið tekið, —
mál, sem er algerlega óháð stærð
konunnar, aldri eða því, hvort
hún hefir alið barn eða ekki. Þá
voru þeir ekki allfáir, sem á ein-
hvern óskiljanlegan hátt höfðu
komizt að þeirri niðurstöðu, að
fyrirlesturinn hafi aðallega fjall-
að um leiðbeiningar til fóstur-
morða og báðu vinsamlegast,
með skírskotun til erindis míns,
um lyfjasendingu til að eyða allt
frá fárra daga til upp undir 7
mánaða gömlu fóstri. Nú virðist
það samt, að ekki þurfi nema
meðalgreind til að skilja, að hér
er um tvennt ólfkt að ræða: ann-
ars vegar að koma í veg fyrir að
fóstur geti myndast, en hins
vegar að drepa fóstur, sem þegar
er til orðið. En allur almenningur
virðist eiga mjög bágt með að sjá
muninn, og yfirleitt er fáfræðin
alveg í algleymingi, að því er
fósturlát snertir. Til dæmis barst
mér nýlega bréf frá konu, er bið-
ur um sterk meðul til fóstureyð-
ingar; hún kveðst vera búin að
reyna, árangurslaust vitanlega:
Chinin, Kamfóru, Kreósót,
brennsluspritt og sóda í sterku
kaffi ... [fólk] heldur, að læknar
lumi á einhverjum undralyfjum,
sem ekki þurfi nema 1-2 inntök-
ur af, þá spýtist fóstrið út og allt
sé í lagi.4
Katrín kom víða við í erindinu en
hér verður látið nægja að geta stutt-
lega skoðanna hennar á fóstureyð-
ingum. Að mati Katrínar voru lögin
um fóstureyðingar frá 1869 úrelt.
Þau kváðu á um að dæma mætti
menn til átta mánaða og allt upp í
sextán ára fangelsisvistar fyrir að
eyða fóstri og skipti þá engu hvaða
ástæður lágu þar að baki. Áleit Kat-
rín að lögin yrðu brátt tekin úr gildi
eða lagfærð. Sjálf sagðist hún hafa
„óbeit" á fóstureyðingum en taldi
að konan, móðirin, eigi að vera
rétthærri en þetta samsafn af
frumum, sem um síðir verður
kannske lifandi vera. — Margir,
sem andvígir eru viðkomuhöml-
um, eru það af þeim misskiln-
ingi, að þeir halda, að um fóstur-
morð sé að ræða, er talað er um
takmarkanir fæðinga. Það er al-
gerlega rangt; getnaðarverjurnar
koma beinlínis í veg fyrir það, að
til þeirra óyndisúrræða þurfi að
grípa, sem framköllun fósturláta
eru. Með viðkomuhömlun, fæð-
ingatakmörkun, >birth controK,
er átt, þegar frjóvgunin er hindr-
uð, þegar komið er í veg fyrir, að
sæðisfruma og egg hittist og
sameinist.
Katrín vildi að fóstureyðingar ættu
ekki rétt á sér nema í undantekn-
ingartilvikum; þ.e.a.s. ef líf og
heilsa móðurinnar væri í hættu og
ef um nauðgun hafi verið að ræða.
Til að fækka þeim tilfellum þar sem
börn eru óvelkomin í heiminn vildi
Katrín að getnaðarvarnir yrðu al-
mennt viðurkenndar og notkun
þeirra kynnt almenningi.5
36 SAGNIR