Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Blaðsíða 39
Alfreð Jónsson, oddvltl í Grímsey og Slgurður Hjaltason, sveitarstjórl á Höfn í
Hornarfirði.
I varastjórn eru: Eiríkur Alexand-
ersson, bæjarstjóri í Grindavík;
Magnús Oddsson, bæjarstjóri á
Akranesi; Hörður Þórhallsson, sveit-
arstjóri á Reyðarfirði; Bjarni Aðal-
geirsson, bæjarstjóri á Húsavik og
Guðmundur B. Jónsson, bæjarfull-
trúi í Bolungarvik, tiln. af stjórn
Sambands islenzkra sveitarfélaga sem
varamaður Alexanders Stefánssonar.
Endurskoðendur voru kosnir Guð-
mundur J. Guðmundsson, hafnar-
nefndarmaður í Reykjavík og Þór
Hagalín, sveitarstjóri á Eyrarbakka
og til vara Valdimar Bragason,
bæjarstjóri á Dalvík, og Einar Þ.
Mathiesen, bæjarfulltrúi í Hafnar-
firði.
Hafnarstjórn Reykjavikurborgar
bauð fundarmönnum til hádegis-
verðar að Hótel Sögu þennan dag.
Björgvin Guðmundsson, formaður
hafnarstjórnar bauð fundarmenn
velkomna og ræddi nokkuð um
Reykjavíkurhöfn, en Guðmundur H.
Ingólfsson, bæjarfulltrúi á ísafirði,
þakkaði boðið af hálfu gesta.
Að loknum fundarstörfum þennan
dag bauð Steingrimur Hermannsson,
samgönguráðherra til móttöku að
Borgartúni 7.
Um boró f m/s Akraborg
Fundurinn hélt áfram að morgni
laugardags, skömmu eftir að m/s
Akraborg hafði leyst landfestar frá
Grófarbryggju i Reykjavikurhöfn kl.
10 árdegis. Formaður stýrði fundi.
Gísli Viggósson, deildarverkfræð-
ingur á Hafnamálastofnun, flutti þar
erindi um hönnun brimvarnargarða
með tilliti til skemmda á brimvarn-
argarðinum á Akranesi veturinn
1980—1981. Erindið er birt í heild
framar í þessu tölublaði.
Njörður Tryggvason, verkfræðingur á
Verkfræði- og teiknistofunni sf. á
Akranesi, flutti einnig um borð erindi
um brimvarnargarðinn á Akranesi og
rakti sögu hafnarframkvæmda á
Akranesi allt frá árinu 1908. Erindi
hans er einnig birt framar í þessu
tölublaði.
Hafnarmannvirki skoóuð
Þegar gengið var frá borði m/s
Akraborgar, voru komnir á hafnar-
bakkann bæjarfulltrúar, bæjarstjór-
inn á Akranesi, Magnús Oddsson og
hafnarnefndarmenn. Sýndu þeir
komumönnum hafnarmannvirki og
gerðu grein fyrir einstökum verk-
áföngum og því tjóni, sem varð í
veðurofsanum tvisvar á seinasta vetri,
í fyrra skiptið 27. og 28. desember
1980 og hið síðara nóttina milli 16. og
17. febrúar. Komumönnum var m. a.
bent á mikla dæld, sem er á stórum
geymi Sementsverksmiðju ríkisins,
sem þar stendur á hafnarsvæðinu.
Þóttu mönnum firn mikil þau verks-
ummerki eftir óveðrið 16.—17.
febrúar.
Þá skoðuðu fundarmenn hafnar-
vigtina, Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjuna hf., þar sem Valdimar
Indriðason, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins og forseti bæjarstjórnar,
kynnti starfsemina og Skipasmíða-
stöð Þorgeirs og Ellerts hf., þar sem
feðgarnir Þorgeir Jósefsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og Jósef
H. Þorgeirsson, bæjarfuiltrúi og al-
þingismaður, sýndu komumönnum
starfsemina og aðstöðu fyrirtækisins
við Lambhúsasund.
Umræöufundur um
brimvarnargarða
Að loknu hádegisverðarboði
bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar,
var haldinn fundur i húsakynnum
fjölbrautaskólans á Akranesi.
Fundarstjóri á þeim fundi var
Valdimar Indriðason, forseti bæjar-
stjórnar Akraneskaupstaðar.
Magnús Oddsson, bæjarstjóri, flutti
þar yfirlit um sögu byggðarlagsins og
vöxt kaupstaðarins, og var erindið
uppistaða í grein þeirri um Akranes-
kaupstað fjörutíu ára, sem bæjar-
stjórinn skrifar fremst í þetta tölu-
blað. Einnig gerði Magnús grein fyrir
hafnarframkvæmdunum og kynnti
sjónarmið „heimamanna", eins og
það var kynnt i dagskrá fundarins.
Gísli Viggósson og Njörður
Tryggvason sýndu einnig litskyggnur
til nánari skýringar á erindum sínum
um borð í m/s Akraborg fyrr um
daginn.
Almennar umræður fóru síðan
fram um grjótvarnargarða með hlið-
sjón af hafnargarðinum á Akranesi.
Síðan urðu almennar umræður um
hafnamál i landinu, og bar margt á
góma.
Að umræðum loknum þakkaði
formaður Hafnasambandsins, Gunn-
33
SVEITARSTJÓRNARMÁL