Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Síða 69
NÝ SUNDLAUG TEKIN í
NOTKUN í ÞORLÁKSHÖFN
Ný sundlaug hefur verið tekin i
notkun í Þorlákshöfn. Hún er útilaug,
25 m löng, 12 m breið og 2.10 m á
dýpt, þar sem dýpst er, en 90 cm, þar
sent grynnst er.
Sundlaugin hefur verið eitt ár í
smiðum og kostaði samtals 1.791 þús.
króna. Með þeim kostnaði er talin,
auk laugarinnar, búningsaðstaða i
137 m2 húsi og tvær heitar setlaugar,
gufubað og frágangur lóðar.
Sundlaugin er reist við grunnskól-
ann, og þar í grennd er gert ráð fyrir
iþróttahúsi.
Verkfræðistofa Suðurlands á Sel-
fossi hannaði sundlaugarmannvirkið,
en aðalverktaki við framkvæmdina
var Hannes Gunnarsson, byggingar-
meistari í Þorlákshöfn. Að öðru leyti
hafði Sverrir Sigurjónsson, bygging-
arfulltrúi Ölfushrepps, veg og vanda
af umsjón með mannvirkinu.
Ölfushreppur hefur átt eignarhlut í
sundlauginni i Laugarskarði í
Hveragerði allt frá byggingu hennar,
og er gert ráð fyrir, að svo haldist
áfram, enda styttra fyrir flesta íbúa i
Ölfusi að sækja sund og böð þangað
heldur en til Þorlákshafnar. Milli
Þorlákshafnar og Hveragerðis eru 24
km, og þótti of langt fyrir Þorláks-
hafnarbúa, sem nú eru orðnir yfir eitt
|)úsund talsins, að sækja sund til
Hveragerðis, þar á meðal alla sund-
kennslu skólabarna.
Við sundlaugina eru tveir fastir
starfsmenn, og hefur nýting laugar-
innar frá því hún var tekin i notkun í
aprílmánuði sl. verið mjög mikil. Að-
sókn hefur verið samanlagt um 20
þúsund manns eða sem svarar því, að
hver ibúi Þorlákshafnar hafi sótt
hana 20 sinnum.
Ölfushreppur hefur til þessa einn
fjármagnað byggingu sundlaugar-
innar og lagt í hana, eins og áður
segir, tæplega 1.800 þús. króna.
Framlag iþróttasjóðs ríkisins til þessa
er aðeins 77 þús. króna. „Vonazt cr
til, að ríkisframlagið, sem verða mun
um 810 þús. króna, fáist allt á þessu
ári,“ sagði Stefán Garðarsson, sveit-
arstjóri í Ölfushreppi, er hann skýrði
tímaritinu frá hinni nýju sundlaug.
„Að fenginni hitaveitu á árinu
1979 rikti einhugur um það í
hreppnum, að ráðizt skyldi í bygg-
ingu sundlaugar í Þorlákshöfn," sagði
Stefán, „og mun enginn sjá eftir þvi,
svo mikill menningarauki og hagræði
þykir að tilkomu hennar. Auk
heimamanna er laugin mikið sótt af
aðkomufólki eftir vinnutíma, og í út-
gerðarbæ sem Þorlákshöfn er, verður
sundlaug að teljast til undirstöðu-
mannvirkja byggðarlagsins."
A siðastliðnu sumri fór sund-
kennsla frani á vegum ungmennafé-
lagsins Þórs í Þorlákshöfn, og var
þátttaka mjög mikil. Aldursflokkarn-
ir milli 9 og 15 ára eru þar i stórhóp-
um, og ríkir mikill áhugi á að ná langt
í sundíþróttinni. Sundkennari er
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, fyrr-
um sunddrottning, og telur hún, að
góður efniviður sé meðal yngstu kyn-
slóðarinnar í Þorlákshöfn á sviði
sundsins.
Sundlaugarstjóri er Jón H. Sigur-
mundsson.
Hús undir búningsklefa og sundlaug í smíðum. Vatn er komið í laugina, en verið
var að helluleggja í kringum hana, þegar Ijósmyndin var tekin.
Búningsklefar í smíðum. 48 skápar eru í hvorum klefa.
SVEITARSTJÓRNARMÁL