Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Blaðsíða 67
Frá sundmóti í Sundlaug Vesturbæjar.
Á allra síðustu árum er farið að koma fyrir loft-
streymi inn í þessar laugar og koma þannig meiri
hreyfingu á vatnið, og hefur það enn aukið á vin-
sældir þessara setlauga.
I fyrstunni voru byggð lítil bað- og búningsher-
bergi, hugsuð til afnota fyrir skóla og svo á sumrin til
þess að taka við hópaðsókn. Með þessa litlu bún-
ingsaðstöðu var sundlaugin tekin í notkun. Var með
ólíkindum, hve margir komust þó að, en það
byggðist mest á því, að fjöldi manns notaði sólbaðs-
skýli til fataskipta, en í þeim er ylur í gólfi. Einni
gufubaðstofu var komið fyrir í kjallara.
Eftir því sem aðsóknin jókst, urðu þrengslin til-
finnanlegri, og var hafizt handa um byggingu nýrra
bað- og búningsherbergja árið 1974 og þau tekin í
notkun í júní 1976. Jafnframt var ákveðið, að gamla
búningsaðstaðan yrði notuð fyrir tvö ný gufuböð
með tilheyrandi búningsaðstöðu, steypiböðum, að-
stöðu fyrir sólarlampa o. fl. Eru teikningar tilbúnar,
en óráðið, hvenær framkvæmdir hefjast.
Að ósk Bárðar ísleifssonar, arkitekts, var Jes Ein-
ari Þorsteinssyni falið að teikna allar innréttingar í
nýju baðálmuna svo og í anddyri og miðasölu.
Hin nýja bað- og búningsaðstaða er mjög björt,
rúmgóð og aðlaðandi. Geta þar 300 manns komizt
fyrir samtímis. Strax á fyrsta ári, sem hún var í
notkun, jókst aðsókn um allt að 100 þús. baðgesti, og
var hún á árinu 1980 340 þús. manns.
Á vegg og lofti í anddyri eru sérstaklega fallegar og
velheppnaðar listskreytingar gerðar af listakonunni
Barböru Árnason. Er auðséð, að hún hefur haft í
huga hið sögufræga sundafrek Helgu Haralds-
dóttur, er hún synti með sonu sína unga úr Harðar-
hólma í Hvalfirði til lands, eins og sagt er frá í
Harðarsögu og Hólmverja.
Fyrsti forstöðumaður Sundlaugar Vesturbæjar
var Höskuldur Goði Karlsson, frá 1961 til 1965, þá
tók við Erlingur Þ. Jóhannsson, frá 1965 til 1981. Nú
gegnir því starfi Haukur Jónasson. Starfsmenn
laugarinnar eru 12, og auk þess starfa þar 2 sund-
kennarar.
Úr búningsklefum karla.
61
SVEITARSTJÖRNARMÁL