Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Page 29

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Page 29
GÍSLI VIGGÓSSON, verkfræö- ingur, Hafnamálastofnun: HÖNNUN BRIMVARNARGARÐA MEÐ TILLITI TIL SKEMMDA Á BRIMVARNARGARÐINUM Á AKRANESI Hönnun brimvarnargarða úr stórgrýti Almenna formið á brimvarnargörðum er, að garðarnir hafa beina fláa bæði haf- og hafnarmegin. Þetta form er hagkvæmast, þar sem það gefur minnst magn á lengdareiningu, og eins er þetta eina formið, sem til greina kemur með tilliti til þeirra tækja, sem notuð eru við byggingu grjótgarða. Þá er miðað við, að krani sé notaður við útlagningu stórgrýtis. Skoðum við aftur á móti sand- og malarfjöru, sjáum við, að náttúrlegt jafnvægi er yfirleitt S- form. Neðan við sjávarborð er brimþrep með litlum fláa. Hins vegar er fláinn mun meiri fyrir neðan brimþrepið og eins fyrir ofan það. Með tilkomu pramma við útlagningu í fót fláans hafmegin er leitazt við að nálgast fyrrnefnt náttúrlegt form. Gfsli Vlggósson, verkfræðlngur. Brimvarnargarður er byggður úr kjarnaefni, sem nær frá botni og upp fyrir flóðborð. Utan um kjarnaefnið er sía úr milligrjóti, og yzt er hlífðar- kápan úr stórgrýti. Þegar garður er byggður á sandi, þarf einnig að leggja síu á botninn milli sandsins og kjarnaefnisins. Við hönnun garðs þarf að taka tillit til margra þátta. Þeir eru: — öldugerðin — öldustefnan miðað við stefnu garðs — dýpi á garðstæði og botnhalli — botnlögin, klöpp eða setlög — sjávarföll — hæsta og lægsta sjávarstaða — grjótnám Með tilliti til þessara þátta er hlífðarkápunni skipt í ákveðna hluta hvað snertir stöðugleika: — Hlífðarkápan hafmegin. Hún nær frá einni til einnar og hálfrar ölduhæðar niður fyrir lægsta sjávarborð til sömu hæðar og upp fyrir hæsta sjávarborð. — Fóturinn þar fyrir neðan. — Króna garðsins að ofanverðu. — Hlífðarkápan hafnarmegin niður að fjöruborði. — Hlífðarkápa neðan við fjöruborð hafnarmegin. — Endi garðs þarf að hafa milli 50% til 100% stærra grjót í hlifðarkápu til að hafa sama stöðugleika og aðrir hlutar hans á 90° til 150° geira miðað við öldustefnu. Þótt ótrúlegt megi virðast, þá hefur ekki tekizt að gera raunhæft reiknilíkan til að segja fyrir um stöðugleika garðs úr stórgrýti miðað við mismun- SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.