Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 70

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1982, Qupperneq 70
STJÓRN SAMBANDSINS FUNDUR FULLTRÚARÁÐSINS 25. OG 26. MARZ Stjórn sambandsins hefur ákveöið, að næsti reglulegur fundur í fulltrúa- ráði sambandsins verði haldinn i Reykjavík fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26. marz. I fulltrúaráðinu eiga sæti 34 menn, 9 stjórnarmenn sambandsins, þrir fulltrúar úr hverju kjördæmi nema 4 úr Reykjavík, og ennfremur formenn og framkvæmdastjórar landshluta- samtakanna, og hafa þeir tillögurétt og málfrelsi, en ekki atkvæðisrétt. LANDSÞING SAMBANDSINS 8. —10. SEPTEMBER Stjórn sambandsins hefur einnig ákveðið að boða til 12. landsþings sambandsins að Hótel Sögu í Reykjavík miðvikudaginn 8., finuntudaginn 9. og föstudaginn 10. september þessa árs. Landsþing sambandsins eru haldin fjórða hvert ár, að loknum sveitar- stjórnarkosningum. NÁMSKEIÐ í HEIMAÞJÓNUSTU Fyrirhugað er, að sambandið og nýstofnað Öldrunarráð íslands standi sameiginlega að þriggja daga nám- skeiði i heimaþjónustu, einkum fyrir aldraða, dagana 27.-29. apríl. Gert er ráð fyrir, að námsefni verði fyrst og fremst sniðið við aðstæður í sveitar- félögum, sem eru að hefja slika þjón- ustu. LAGASKRÁ— ATRIÐASKRÁ Sambandið hefur gefið út LAGA- SKRÁ — ATRIÐASKRA, sem hefur að geyma lög, reglugerðir og samþykktir um sveitarstjórnarmál í samantekt Magnúsar E. Guðjónsson- ar, framkvæmdastjóra sambandsins. Ritið er ljósprentað, 5 arkir að stærð. í ritinu er lagaskrá eftir aldursröð laganna, siðan skrá um lög, reglu- gerðir og samþykktir eftir einstökum málaflokkum, og eru málaflokkar þessir: 1. Ibúaskráning, kosningar og stjórnun 2. Stjórnsýsla og allsherjarregla 3. Fjármál sveitarfélaga 4. Skipulag, byggingareftirlit, brunamál, vegir og umferð 5. Félagsmál 6. Heilbrigðismál 7. Menntamál 8. Landbúnaður 9. Fyrirtæki sveitarfélaga Þá er birt skrá yfir samþykktir um stjórn bæjarmálefna og loks hin eiginlega atriðaskrá í stafrófsröð eftir uppsláttarorðum. I formála fyrir ritið segir Magnús: „Fáar stofnanir i þjóðfélaginu eru eins háðar lögum og sveitarfélögin. Tilvist þeirra er tryggð með ákvæðum i stjórnarskránni, stjórnskipun þeirra er að mestu lögbundin, tekjustofnar þeirra og flest verkefni eru lögákveð- in. Sveitarstjórnarmönnum er því nauðsynlegt að eiga greiðan aðgang að þeim réttarfyrirmælum, sem þeim ber að fara eftir. Lög eru birt í Stjórnartiðindum, A deild. Reglugerðir, samþykktir og gjaldskrár eru birtar í B deild Stjórnartíðinda. En það getur verið ærið tafsamt að leita Iaga og annarra réttarheimilda i Stjórnartíðindum. Að visu hafa lagasöfn verið gefin út á nokkurra ára fresti, síðast árið 1973, en i þau hafa aðeins verið tekin lög en ekki reglugerðir, samþykktir og gjaldskrár. Arið 1971 gaf Samband isl. sveit- arfélaga út fjölrit með heitinu „Sveitarstjórnarlöggjöf 1971 — Atriðisorðaskrá". í fjölriti þessu var skrá yfir atriði eða atriðisorð á sviði sveitarstjórnarmála um 400 að tölu ásamt tilvisun til laga og annarra réttarheimilda, þar sem um þau var fjallað. Utgáfa þessi var tilraun, sem ætlað var, að yrði haldið áfram, þar eð lög úreldast furðu fljótt. En af framhaldsútgáfu hefur þó ekki — af ýmsum ástæðum — orðið fyrr en nú. í yfirliti því, sem hér birtist, er að finna i timaröð skrá yfir flest gildandi lög, sem varða sveitarfélagamálefni, fyrst og fremst stofnlög og siðan breytingar á þeim, alls um 200 lög, en meginefni ritlings þessa er atriðaskrá alls rúmlega 1000 atriði á sviði sveit- arstjórnarmála með tilvísun til laga, reglugerða, samþykkta o. fl. réttar- heimilda, þar sem fjallað er um atriðið. Tilgangurinn með þessari útgáfu er að auðvelda sveitarstjórnarmönnum leitina i frumskógi laganna. Rit sem þetta getur aldrei orðið tæmandi eða fullkomið. Athugasemdir, ábend- ingar og tillögur verða því vel þegnar, þegar að næstu útgáfu kemur.“ Lagaskráin fæst á skrifstofu sam- bandsins að Háaleitisbraut 11 og kostar 50 krónur eintakið. SVEITARSTJÓRNARMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.