Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 17

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 17
seinni áfanga. Gert var samkomulag við Sjúkrahús Akraness um kaup á aðalmáltíð frá eldhúsi sjúkra- hússins. Er sá matur fluttur til heimilisins í þar til gerðum hitabökkum. Hefur sú tilhögun gefizt vel, þótt vitanlega megi finna á henni galla. Einn meg- inkostur slíkrar tilhögunar felst í því, að þannig er hægt að tryggja, að þeir, sem þurfa einhvers konar sérfæði vegna heilsu sinnar, fá það á sama hátt og sjúklingar á sjúkrahúsinu. Þótt vinnuaðstaða og rými til sjúkraþjálfunar heyri endanlega til síðari byggingaráföngum, hefur vinnuaðstaða þegar verið innréttuð í núverandi húsnæði. Er sú þjónusta að öllu jöfnu vel sótt og ekki fjarri að ætla, að um helmingur vistmanna sæki hana reglulega, auk þess sem ýmsir vinna að handavinnu í íbúðum sínum. Nú er unnið að innréttingu aðstöðu til sjúkra- þjálfunar, hárgreiðslu og fótsnyrtingar í bráða- birgðahúsnæði í kjallara, og verður það væntanlega tilbúið á árinu 1982. Dagvistun hefur verið komið á i tengslum við heimilið. Hófst hún á sl. hausti og hefur gengið greiðlega. Dagvistun er mikilvægur þáttur í þjón- ustunni, þáttur, sem gerir öldruðum jafnt sem ör- yrkjum mögulegt að dveljast mun lengur á heimili sínu en ella. Nú sækja 9 einstaklingar dagvistun í viku hverri, misjafnlega langan tíma eftir löngun og þörfum hvers og eins. Taka þeir þátt í því, sem fram fer innan veggja heimilisins dag hvern eftir því sem hugur stendur til. Innréttað hefur verið sérstakt hvíldarherbergi fyrir dagvistunarfólk. Ekki er að efa, að dagvistun og endurhæfing verða vaxandi þjón- ustuþættir á komandi árum. Á þessu ári, ári aldraðra, er, svo sem áður er getið um, áformað að ljúka innréttingu endurhæfingar- aðstöðu. Auk þess er áformað að hefja byggingu leigu- og sjálfseignaríbúða fyrir aldraða og öryrkja, og hafa kannanir sýnt, að fyrir því er verulegur áhugi. Einnig er ljóst, að mjög er aðkallandi að hefjast handa um byggingu aukins þjónusturýmis fyrir marga þá þætti, sem að framan eru nefndir. Á sl. ári var gert átak í frágangi lóðar, sem vakti að sjálfsögðu mikla ánægju. Ljóst er því, að hugur stendur til þess, að áfram verði haldið einnig á því sviði á árinu, sem nú er nýhafið. Hjón í íbúð sinni á Höfða. Húsbúnaður er þeirra eigin. Til vinstri sést inn í svefnherbergi. Úr einu af þremur vinnuherbergjum vistmanna. Dvalarheimilið Höfði er ekki hannað sem hjúkr- unarheimili. Á því sviði nýtur það góðrar þjónustu Sjúkrahúss Akraness. Heimilið er við Sólmundar- höfða. Þar er friðsælt, en um leið einhver fegursti staður Akraness með útsýni yfir flóann í átt til Reykjavíkur, Akrafjall, Esjan og höfnin blasa við. Fjölmennt byggðarhverfi er í næsta nágrenni, Langisandur og sjórinn við gafl og væntanlegt að- al-útivistarsvæði bæjarbúa við hlið hússins. Fyrsti forstöðumaður heimilisins var Gylfi Svav- arsson, en nú veitir Ásmundur Ólafsson því forstöðu. Öll hönnun heimilisins var unnin á Verkfræði- og teiknistofunni sf. á Akranesi. Þetta ár er helgað þjónustu og aðbúnaði aldraðra. Þótt margt hafi áunnizt á síðustu árum, er vissulega margt enn ógert. Guð gefi okkur gæfu til þess að hnika málum verulega áfram á þessu sérstaka ári. SVEITARSTJÓRNARMAL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.